Skinfaxi - 01.05.1996, Page 16
HITT & ÞETTA
—-------;---------T-----------------
Nýr byltingarkenndur 10 goð ráð
sundfatnaður frá Speedo
(stóra mvndin) Elín Sigurðardóttir, S.H., setti íslandsmet í 50 m. skriðsundi, í skálmasíðum
Aquablade sundbol og tryggði sér um leið þátttökurétt á OL í Atlanta.
(innsetta mvndin) Matte Jacobsen frá Danmörku setti fyrir nokkru glæsilegt Norðurlandamet
í 50 m. bringusundi, í nýjum Aquablade sundbol
Aquablade nefnist nýr sundfatnaður
frá Speedo úr efni sem veitir minna
viðnám í vatni en áður hefur þekkst í
sundfatnaði. Samkvæmt óháðum
rannsóknum Dr. Bodo Ungerechts við
Ruhr háskólann í Bochum í Þýskalandi
hefur þetta nýja efni 23% rninni
vatnsmótstöðu en það efni sem mest
hefur verið notað í keppnissundfatnaði.
Arangur í sundíþróttinni mælist í
nokkrum hundruðustu úr sekúndu. I
slíkum tilfellum getur sundfatnaðurinn
skipt sköpum.
Margir af fremstu sundmönnum heims
hafa nú þegar bætt árangur sinn í
Aquablade og víst er að Aquablade
verður áberandi í sundhöllinni á
Ólympíuleikunum í Atlanta. Islensku
keppendurnir, Elín, Eydís og Logi hafa
fengið Aquablade sundfatnað og munu
keppa í honum í Atlanta
Aquablade er trompið frá Speedo. Nú
þegar er það opinbert að með Aquablade
hefur Speedo stungið aðra
sundframleiðendur af, í framleiðslu á
keppnissundfatnaði.
Aquablade sundfatnaður kemur á
markað í haust. Rétt er að geta þess að
hann er mun dýrari en almennur
sundfatnaður
Fréttatilkynning frá TÓ ehf
l>(if) er börnum mjöy
mihilvœyí tiú foreldrar
síandi með þeim oy hvetji
þttu áfram í hverju því
sem þau taka sér fyrir
hendur. Börnin líta upp
til foreldra sinna9 athyyli
þcirra er þeim mjöy
mikilvtvy oy eitt
hvatninyarorð yetur
hjuryuð dcyinum. Lítum
aðeins á 10 yóð ráð fyrir
foreltlra harna sem stunda
íþróttir:
1. Komdu á æfingu eða keppni þegar
þú getur. Barninu finnst það
skemmtilegt.
2. Hvettu alla, ekki eingöngu barnið
þitt.
3. Sýndu jákvæðni í meðlæti jafnt sem
mótlæti - ekki gagnrýna.
4. Berðu virðingu fyrir þjálfaranum -
ekki gagnrýna hann rneðan á leik
stendur.
5. Dómarinn er til að leiðbeina og
framfylgja reglum, ekki gagnrýna
hann meðan á leik stendur.
6. Hvettu barn þitt til að taka þátt í
æfingum og keppni. Ekki beita
þrýstingi.
7. Spurðu barnið þitt að keppni
lokinni hvort hafi verið gaman en
ekki eingöngu um úrslit?
8. Útbúðu barnið rétt og
skynsamlega. Engan íburð!
9. Berðu virðingu fyrir starfi félagsins.
Veittu stuðning þinn sem foreldri.
10. Mundu að það er barnið sem er
þátttakandi, EKKI ÞÚ!!!
16 Skinfaxi