Skinfaxi - 01.05.1993, Síða 31
Jónas Þór Jóhannsson framkvæmdastjóri ÚÍA:
Að leggja hönd á plóg
Uppi á efstu hæð í nýbyggðu
verslunar- og skrifstofuhúsnæði á
Ecfilsstöðum er að finna aðsetur
ÚIA. Þetta er myndarlegt hús, bleikt
að lit. Á skrifstofuna til Jónasar
Þórs Jóhannssonar
framkvæmdastjóra leggja margir
leið sína, ýmist í sérstökum
erindagjörðum eða eiga einungis
leið fram hjá.
Síminn hringdi sinni eftir sinni og
margir bönkuðu upp á og ráku inn nefið þá
stuttu stund sem tíðindamaður Skinfaxa
staldraði við hjá Jónasi. „Margir forystu-
rnenn í félögunum og ekki síður hinn
almenni félagsmaður líta hér við og
gjarnan eru þeir að leita upplýsinga. Oftast
tekst manni að verða jreim að liði.”
Sambandsvæði UIA nær frá Bakkafirði
að norðan og að Lónsheiði að sunnan. í
sambandinu eru 30 félög. „Þeim er farið að
fækka sem eru ekkert nema nafnið lengur,
líklega hafa félögin flest verið 39 á
svæðinu. Það hefur fækkað það mikið fólki
í sumum sveitunum. I fyrra var gerður
mjög merkilegur hlutur en þá var stofnað
eitt félag úr þremur. Það heitir Þristur og
stóðu Ungmennafélag Jökuldæla, Ung-
mennafélag Skriðdæla og Ungmenna-
félagið Viðar í Vallahreppi að samein-
ingunni. Formaður er Jónína Þórarins-
dóttir. Þetta hefur gengið með ólíkindum
veh”
Aðspurður um starf og hlutverk ÚÍA
segir Jóhannes að það hafi breyst nokkuð
síðustu árin. „Það var að hluta til íþrótta-
félag sem lagði megináherslu á þátttöku
félagsmanna í frjálsum íþróttum. Nú er
sambandið orðið nokkurs konar sam-
ræmingar- og þjónustuaðili fyrir félögin. Á
vegum þess eru starfandi sérráð sem annast
framkvæmdir í tengslum við hinar ýmsu
greinar. Þau sjá um að halda meistarmót á
svæðinu hvert í sínum flokki. Þetta er
mikið starf og unnið af mörgum.”
Blaðaútgáfa
„Drjúgur þáttur í starfsemi sambandsins
er útgáfa ársritsins Snæfells sem kemur út
tvisvar á ári í 100 síðum. Mánaðarlega
gefum við síðan út ÚIA-fréttir í átta síðum.
Þetta höfurn við gert þannig að sambandið
Jonas Þor Johannsson framkvœmdastjóri UIA.
annast Snæfell algjörlega, bæði hvað
varðar efni og auglýsingar og skilar því
fullbúnu til prentunar. Hitt blaðið gefum
við út í samvinnu við prentsmiðju hér á
staðnum, við sjáum um efni en prent-
smiðjan um auglýsingar. Þetta fyrir-
komulag hefur gefist ágætlega. Báðuin
blöðunum er dreift á hvert einasta heimili á
sambandssvæðinu.
Það er stutt síðan við áttum í mjög
alvarlegum fjárhagsþrengingum sem að
hluta til voru vegna hátíðarinnar sem
árlega var haldin í Atlavík um verslun-
armannahelgina. Það dæmi gekk af-
skaplega vel á meðan það var og hét en
síðan fór það veg allrar veraldar á einu eða
tveimur árum, þegar aðsóknin brást. Við
erum heldur að rétta úr kútnum núna. Það
höfum við gert rneð velvilja rnargra og
hafa bæði fyrirtæki og einstaklingar lagt
hönd á plóginn. Blaðaútgáfan hefur gengið
vel og skilað okkur nokkrum tekjum sent
sannarlega hafa komið sér vel.”
Íþróttahátíð og
útileikhús
„I annan stað hefur sumarhátíðin okkar
á Eiðum fært okkur svolítið í aðra hönd, en
hún er um leið meistarainót okkar í
frjálsum íþróttum. I fyrra var aðstaðan bætt
talsvert. Þá byggðum við heljarmikinn
danspall og stórt svið. Við fluttum þangað
jafnframt þær byggingar og skúra sem við
áttum í Atlavík. Við bindum vonir við að
við geturn í framtíðinni haldið þarna stærri
mót þótt ekki ætlum við út í annað
Atlavíkurdæmi. Við héldum fyrsta mótið í
þessari mynd í fyrra og fengum um 1000
manns á svæðið. Okkur fannst það heldur
lítið, en vonumst til þess að fleiri komi nú í
sumar. Við teljum okkur hafa aðstöðu fyrir
allt að 5000 manns.
Við höfum einnig verið að endurbæta
íþróttaaðstöðuna, einkum hlaupabrautina,
og ætlum að halda því áfram ef við höfum
fjárhagslegt bolmagn til. Það þarf mikið til
því að við höfum sótt um að fá að halda
unglingalandsmótið árið 1995. Þarna hefur
töluvert verið gróðursett af ÚÍA í gegnum
árin og verður því starfi haldið áfram.
Um þessar mundir erum við í samráði
við Barnaskólann á Eiðum og Eiðahrepp
að koma fyrir leiktækjum, en á sumrin
stendur ÚÍA fyrir sumarbúðum fyrir börn á
Eiðum.
Á útisviðinu nýja verður rekið
útileikhús í sumar. Það er kennari í
Menntaskólanum á Egilsstöðum, Philip
Vogler, sem á hugmyndina að starfsemi
þessari og mun veita henni forstöðu undir
heitinu „Hér fyrir austan”. Verður boðið
upp á leik- og danssýningar á hverju
miðvikudagskvöldið frá 30. júní til 18.
ágúst og mun Kvenfélag Eiðahrepps
Skinfaxi
31