Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.08.1993, Síða 20

Skinfaxi - 01.08.1993, Síða 20
IBoronnblabib Sigurbjörn Arngrímsson HSÞ. Friðrik Larsen Selfossi náði næstbesta tíma ársins í 800 m hlaupi en hann og Finnbogi þurfa báðir að rífa sig upp úr far- inu og gera eitthvað róttækt í að bæta sig eftir nokkurra ára stöðnun. Sigmar Gunnarsson UMSB, Jóhann Ingibergsson FH og Rögnvaldur Ingþórs- son UMSE voru yfirburðamenn í lang- hlaupunum og háðu mörg skemmtileg ein- vígi á brautinni. Rögnvaldur náði mjög at- hyglisverðum tíma í 3000 m hindrunar- hlaupi og er kannski, ásamt þeim sem hér Jón Arnar Magnússon UMSS. hafa verið nefndir til sögunnar, okkar framtíðarafreksmaður í langhlaupum og hindrunarhlaupi. Ekki er hægt að minnast á millivega- lengdir og langhlaup hjá körlum án þess að minnast á hinn stórefnilega Svein Mar- geirsson, 15 ára, UMSS. Hann hélt áfram að bæta árangur sinn verulega í sumar og er örugglega mesta langhlauparaefni sem fram hefur komið hér á landi í áraraðir. Stökkgreinar karla Jón Arnar Magnússon UMSS og Jón Oddsson ÍR náðu framúrskarandi árangri stökkvara þegar þeir stukku 7.66 og 7,64 m í langstökki á MI innanhúss í vetur. Slys hamlaði Jóni Arnari frá frekari afrekum á þessu keppnistímabili eins og svo mörgum undanförnum tímabilum, og Jón Oddsson átti í erfiðleikum lengst af á keppnistíma- bilinu utanhúss. Einar Kristjánsson FH hafði yfirburði í hástökkinu en sýndi ekki þann styrk sem hann sýndi á síðasta tíma- bili. Gömlu mennirnir, Sigurður T. Sig- urðsson FH og Kristján Gissurarson IR höfðu yfirburði í stangarstökkinu og virðist vera nokkuð langt í það að veldi þeirra verði ógnað. Þrístökkið er áfram í þeirri lægð sem það hefur verið undanfarin ár. Þó svo nokkuð sé í land að yngri stökkvarar nái að ógna þeim eldri eru nokkrir mjög efnilegir stökkvarar að koma fram, sem með réttum æfingum og elju- semi ættu að geta komist á alþjóðlegan mælikvarða eftir nokkur ár, - Bjarni Þór og Olafur Sveinn Traustasynir FH, Gunnar Guðmundsson Fjölni, Hafsteinn Sigurðs- son UBK, Stefán Gunnlaugsson UMSE, Róbert Jensen og Tómas Gunnarsson HSK. Kastgreinar karla Framan af sumri sýndi Pétur Guð- mundsson KR mesta öryggi okkar bestu kastara og vann góða sigra á Smáþjóða- leikum, Evrópubikarkeppni og Reykjavík- urleikum. Hann kastaði lengst 19,67 metra og oft yfir 19,50. Pétur náði hins vegar ekki að sýna sínar bestu hliðar á HM frem- ur en Sigurður Einarsson A spjótkastari og Vésteinn Hafsteinsson HSK kringlukastari. ísleifur Karlsson UMSK. Vésteinn sigraði í Evrópukeppninni og Sigurður á Smáþjóðaleikunum. Einar Vil- hjálmsson IR var meira eða minna frá keppni vegna meiðsla.Enginn okkar bestu kúlu-, kringlu- eða spjótkastara voru ná- lægt sínu besta, að undanskildum Unnari Garðarssyni IR sem kastaði spjótinu yfir 72 metra. Guðmundur Karlsson bætti hins vegar Islandsmet sitt oftar en einu sinni í sleggjukasti og setti meðal annars glæsi- legt Islandsmet í Evrópubikarkeppninni. Ekki er hægt að segja að á ferðinni séu margir efnilegir kastarar um þessar mund- ir, sem gætu tekið við af þeim eldri, en Bjarki Viðarsson HSK sýndi stórstígar framfarir í sleggjukastinu á árinu og er til alls líklegur á næstu árum. Ljóst er að hann hefur fundið sína aðalgrein. Fara verður niður í sveinaflokk til að finna stráka sem hafa hæfileika til að verða framúrskarandi kastarar. Sigmar Vilhjálmsson er efnilegur 20 Skinfaxi

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.