Skinfaxi - 01.08.1993, Blaðsíða 33
Héraðssamband Strandamanna:
Sextug íþróttakempa
Það vakti talsverða athygli á héraðsmóti
Héraðssambands Strandamanna, sem hald-
ið var í júlí í sumar, þegar fram á völlinn
gekk vörpulegur rnaður um sextugt og
keppti af krafti í allmörgum greinum. Ekki
nóg með það, því hann gaf sér yngri
mönnum ekkert eftir. Ofan á allt setti hann
svo Strandamet öldunga í tveim greinum.
Þarna var mættur til leiks Bragi Guð-
brandsson bóndi á Heydalsá. Hann hafði
ekki keppt á héraðsmótum urn skeið og
þótti árangur hans í frásögur færandi.
Bragi hefur alla tíð haft mikinn áhuga á
íþróttum og líkamsrækt. Hann keppti sem
ungur rnaður á skíðamótum, einkum í
skíðastökki. Hann iðkaði ekki göngur
heldur var eingöngu í rennslinu. I kringum
1980 fór hann fyrst að æfa reglulega á
gönguskíðum. í vetur sem leið gekk hann
daglega, frá því í byrjun október og til
Bragi við œfingar.
aprílloka, 10-15 og allt upp í 30 kílómetra
leið. Það leið ekki svo dagur að Bragi tæki
sér ekki göngu.
Fyrir nokkrum árum hóf hann að keppa í
nokkrum frjálsíþróttagreinum á héraðsmóti
Héraðssambands Strandamanna. Hann
keppti þá einkum í kringlukasti og kúlu.
Hann hefur þó ekki keppt óslitið til dagsins
í dag, því á tímabili hætti hann, kvaðst hafa
talið sig of gamlan fyrir svona nokkuð. Það
var svo ekki fyrr en í sumar að hann birtist
á héraðsmótinu og keppti í allmörgum
greinum - og stóð þá á sextugasta aldurs-
ári. Og hann hafði árangur sern erfiði, því í
hástökki og 800 metra hlaupi setti hann
Strandamet öldunga, eins og áður sagði.
Hann keppti einnig í spjótkasti, 100 metra
hlaupi, kringlu og kúlu.
Bragi á tvo syni, sent feta í fótspor
föðurins og stunda íþróttir af kappi.
NTUM A
UKKU
I
N NA
LJ
Tl l_«
LJ
LJ-R
-FLJOT AFGREI
ALLT PRENTAÐ Á í
L.A-
LANDI
SNARI
AUGLÝSINGAVÖRUR
TRANAVOGI 1
SÍMI 682850 FAX 682856
Skinfaxi
33