Skinfaxi - 01.08.1993, Side 24
Það var kalt að standa á sviðinu og syngja,
en þessi unga stúlka lét það ekki á sig fá.
Hún mætti bara þeim mun betur klœdd í
karókíkeppnina.
Hún var ákveðin í að gera sitt besta og
einbeitingin leynir sér ekki í svipnum.
Þessar hressilegu ungu stúlkur skipa boðhlaupssveit Hattar.
Sumarhátíð li
„Héldun
ólympíi
fyrsta
„Sumarhátíðin gekk ágætlega
að þessu sinni en það má segja
að nú höfum við haldið vetrar-
ólympíuleika í fyrsta sinn, það
var svo kalt, “ sagði Jónas Þór
Jóhannsson framkvæmdastjóri
UÍA þegar hann var spurður
hvernig þessi stærsti viðburður
sumarsins hjá sambandinu
hefði gengið.
Hátíðin var haldin 9.-11. júlí, frá
föstudegi til sunnudags. Hún hófst á því
að félagar úr aðildarfélögum UÍA hlupu
til skiptis með logandi kyndil frá
skrifstofu sambandsins á Egilsstöðum að
mótssvæðinu á Eiðum, um 15 kílómetra
leið. Síðan var eldurinn notaður til að
kveikja í brennu um kvöldið. Það eru
aðildarfélög UÍA sem taka þátt í
sumarhátíðinni og að þessu sinni kepptu
USU-menn á jafnréttisgrundvelli.
,,Mér þykja þessi auknu samskipti
sambandanna lofa góðu,“ sagði Jónas.
„Auðvitað gæti einhverjum þótt það
skrítið að á Austurlandi væru starfandi
tvö héraðssambönd, en ekki eitt. Það má
segja sem svo að það hafi stundum komið
svolítið kjánalega út.“
Stúlknaknattspyrna í
fyrsta sinn
Á föstudeginum hófst keppni í spjót-
kasti og kúluvarpi. Um kvöldið fór svo
frarn undankeppni í karokí-söng. Um
24
Skinfaxi