Skinfaxi - 01.08.1993, Qupperneq 12
liðsins eru flestir mjög ungir og óreyndir
og það gæti óneitanlega reynst veikleiki.
Snæfell
Hin óvænta frammistaða Hólmara á
síðasta ári verður varla endurtekin í ár. Þó
hafa þeir ekki síðri leikmenn nú en áður.
Sennilega er meiri breidd í liðinu ef
eitthvað er, með tilkomu Suðurnesjamann-
anna Hreiðars Hreiðarssonar og Sverris
Þórs Sverrissonar og ekki síður með
endurkomu þeirra Hjörleifs Sigurþórssonar
og Þorvarðar Björgvinssonar frá Breiða-
blik. Enn einn erlendur leikmaður og nýr
og óreyndur þjálfari, Kristinn Einarsson,
sem jafnframt leikur með liðinu, gætu
veikt það.
Valur
Gamla stórveldið virðist eiga í miklum
erfiðleikum, annars vegar með að halda
leikmönnum og hins vegar þjálfurunum,
sem jafnvel hætta áður en þeir byrja að
þjálfa. Margir leikmenn hafa hætt síðan á
síðasta ári. Þá tekur nú við nýr þjálfari
fimmta árið í röð. Slíkt getur ekki skilað
miklum árangri. Ef Frank Booker nær sér á
strik í vetur gæti liðið þó ef til vill færst
ofar.
UMFT
Mikil umskipti hafa átt sér stað hjá
liðinu frá síðasta tímabili. Þrír leikmenn úr
byrjunarliðinu hafa skipt yfir í önnur félög.
Mikið mun því mæða á hinum ungu en
efnilegu leikmönnum UMFT.
ÍA
Nýliðar eiga ávallt erfitt uppdráttar á
sínu fyrsta ári í efstu deild. Svo mun einnig
verða hjá IA í vetur. Þó eru þeir mun
heppnari með riðlaskiptingu og styrkleika
deildarinnar en nýliðar hafa oft verið.
Liðið hefur vissulega fengið mikinn liðs-
styrk hvort sem hann dugir til að halda því
uppi í deildinni eða ekki.
Góð íþróti t, gulli betri
Bílverk, verkstæöi Víkurbraut 4 780 Höfn Hótel Bláfell Sólvellir 14 760 Breiðdalsvík
Borgarfjarðarhreppur Höfn 720 Borgarfjöröur Jökull, verkalýðsfélag Víkurbraut 4 780 Höfn
Breiðdalshreppur Selnesi 38 760 Breiödalsvík Skarphéðinsheimilið Engjavegi 44 800 Selfoss
Búnaðarsamband A-Skaftafellssýslu Rauðabergi 2 781 Höfn Skinney hf. Krosseyjarvegi 11 780 Höfn
Flugfélag Austurlands hf. Egilsstaðaflugvelli 700 Egilsstaðir Sparisjóður Norðfjarðar Egilsbraut 25 740 Neskaupstaður
12
Skinfaxi