Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.05.1996, Qupperneq 18

Skinfaxi - 01.05.1996, Qupperneq 18
sniMtiuimt i\i» ------▼------- Að venju hélt UNÞ íþróttanámskeið og leikjanámskeið í Lundi í Oxarfirði í byrjun júní og sóttu 35 börn námskeiðið sem stendur í vikutíma. Tilgangur er fjölþættur, bæði kynnast börnin innbyrðis frá hinum ýmsu stöðum, kennd eru undirstöðuatriði mismunandi íþróttagreina og síðan farið í leiki, sungið o.þ.h. I þessum sumarbúðum höfum við gjarnan reynt að hafa „þema" en í fyrra var það landnemar og var hópnum skipt og skýrður eftir þeim og gerðu hóparnir sér þá gunnfána o.s.frv. I ár fannst okkur rökrétt að „þemað" yrði „Vinnan göfgar manninn" og var krökkunum skipt í þrjá hópa sem unnu til skiptis við að gera stíg í gegnum skóginn við Lund og alla leið upp á ásinn. Leiðin sem börnin gerðu er 800 - 1000 metrar en auk þess brúuðu þau læk sem þarna er. Krakkarnir luku við stíginn á föstudagsmorgni og síðan lokuðu hóparnir sig af og bjuggu til sögurnar um ímyndaða atburði sem höfðu gerst á námskeiðinu (sjá sögur á síðu 19). A fimmtudegi og föstudegi voru síðan Lundaleikarnir og var keppt í ýmsum keppnisgreinum s.s. stígvélakasti, langstökki án atrennu út í sundlaug o.s.frv. Föstudagskvöldið fór svo í pulsuát, diskótek, rómantík og uppljóstrun á hver leynivinurinn væri. Leynivinurinn er þannig fenginn að þegar börnin koma í sumarbúðirnar eru allskyns nafnaleikir og lýkur þeim með því að allir draga sér miða sem á er nafn sem enginn annar fær að vita. Eitt kvöldið fengum við rithöfundinn Eðvarð Ingólfsson í heimsókn og las hann upp úr verkum sínum en að því loknu var farið í kvöldgöngu til Skinnastaðar en þar er prestsetur og kirkja. Þar var setið við notalega bænastund í kirkjunni hjá séra Eðvarð. Félagskveðjur frá UNÞ Sæmundur K. Jóhannesson Halti Hjalti Persónur: Guðrún; foringi kristinna manna, Hjalti: uppreisnarseggur kristinna manna, Björgvin lipri, Halla og Jóhanna: heiðnar íjystur, Sigrún: kona höfðingjans, Atli: karlinn hennar, Elvar: Oxarfjarðarfíflið, Brynja: kalíar sig Brynjólf prestur og hommi, Borgar: heiðinn, Ómar: kristinn, Nína: snillingur sem bæði heiðnir og kristnir menn spurðu spurninga. Saga þessi gerist rétt fyrir kristintöku í Öxarfirði, þegar stríð geisaði á milli Guðrúnar Miklu sem kristin er og Atla Digra sem heiðin er. Kvöld eitt kom Ómar Hinn Blessaði að bústað Guðrúnar, sýndist honum þá vegsummerki vera full grunsamleg og fór inn, en þó aðeins til að finna foring sinn (Guðrúnu) með hníf í hjartastað. Rauk hann þá út og reið að útihúsum þeim er bróðir Guðrúnar, Hjalti dvaldi í og lét hann vita af fundi sínum Tók hann þá eftir skurði á fæti Hjalta, en Hjalti sagðist hafa rifið sig á tré sem var fyrir ofan bæ Guðrúnar. Drógu þeir þá ályktun að Atli Hinn Digri hafði verið þar að verki. Fóru þeir og söfnuðu kristnum mönnum saman, voru það Björgvin Lipri og Brynjólfur, lögðu þeir fjórir af stað á fund Nínu Hinnar Gömlu til að spyrja ráða. Var þá Öxarfjarðarfíflið Elvar Hinn Heimski, ástmaður Brynjólfs þar. Ráðlagði Nína þeim að fara á fund Atla Hins Digra og konu hans Brjáluðu Sigrúnar, bera sakir upp á hann og drepa ef svarið yrði jákvætt. Gerðu þeir svo, neitaði hann því og sagðist hafa verið að blóta með konu sinni, Höllu Hinni Góðu, Jóhönnu Hinni Fögru og Borgari Lausvind. Neitaði Ómar því að trúa. Reiddist þá Brjálaða Sigrún mjög og hjó til hans með sverði Atla. Hófst þá stríð milli þessara tveggja hópa. Heyrðust þá þrumur miklar og kom þá úr himninum Jötunn mjög svo stór á hesti. Sáu menn þá að þetta myndi Óðinn vera á hesti sínum Sleipni. Sagði hann þá: „Því berið þið sakir þessar á son minn, Atla Hinn Digra. Halti Hjalti er þér hafið gjört misgjörð þá sjálfur. Fyrir þetta skal ég þér hegna." Af svo búnu skipar hann hesti sínurn Sleipni að stíga ofan á Halta Hjalta. Hleypur Hjalti þá undan, en eigi sleppur Hjalti svo gjörla því að Sleipnir eltir og stígur niður, kremst þá Hjalti til bana. Upp frá þessu ríkti friður milli kristinni og heiðinna í Öxarfirði en staður sá er Sleipnir kramdi Hjalta á er í dag nefndur Ásbyrgi. Höllín undir hólnum Fyrir langa löngu, áður en mannfólkið kom til landsins, bjuggu um 7000 álfar í risastórri höll við Öxarfjörð. Álfarnir þræluðu við að rækta landið. Álfarnir löbbuðu á hverjum degi niður stíg til að ná í vatn til þvottar og matargerðar. Einn daginn þegar þeir voru á leiðinni til að ná í vatn sáu þeir eitthvað ljótt sem þeir höfðu aldrei séð áður. Þeir hlupu í höllina og földu leiðina þangað. Þegar þeir komu til baka boðuðu þeir fund. Á fundinum sögðu þeir frá því sem þeir höfðu séð. Þeir sögðust hafa séð stórt, ljótt og loðið tré sem labbaði. Þeir urðu svo hræddir að þeir földu höllina með gróðri, þannig að stóra og Ijóta tré myndi ekki finna þá. Mennirnir, sem eru þetta stóra ljóta tréð hafa náð yfirráðum yfir firðinum. Álfarnir verða alltaf að smíða fleiri og fleiri vopn, af því að mönnunum er alltaf að fjölga. Ef þið farið upp á hólinn og verðið þæg og góð og hlustið vel, þá heyrið þið kannski í þeim vinna. (Höf: Enar Magnús, Linda, Dagný, Eyjólfur, Harpa, Sigurður Ægir, Bragi, Hrönn, Arnar, Þorbjörn, Margrét Fríða og Berglind. Skráð í sumarbúðum UNÞ í júní 1996) 18 Skinfaxi

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.