Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.08.1993, Page 11

Skinfaxi - 01.08.1993, Page 11
Sigurður Hjörleifsson spáir í körfuboltann 1993-1994: Spá um röð liða í Úrvalsdeildinni Það er kannski dálítið hæpið að gera einhverja raunhæfa spá svo snemma, þar sem liðin eru ekki farin að leika neina leiki þegar þetta er skrifað. Þá eru fimm af liðum deildarinnar með nýja erlenda leikmenn og aðeins þrjú liðanna eru með sama þjálfara. Þar sem deildin er riðlaskipt og aðeins tvö lið komast áfram úr hvorum riðli, gætu mun sterkari lið úr öðrurn hvorum riðlinum setið eftir. Við fyrstu sýn virðast riðlarnir vera mjög missterkir. Spáin er þessi, fyrst röð innan hvors riðils og síðan endanleg röð fjögurra efstu liða: A-riðill B-ríðill ÍBK UMFN Skallagrímur Haukar Snæfell KR Valur UMFG ÍA Tindastóll Endanleg röð fjögurra efstu liða: UMFN Haukar ÍBK Skallagrímur Lauslegt mat á styrk og veikleika liðanna: Njarðvík Njarðvíkingar hafa fengið heirn sterka leikmenn eins og Val Ingimundarson og Friðrik Ragnarsson, sem er óneitanlega mikill styrkur. Valur mun jafnframt þjálfa liðið. Þá er sarni erlendi leikmaðurinn hjá liðinu, sem er kostur. Þetta og ekki síður það, að UMFN fór langt niður í getu á síðasta tímabili, er næg ástæða til að spá þeirn efsta sætinu í lok þess næsta. Þeir láta slíkt ekki koma fyrir tvö ár í röð. Haukar Sömu leikmenn, sami erlendi leikmaður, sem er stórkostlegur, og sami þjálfari og á síðasta tímabili, skila Haukum örugglega einu af efstu sætunum. Veikleiki liðsins er varamannabekkurinn, sem er ekki mjög sterkur, alla vega ekki rnjög leikreyndir menn. ÍBK Hvers vegna ekki efsta sætið eins og tvö síðustu ár? Sterkir leikmenn hafa skipt yfir í önnur félög, sem gæti veikt liðið töluvert. Einnig er oft erfitt að halda liði á toppnum mörg ár í röð. En ÍBK hefur nægilega góðan mannskap til þess að vinna allt aftur. Þetta er einkum spurning um hvort þeir sækist nóg eftir titlunum. Skallagrímur Spútniklið síðasta árs ætti að tryggja sig örugglega inn f úrslitakeppnina, sérstaklega þar sem þessi riðill virðist mun veikari í ár en B-riðillinn. Borgnesingar eru þó með mjög sterkt lið og nánast óbreytt frá síðasta ári. Hinir stórkostlegu áhangendur þeirra er ómetanlegur stuðningur við liðið. Veikleiki þess er sá að ekki er nógu mikil breidd í því. KR Síðasta tímabil var að öllu leyti það lélegasta hjá félaginu í mörg síðastliðin ár. Bjartari tímar ættu að vera fram undan, sérstaklega með endurkomu Laszlo Nemeth sem þjálfara liðsins. Alla vega má gera ráð fyrir að það verði í feiknagóðri líkamlegri þjálfun. Ef þjálfaranum tekst að byggja upp hina ungu leikmenn félagsins og fela veikleika liðsins, gæti KR náð lengra. UMFG Grindvíkingar gætu átt í erfiðleikum í vetur, en liðið gæti lfka orðið það lið sem kæmi mest á óvart. Nýr þjálfari, Guðmund- ur Bragason, sem jafnframt leikur með liðinu og nýr erlendur leikmaður, sem sagður er hafa verið á samningi hjá NBA- liði eiga eftir að sanna sig. Nökkvi Jónsson hefur skipt yl'ir til Grindavíkur frá Kefla- vík, en þeir hafa misst hinn stórefnilega leikmann Helga Guðfinnsson. Hann er farinn til náms í Bandaríkjunum. Varamenn Skinfaxi 11

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.