Skinfaxi - 01.05.1993, Blaðsíða 36
þessa hópa vinnst tvennt, því
að um leið og það stuðlar að
betra og lengra lífi fólks sparar
það þjóðfélaginu mikla fjár-
muni. Þetta má líka skýra út á
meðfylgjandi teikningu:
Út úr myndinni má lesa að
brattinn á brekkunni eru kostir
þeir sem þjóðfélagið býður
fólki upp á. Einstaklingurinn
þarf að ýta steininum (heils-
unni) upp brekkuna sem er
brattari eftir því sem fram-
kvæmdir og úrræði eru færri.
Af því leiðir að því fleiri sem
kostirnir eru því auðveldara á
einstklingurinn með að við-
halda heilsu sinni - og öfugt.
Best er auðvitað þegar báðir
aðilar standa við sitt, - ein-
staklingurinn stuðlar að því að
viðhalda heilsu sinni og þjóð-
félagið komi til móts við hann í
þeirri viðleitni.
Islenskt þjóðfélag hefur
löngum einkennst á mikilli
vinnu þegnanna og oft fremur
litlum frítíma. Tekjur þorra
launþega hafa heldur ekki
verið það háar að fólk hafi í
miklum mæli getað leyft sér að
stytta vinnutímann og nota
frítímann til dæmis til heilsu-
ræktar og líkamsþjálfunar.
Líkast til má einnig kenna
kröfum fólks til lífsgæða hér
um, því að Islendingar hafa að
því leyti farið fram úr ýmsum
nágrannaþjóðum sínum. Þó
hefur átt sér stað vakning í
heilsurækt á undanförnum
misserum. Þrátt fyrir allt eiga
einstaklingar oftar en ekki þess
kost að velja sér lífsstfl upp að
ákveðnu marki, þeir geta í
flestum tilvikum valið á milli
möguleika sem þeir hafa og í
boði eru - til dæmis á milli
þess hvort viðkomandi ein-
staklingur leggst upp í sófa
með kók og súkkulaði þegar
hann kemur heim úr vinnunni
eða fer út að hlaupa eða í
göngutúr með hundinn. Margir
eiga við einhverja kvilla að
stríða sem eru yfirstíganlegir.
Séu þeir viðvarandi er fólki
nauðsynlegt að taka tillit til
þeirra en jafnframt að leggja
kapp á að bæta heilsu sína að
öðru leyti.
Fólk á að hugsa jákvætt -
reyna að koma auga á lausnir í
stað þess að velta sér upp úr
vandamálunum.
Líkamsþjálfun -
álag
aðalatriðið að verða sveittur
eða andstuttur. Regluleg
þjálfun (t.d. þrisvar í viku í 45
mínútur í senn) um lengri tíma,
til dæmis með því að ganga,
skokka, synda eða dansa,
styrkir heilsu fólks sem um
rnunar. Einnig er mikilvægt að
fólk sé glatt í sinni og jákvætt
og sé í góðum félagsskap.
Þannig öðlast menn innri ró og
frið í sálu sinni. Álagið er ekki
það mikilvægasta. Rannsóknir
hafa leitt í ljós að fólk getur
þjálfað reglulega með 45-50%
af hámarksgetu (súrefnis-
upptöku). Lykilatriðið er að fá
hjartað til að slá aðeins hraðar
en venjulega.
Nokkur góð ráð í
lokin:
- Gott mataræði: borða
minni fitu, meiri fisk og græn-
meti.
- Reykja ekki, né neyta
áfengis.
- Gæta þess að þyngjast
ekki.
- Stuðla að góðu jafnvægi á
milli vinnu og hvíldar.
- Stunda líkamsþjálfun
reglulega.
Öllum er nauðsynlegt að
hreyfa sig sem allra mest.
Margir sem orðnir eru mið-
aldra og eldri eiga orðið mun
erfiðara en áður með ýmislegt
sem þeir áður leystu af hendi
með léttum leik í hinu daglega
lífi. Þess þá heldur er þeim
mikilvægt að hreyfa sig og
nota líkamann, - á þann hátt
sem þeir ráða við. Fólk getur
kannski ekki lengur hlaupið
hratt á eftir strætó, - en gengið
getur það og iðkað léttar
æfingar daglega. Hér fylgir í
lokin saga sem þekktur,
norskur læknir sagði um móður
sína, 85 ára gamla, en hún býr
við lítið stöðuvatn:
„Hún hafði í fjölda ára
gengið einn hring í kringum
vatnið á hverjum degi, 3
kílómetra. Að því kom að
henni fannst hún vera farin að
eldast. Þá þóttist hún ekki
treysta sér til að ganga nema
hálfa leiðina í kringum vatnið,
en sneri þá við og gekk að
sjálfsögðu til baka sömu leið.”
Við líkamsþjálfun er ekki
Hópíþróttir, svo sem almenningshlaup eru mjög að ryðja sér til rúms.
36
Skinfaxi