Skinfaxi - 01.08.1993, Blaðsíða 25
IÍA á Eiðum:
1 vetrar-
jleika í
sinn“
níuleytið var kveiktur varðeldur og síðan
sá hljómveitin Jet Black Joe um að
syngja brennusönginn.
,,Þetta fór allt þokkalega fram nema
hvað kuldinn setti sitt mark á alla
hátíðina,“ sagði Jónas. „Fólk þurfti að
vera meira eða minna í skíðagöllum eða
snjósleðagöllum allan tímann, sem er
óvenjulegt á sumarhátíð hér um slóðir að
minnsta kosti.“
Keppnin hófst svo af krafti í frjálsum
íþróttum og knattspyrnu á laugardags-
morgun og var meðal annars bryddað upp
á þeirri nýjung að halda keppni í knatt-
spyrnu stúlkna yngri en 14 ára. Ekki voru
slegin nein met, enda hefðu veðurað-
stæður komið í veg fyrir að hægt yrði að
fá þau staðfest.
Þegar íþróttakeppninni lauk um kvöld-
ið var haldinn dansleikur í samkomu-
tjaldinu, sem er um 200 fermetrar að
stærð.
Á sunnudagsmorguninn hélt keppni
áfram og hófst svo hefðbundin hátíðar-
dagskrá síðdegis með ræðu formanns og
skrúðgöngu aðildarfélaga. Meðal
skemmtiatriða var Magnús Scheving
þolfimimeistari sem sýndi listir sínar.
Leikfélag Fljótsdalshéraðs flutti valin
atriði úr Kardemommubænum sem sýnd-
ur var við frábærar undirtektir á Egils-
stöðum í fyrravetur. Að því búnu fóru
fram úrslit í karokí-keppninni áður en
verðlaunaafhending fór fram. Heiðurs-
gestur sumarhátíðarinnar að þessu sinni
var Vilhjálmur Einarsson skólameistari á
Egilsstöðum.
Það var liart barist á vellinum.
Rœningjarnir í Kardimommubœnum fengu heldur betur að finna fyrir því á sumar-
hátíðinni.
Skinfaxi
25