Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.05.1993, Blaðsíða 21

Skinfaxi - 01.05.1993, Blaðsíða 21
Hluti þess svœðis sem landsmótið mun fara fram á. A myndinni má sjá knattspymuvöllinn og handboltavöllinn, svo og íþróttahúsið, sem hýsir fullkominn íþróttasal. Sundlaugin er við bygginguna. Að þessu svœði liggur aðalleikvangurinn, þannig að hœgt er að segja með sanni, að þarna sé allt á einum stað. mótið verður allt á einum stað og allir hlutir eru í seilingarfjarlægð hver frá öðrum. Frá aðalleikvanginum eru aldrei fleiri en 300 metrar til annarra keppnis- staða fyrir utan þennan eina knatt- spyrnuvöll sem verður í Utey. Þangað er að vísu ekki nema rúmur kílómetri í sjónlínu en um fimm kílómetra akstur. I raun þarf fólk ekki nema að snúa sér við til þess að eiga þess kost að fylgjast með einhverjum öðrum keppnislið.“ - Verða dansleikir og önnur skemmtan í tengslum við landsmótið ? „Hér er ekkert hús til dansleikjahalds, - sem er kannski af hinu góða. Þess vegna ætlum við að nota til þess félagsheimilin að Borg í Grímsnesi og Aratungu. Okkur finnst skemmtanahald af þessu tagi ekki eiga við hér inni á mótssvæðinu, það veldur þeim ónæði sem þurfa að einbeita sér að þátttöku í keppni og hinum sem koma hingað til þess að eiga skemmtilega og friðsæla daga. Þeir sem áhuga hafa á dansleikjum, geta sótt þá þangað sem þeir eru haldnir - og auðvitað mun verða skipulagðar sætaferðir.“ Hestar og seglbretti - Samkvæmt reglugerð UMFI er keppt í ákveðnum greinum á landsmóti. Jafnframt fær mótshaldari hverju sinni að bjóða upp á svokallaðar sýningargreinar. Hvaða sýningargreinar er reiknað með að boðið verði upp á hér á Laugarvatni? ,,Ennþá hefur landsmótsnefnd ekki ákveðið endanlega um hvaða greinar verður að ræða. Við vonumst til þess að hér verði keppt í hestaíþróttum. Um þessar mundir eru viðræður í gangi við hestamenn á staðnum og hestaíþróttadeildir félaganna á svæðinu. Ennþá er er ekki fyrir hendi fullkominn keppnisvöllur en vonir standa til að honum verði komið upp í tæka tíð og þá er gert ráð fyrir að hann verði í næsta nágrenni hjólhýsabyggðarinnar. Við gerum einnig ráð fyrir því að keppni á seglbrettum verði sýningargrein enda aðstaðan öll fyrir hendi hér úti á vatninu. I þriðja lagi munum við líklega vera með keppni í karate og trúlega verðum við með svokallað æskuhlaup sent hefur verið haldið áður í tengslum við landsmót. Við munum jafnframt tengja Bláskógaskokkið landsmótinu og mun það þá enda á leikvanginum með glæsibrag en ekki við bæjarmörkin eins og hingað til. Loks munum við keppa í nokkrum greinum fatlaðra.“ - Nú eru aðeins fáir staðir á landinu sem geta haldið landsmót af þeirri stœrð- argráðu sem síðustu mót hafa verið. Ertu hlynntur núverandi fyrirkomulagi ? ,,Eg held að skynsamlegt væri fyrir hreyfinguna að ntarka sér stefnu varðandi framtíð landsmótanna, - hvort þau eigi alltaf að stækka og stækka að umfangi eða ekki. Ef umfangið eykst stöðugt verða æ færri staðir sem geta haldið mót af þessari stærðargráðu. Hin leiðin er sú að halda landsmótin víðar og miða umfang þeirra hverju sinni við þann stað þar sem það fer fram. Þá yrði föstum keppnisgreinum fækkað en aðrar greinar gætu verið breytilegar frá einu landsmóti til annars eftir aðstæðum á hverjum stað. Ég er fylgjandi því að kanna þessa möguleika og ræða þá niður í kjölinn.“ Skiníaxi £RT Ýó Mikið verk er óunnið, áður en aðalleikvangurinn er tilbúinn fyrir landsmót. Skinfaxi 21

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.