Skinfaxi - 01.05.1996, Blaðsíða 6
Það var nýbyrjað Gull & Silfurmótið í
Kópavogi þegar blaðamaður rakst á
hressar stelpur úr 4. flokki Selfoss.
Markmaður liðsins sem var jafnframt
fyrirliði svaraði nokkrum spurningum
fyrir okkur.
Er þetta fyrsta Gull & Silfurmótið
sem þú hefur tekið þátt í?
„Ég var í Breiðabliki þannig að ég hef
tekið þátt í þeim nokkrum."
Hvernig gekk hjá þér síðast þegar þú
kepptir hérna?
„Það gekk svona ágætlega en ég hef
einu sinni lent í þriðja sæti og einu sinni
í öðru sæti."
Hvernig hefur gengið hjá ykkur
Selfyssingum á mótinu í ár?
„Við erum búnar að vinna einn leik og
tapa einum en mótið byrjaði bara í
morgun svo það er mikið eftir ennþá."
Hverjir eru möguleikar ykkar á
mótinu?
„Ekki miklir."
Eru þið ekki nógu góðar?
„Nei. Breiðablik er með besta liðið og
ekkert lið getur unnið þær en svo er
Selfoss næst."
Verðið þið þá í úrslitum á móti
Breiðabliki?
„Nei."
Hvað eigið þið eftir að leika marga
leiki?
„Við eigum einn eftir í dag, einn á
morgun og svo veit ég ekki meir."
Hvað annað gerið þið skemmtilegt
hérna á Gull & Silfur-mótinu en að
spila fótbolta?
„Skemmtilegast var þegar Páll Oskar
kom í gær og söng fyrir okkur. Annars
er allt voðalega gaman hérna en mótið er
bara svo nýbyrjað að ég veit ekki hvað
verður meira gert fyrir okkur en ég veit
að Magnús Scheving kemur í kvöld."
Gull og Silfnrmót
Breiðabliks var haldið í tólfta
sinn í Kópavogi. Tilgangur
mótsins í upphaji var að auka
verkefni fyrir yngri flokka
kvenna í knattspyrnu og stuðla
þannig að framgangi
kvennaknattspyrnu á Islandi.
Gull og Silfurmótið hefur alla
tíð staðið undir þeim
vœntingum sem til þess eru
gerðar og á þessum mótum
hafa margar af okkar fremstu
knattspyrnukonum stigið sín
fyrstu spor.
Gull og Silfurmótið var að
þessu sinni það fjólmennasta
sem haldið liefur verið. Víða
um land fara fram
knattspymumót með svipuðu
sniði, bœði fyrir stúlkur og
drengi og það eru margir sem
gera tilkall til þess að vera
með stœrsta mótið. En
metnaður Breiðabliks fellst
ekki í því að vera endilega
með stœrsta mótið, við viljum
hrósa okkur af því að hafa
vandaðasta mótið, þar sem
hœfileikar hvers og eins
þátttakanda fœr að njóta sín,
og í það leggjum við metnað
okkar.
(fréttabréf Gull og Silfurmótsins)
6 Skinfaxi