Skinfaxi - 01.08.1992, Qupperneq 37
65 lið í UMSK- mótinu í knattspyrnu
Lið Umf. Aftureldingar. Efri röð f. v.: Hansína Þorkelsdóttir, Silja Rán Ágústsdóttir,
Hildur Ævarsdóttir, Gunnhildur Þráinsdóttir, Erla Edvaldsdóttir og Bóel Krist-
jánsdóttir þjálfari. Neðri röð f.v.: Eygerður Helgadóttir, Harpa Sigurbjörnsdóttir, Hug-
rún Hjaltadóttir, Sædís Jónasdóttir, Silja Edvaldsdóttir og Brynja Kristjánsdóttir.
Hvernig finnst þér kvennaknattspyrnan
vera ?
„Mér finnst of margir þjálfarar
kenna of grófa knattspyrnu og það er
sama hvort um er að ræða kvenkyns eða
karlkyns þjálfara. Mörg lið spila of
grófan bolta. Eg hef mikinn áhuga á að
innræta góða og skemmtilega knatt-
spyrnu og ég reyni að gera það. Það þarf
líka að bæta skipulagið, bæði innan KSÍ
og félaganna. Við höfum sem betur fer
ekki lent í því nema einu sinni í sumar
að það hefur gleymst að boða dómara á
leik. En merkingu valla og öðru skipu-
lagi leikja er of oft ábótavant. Þetta
hefur þó batnað mikið en á samt alls
ekki að koma fyrir. Stelpurnar eru líka
ósáttar við það að þeim finnst stundum
meira gert fyrir strákana," sagði Bóel,
þjálfari Umf. Aftureldingar.
UMSK-mótið í knattspyrnu var
haldið í septembermánuði. Alls
tóku 65 lið þátt í mótinu og voru
þátttakendur 774, þar af 343
stúlkur og 432 drengir.
Skinfaxi fylgdist með úrslitaleik í 3.
fl. stúlkna milli Umf. Breiðabliks og
Umf. Aftureldingar. Leikarfóru 3-1 fyr-
ir Breiðabliki. Helga Gunnlaugsdóttir
skoraði fyrsta mark Breiðabliks, stöngin
inn, Sigurbjörg Júlíusdóttir eitt og Hild-
ur Olafsdóttir eitt. Mark Aftureldingar
skoraði Harpa Sigurbjörnsdóttir eftir
fyrirgjöf frá Erlu Edvaldsdóttur.
Kristrún Daðadóttir þjálfari sagði
eftir leikinn að þetta hefðu verið óvænt
úrslit og að UMSK-mótið væri fyrsta
mótið sem þær hefðu sigrað í sumar.
„Við vissum að við áttum möguleika en
Afturelding hefur unnið okkur naum-
lega í sumar og nú ætluðum við okkur
að sigra og það tókst. Stelpurnar höfðu
trú á að þær gætu unnið. Þær komust
yfir og efldust við það, spiluðu
skemmtilega og börðust vel.“
Er óhugi d kvennaknattspyrnu að auk-
ast?
Já, ég held að það hljóti að vera, við
höfum fengið meiri athygli og um-
fjöllun og það hefur Ieitt til þess að fleiri
hafa farið að æfa. Það eru komnir lærðir
þjálfarar og það er lagður meiri metn-
aður í þjálfun kvenna. Tilkoma landsliðs
Lið Umf Breiðabliks. Efri röð f.v.: Hildur Ólafsdóttir, Ingunn Smdradóttir, Linda
Andrésdóttir, Sigrún Gunnarsdóttir og Kristrún Daðadóttir þjólfari. Neðri röð f.v.:
Helga Gunnlaugsdóttir, Sigurbjörg Júlíusdóttir, Líney Jóhannesdóttir, Gréta Rún
Snorradóttir og Sandra Karlsdóttir. A myndina vantar Margréti Sigurðardóttur sem
einnig varþjúdfari liðsins í sumar.
gerir það líka að verkum að stelpurnar
eflast og verða metnaðarfyllri að standa
sig. Okkur hefur gengið vel og stjórnin
hefur því staðið sig vel gagnvart okkur,“
sagði Kristrún, þjálfari hjá Breiðabliki.
Mörg lið spila of
grófan bolta
Aftureldingarstúlkur urðu í vetur Is-
landsmeistarar í innanhússknattspyrnu
og var það fyrsti Islandsmeistaratitill
félagsins í kvennaknattspyrnunni. Marg-
ir spáðu því Aftureldingu sigri en hvað
telur þjálfarinn, Bóel Kristjánsdóttir, að
hafi valdið ósigrinum ?
„Stelpumar hafa aldrei stigið fæti á
gervigras áður og við emm eina liðið
sem æfir ekki á gervigrasi. Þar að auki
voru æfingar eiginlega hættar þegar
okkur bauðst að skrá okkur í mótið.“
Skinfaxi
37