Skinfaxi - 01.05.1996, Side 37
óvart í deildinni í sumar?
„Mér finnst gaman að sjá IBA vera að
standa sig vel og þær hafa verið að reyta
stig af þessum liðum sem áttu að veita
okkur mestu samkeppnina. Síðan hef ég
trú á IBV - það eru góðar stelpur í því
liði og mér finnst þær eiga að geta meira.
En er þetta ekki slæmt fyrir deildina
þegar eitt lið stingur svona af?
„Það kæmi án efa fleiri áhorfendur ef
deildin væri jafnari - það segir sig alveg
sjálft. Það er líka
mikið talað um það
að deildin sé búin en
við hjá Breiðablik
vitum það vel að
deildin er ekki búin
og margt getur
breyst í heilli
umferð."
Hvernig „peppið"
þið ykkur upp fyrir
leiki á móti þessum
lakari liðum sem þið
vinnið með allt að 10
marka mun?
„Þá reynum við
bara að halda
einbeitingu og
pössum okkur að
detta ekki niður. Ég
held að það bitni
helst á landsliðinu,
þegar við höfum
verið að spila á móti
slökum liðum í
deildinni komum við
illa undirbúnar í
alþjóðlega leiki og
erum kannski að
tapa þar sem við
erum ekki í nægilega
góðu formi"
Má búast við því
að einn daginn verði
kvennadeildin jöfn
og spennandi?
„Það eru alltaf
koma fleiri og fleiri
efnilegar stelpur í
deildina og það er orðið áberandi að
fleiri lið hefja uppbyggingu fyrr. Það
hafa til dæmis aldrei verið stelpur úr
fleiri liðum í 16 ára landsliðinu heldur en
í dag og nú eru þær farnar að koma frá
fleiri stöðurn á landinu. Oftast hefur
Breiðablik verið að senda svona fimm,
sex stelpur en í ár eru þær bara tvær og
ég held að það sé bara jákvætt."
Er eitthvað hægt að gera til að gera
deildina jafnari - mætti til dæmis
fækka liðunum?
„Ég held að deildin yrði miklu áhuga-
meiri ef fyrirkomulaginu yrði breytt og
VIÐTAL
-----------T-------------
liðunum yrði fækkað. Það mætti til
dæmis fækka liðunum í sex og spila þá
tvöfalda umferð. Ég held að það yrði
öllum til góða að fækka liðunum því þá
fengju toppliðin að keppa innbyrðis og
leikirnir yrðu meira spennandi á meðan
lakari liðin þyrftu ekki að þola öll þessi
stóru töp. Þessi lið sem eru í
fallbaráttunni hafa örugglega ekkert
gaman af því að keppa við lið eins og
Breiðablik og þurfa kannski að ná í
boltann 10 sinnum í netið hjá sér."
Ef maður lítur á þessi unglingamót
fyrir stelpur eins og Gull og silfurmótið
og Pæjumótið þá virðist Breiðablik
alltaf næla í flest gullin - hvað veldur
þessu?
„Ég held að við séum bara komnar
skrefinu lengra en önnur lið. Upp-
byggingin sem er að byrja um land allt í
dag byrjaði hjá okkur fyrir mörgum
árum og við erurn enn að hagnast á því.
Við erum líka yfirleitt með miklu meiri
fjölda af stelpum sem koma og æfa hjá
okkur en hjá hinum liðunum á stór-
Reykjavíkursvæðinu, þar af leiðandi
höfum við úr meiru að vinna."
Hvað er að gerast hjá kvenna-
landsliðinu í dag?
„Við eigum leik við Rússa 17. ágúst og
ef við vinnum hann erum við komnar í
úrslit."
En hvernig stendur Breiðablik
getulega gegn liðum frá Evrópu?
„Við höfum tvisvar farið og tekið þátt í
Norðurlandamótum þar sem við höfum
staðið okkur
ágætlega.
Síðast fórum
við til Noregs
og stóðum
okkur alveg
ágætlega - við
náðum jafntefli
við norsku
meistarana en
töpuðum fyrir
þeim dönsku.
Það verður að
hafa í huga að
þessi lið eru
bæði mjög
sterk og þetta
eru þjóðir sem
eru lengra
komnar en við í
kvenna-
knattspyrnu."
Að lokum,
nú var greint
frá því nýlega í
dagblöðum að
þú værir á
leiðinni út í
nám. Ert þú á
förum frá
Breiðabliki?
„Ég hef nú
ekkert ákveðið
ennþá en ég er
bæði að skoða
Bandaríkin og
Þýskaland. Ef
ég fer til
Bandaríkjanna
mundi ég örugglega spila hérna heima á
sumrin svo ég er ekkert á förum frá
Breiðablik."
Asthildur Helgadóttir og félagar hjá
Breiðabliki hafa haldið sigurgöngu sinni
áfram í deildinni allt frá því viðtalið var
tekið og því ekkert sem bendir til þess að
þær verði stöðvaðar í ár. Það verður
hins vegar gaman að sjá hvort Asthildur
nær að tryggja sér fyrsta bikarmeistara-
titil sinn á ferlinum í ár, en eins og fram
kemur í viðtalinu hefur hún 17
íslandsmeistaratitla en enga bikartitil.
hef nn ekkert ákveðið eniiþá
en éj! er bæði ail skmla
Bandaríkin iijj Kskalanil
Skinfaxi 37