Skinfaxi - 01.05.1996, Blaðsíða 22
kWHSl'VKYV
-----▼-----
Nær KR iíjks
al sftoppa IA
Það er orðið ansi langt síðan KR-ingar hafa
hampað Islandsmeistaratitlinum í knattspyrnu
en 1996 gœti verið ár þeirra röndóttu. Lúkas
Kostic virðist vera að gera góða hluti og eina
liðið sem virðist geta komið í veg fyrir að KR
sigri er lið Guðjóns Þórðarsonar, IA.
ÍA
Siggi Jóns er farinn! Arnar og Bjarki eru
farnir! Nú hlýtur Skagaveldið að dala.
IA hefur unnið 1. deildina í knattspyrnu
undanfarin ár og það virðist engu máli
skipta hvaða leikmenn yfirgefa liðið því
nýjir knattspyrnumenn virðast koma á
færibandi á Skaganum. Oli Þórðar,
Alexander Högnason og Oli Adolfs eru
nú burðarrásir í annars geysisterku liði
Skagamanna sem stjórnað er af Guðjóni
Þórðarsyni. ÍA hefur leikið betur en þeir
eru að gera í dag en leikreynsla þeirra á
eftir að koma sér vel í seinni umferðinni
þegar baráttan við KR-inga fer að
harðna.
KR
Það er orðið ansi langt síðan þetta
stórveldi í vesturbænum hampaði
íslandsmeistaratitlinum í knattspyrnu I
gegnum tíðina hafa „bestu"
knattspyrnumenn landsins reynt fyrir sér
hjá KR en alltaf hefur blandan verið
eitthvað vitlaus. I ár stjórnar Heimir
Guðjónsson miðjunni vel og með þá
Ríkharð Daðason og Guðmund
Benediktsson frammi er liðið
stórhættulegt. KR-ingar hafa sýnt það í
fyrri umferðinna að þeir geta farið alla
leið en leikreynsla þeirra er ekki eins
mikil og Skagamanna og því verður 2.
sætið þeirra í ár.
ÍBV
Eftir eftirminnilegt sumar í fyrra hafa
Eyjamenn ekki fundið taktinn í ár.
Landsliðsmaðurinn Hlynur Stefánsson
sneri heim úr atvinnumennsku og
Kristinn Hafliðason og Nökkvi
Sveinsson styrktu leikmannahópinn.
IBV eru komnir í undanúrslit í bikarnum
en eftir nokkra tapleiki í röð í deildinni
keppa þeir aðeins að Evrópusæti í ár.
Leiftur
Þetta var fjórða liðið sem búist var við að
blandaði sér í toppbaráttuna en eins og
IBV hefur þeim ekki tekist að finna
taktinn. Daði Dervic og Lazorik gengu (
báðir í raðir Leifturs fyrir tímabilið sem
hefur mjög fáa uppalda leikmenn í liði
sínu. Leiftur féll út úr bikarnum í 16 liða
úrslitum og nú keppa þeir við IBV um
Evrópusæti.
Stjarnan
Þeir komu upp úr 2. deild og virðast nú
loksins ætla að halda sæti sínu þar.
Helgi Björgvinsson kom frá Keflavík og
styrkir hann vörn liðsins verulega.
Valdimar Kristófersson er í betra formi
en oft áður og liðið er þegar á góðri leið
með að ná takmarki sínu sem var að
sögn Valdimars að halda sér í deildinni.
Botn baráttan
Grindavík, Breiðablik, Keflavík, Fylkir
ogValur berjast öll á botninum og það
verður ómögulegt að sjá fyrir hvaða tvö
lið leika í 2. deild á næsta ári. Valur og
Breiðablik hafa leikmannahóp til að
standa sig betur en þessi lið hafa ekki
náð sér á strik í sumar. Lið Keflavíkur
hefur átt í vandræðum með meiðsli og
Kjartan Másson hefur þurft að nýta
leikmannahóp sinn til hins ýtrasta í
sumar. Fylkir og Grindavík virðast í
fljótu bragði vera máttlausustu liðin í
deildinni og ef þau taka sig ekki á eru
þau líklegustu til að spila í 2. deildinni
að ári.