Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.08.1993, Page 31

Skinfaxi - 01.08.1993, Page 31
Bikarkeppni UIA í knattspyrnu -14-50ára saman íliði Litla bikarkeppnin nefnist knatt- spyrnumót þeirra félaga sem ekki taka þátt í deildakeppni KSI, auk B- liða deildafélaganna. Öll eru þessi félög síðan aðildarfélög að UIA og í bikarkeppninni í sumar tóku 9 harðsnúin lið þátt. Sigurður Örn Jónsson, starfsmaður UÍA, annast skipulag og framkvæmd keppninnar auk þess sem hann annast dómgæslu á nokkrum leikjanna. Að sögn Sigurðar Arnar er um að ræða meistaraflokk og er aldur leikmanna allt frá fjórtán ára og upp í fimmtugt. „Það má segja að í flestum tilfellum séu liðin sambland af strákum, sem eru of ungir til að komast í meistaraflokk heima- liða sinna, sem taka þátt í deildakeppninni, og hinna sem eru hættir. I keppninni eru einnig lítil sveitalið sem ekki hafa bolmagn til að taka þátt í deildakeppninninni. Þess má til gamans geta að eitt liðanna núna, Huginn, Fellum, frá Fellabæ hér við Egilsstaði, ávann sér frægð fyrir það í fyrra að vera það lið sem fengið hefur á sig flest mörk í deildakeppni frá upphafi - I40 í 18 leikjum. Oft er það svo að erfitt getur reynst að manna liðin fyrir hina ýmsu leiki. Sem dæmi má nefna að Egill rauði, sem kemur úr nágrannasveitum Neskaupstaðar, náði ekki saman í lið fyrir einn leikinn vegna þess að þeir misstu hálft liðið á Ólafs- vökuna í Færeyjum, - við urðum því að fresta honum. I liðunum sem koma úr sveitunum er samsetning hópsins oft ntjög skemmtileg og gjarnan er það svo að smala þarf mannskap í leikina og æfingar eru engará milli.“ Viðbeins- og ökklabrot „Knattspyrnan dregur náttúrlega dám af þessu og líkast til myndu þeir kalla þetta „kick and run“ á Bretlandi, eða sparkið og hlaupið svo. Menn kunna heldur ekki alltaf reglurnar og því tókum við upp á því nú í sumar að láta aðeins réttindadómara annast Sigurliðið í bikarkeppni UIA. dómgæsluna. Staðreyndin er sú að slys eru algengari í þessu móti heldur en í alvöru knattspyrnu. Margir leikmenn eru ekki í formi og sumir eru kornnir vel af ung- lingsaldri. Við höfum verið að reyna að fækka slysunum rneð því að fá rétt- indadómara. Engu að síður lentu til dæmis tveir á sjúkrahúsi eftir síðasta leik sem ég dæmdi, annar viðbeinsbrotinn og hinn ökklabrotinn. Það má segja að bikarkeppnin sé eina lífsmark sumra ungmennafélagana á svæðinu, eins og Egils rauða á Norðfirði og Ungmennafélags Jökuldæla, - auk þess taka krakkarnir frá þeim þátt í sumar- hátíðinni. Bikarkeppnin er fastur liður í starfinu hér og fæstir gætu hugsað sér sumarið án hennar, hvorki leikmenn né áhorfendur.“ áíJ£iFA&i? Þú getur gerst áskrifandi í síma 91-682929 Skinfaxi 31

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.