Skinfaxi - 01.05.1993, Síða 24
Þátttaka unglinga
í íþróttum
Þórólfur Þórlindsson og Þorlákur Karlsson
Mynd 1: Iþróttaástundun nemenda í 8. bekk skipt eftir kyni.
I Piltar
□ Stúlkur
_32,2„
26.3
24,5
20.9
1 -2x í viku
3-4x í viku
5x í viku eöa oftar
Islendingar eru mikil íþróttaþjóð,
reyndar svo mikil að það þarfnast
sérstakra skýringa. Því hefur verið
haldið fram að íþróttahyggja íslend-
inga hvíli að einhverju leyti á forn-
um menningarlegum gildum. Guð-
mundur Finnbogason segir í bók
sinni íslendingar: Nokkur drög að
þjóðarlýsingu (1933) að í reynd sé
hin forn-íslenska mannshugsjón
íþróttamannshugsjón. Bendir Guð-
mundur meðal annars á að íslend-
ingum verði flest að íþróttum.
Þannig keppi þeir í því að yrkja
vísur, ráða gátur, stunda kapp-
drykkju og kappát svo að nokkur
dæmi séu tekin. Ekki skal lagður
dómur á þessar kenningar hér en á
hitt má þó benda að íþróttaiðkun
hér á landi er nú útbreiddari en
þekkist annars staðar í Vestur-
Evrópu og fer hún vaxandi. Að vísu
hafa efasemdarraddir heyrst um
það að íþróttaþátttakan sé orðum
aukin, en nýlegar rannsóknir á
íþróttaþátttöku benda þó til þess að
svo sé ekki. Þannig sýndu kannanir
árið 1978 að nær 29% 15 ára
unglinga í Reykjavík stunduðu
íþróttir með íþróttafélögum einu
sinni í viku eða oftar. Sambærileg
tala fyrir árið 1992 var um það bil
40%, sem sýnir að íþróttaiðkun
hefur farið vaxandi síðustu ár.
Könnunin Ungt fólk 92
Hér á eftir verða kynntar niðurstöður
eins þáttar könnunar sem gerð var vorið
1992 á vegum Rannsóknastofnunar
uppeldis- og menntamála meðal nemenda í
8., 9. og 10. bekk grunnskóla (Ungt fólk
92). Könnunin náði til tæplega 9000
nemenda eða um það bil helmings
nemenda í 8. bekk og um það bil 90%
nemenda í 9. og 10. bekk. Hér er því um
mjög gott úrtak að ræða sem gefur trausta
mynd af ýmsum þáttum í lífi þessara
unglinga.
Að frumkvæði íþróttanefndar ríkisins
var spurt fjölda spurninga um íþrótta-
þátttöku í umræddri könnun og ýmsa þætti
sem tengjast íþróttum unglinga. Hér verður
gerð grein fyrir þeim hluta könnunarinnar
sem snýr að þátttöku unglinga í íþrótta-
starfinu. Annars vegar er þátttaka unglinga
í íþróttum með íþróttafélögum könnuð og
hins vegar er íþróttaástundun unglinga
utan leikfimitíma, utan eða innan fþrótta-
félaga. Til þess að einfalda þessar nið-
urstöður var ákveðið að bera saman
íþróttaástundun í 8. og 10. bekk. í aðal-
atriðum er 9. bekkur svipaður 10. bekk,
svo að honum er sleppt hér. Verður fyrst
vikið að að almennri íþróttaástundun.
Almenn íþróttaástundun
unglinga
íþróttaástundun nemenda í 8. bekk utan
skólaleikfimi er mjög mikil eins og sjá má
24
Skinfaxi