Skinfaxi - 01.05.1996, Blaðsíða 38
pillugums eSa eiffhvað gletfilega ófengt eigi eftir að redda
einhverjum ákveðnum sálrænum „krísum" og í nær 100% tilvika
endar það bara í einhverri helvítis eftirsjá. Eg nenni bara ekki að
standa i því. En aðalástæðan fyrir því að ég reyki ekki, drekk
ekki og get ekki einu sinni drukkið kaffi, er sú að ég þekki svo
mikið af fólki sem hefur farið til fjandans á þessu og þeirra líf
gengur út á
það að reyna
að hætta og
reyna að
hætta og
reyna að
hætta. I þetta
fer ofsalega
mikil orka sem
ég tími bara
ekki að
missa. Eg
held því að
það
gáfulegasta
sem ég hef
gert er að
læra af
mistökum
annarra og
þess eru mistök
annarra og ég
nenni ekki að fara
að tyggja einhvers
annars tyggjó."
Hefur þú þá ekki
einu sinni prófað
áfengi?
„Eg tékkaði auðvitað á
einhverjum pökkum þegar ég
var svona sautján ára gamall en
ég er líka svo heppinn að því
leytinu til að ég er algjör hænuhaus.
Ef ég finn lyktina af malti þá er ég
dauður og að því leytinu til getur líkami
minn þetta ekki."
Nú hefur þú ferðast mikiö um
heiminn, hvernig eru Islendingar
öðruvísi en einstaklingar í öðrum þjóð-
félögum. Eiga þeir t.d. erfiðara með að
tjá sig?
„Islendingar eru ekkert meira lokaðir en gengur og
gerist. Úti í hinum stóra heimi elst fólk upp við a
aðrar aðstæður og ef við tökum sem dæmi
sígarettur og áfengi þá elst fólk upp við
áfengis- og sígarettuauglýsingar og þar
af leiðandi verða þessi efni miklu
minna tabú heldur en hér
heima. (innskot
blaðamanns: Hérna er
Palli farinn að svara
einhverri allt annari
spurningu en við
látum hann bara
halda áfram}. Eg
vil meina að með því
banna auglýsingar á
og sígarettum erum við að gera þettaTI^^BlTÍ meira spennandi
hlut fyrir einmitt krakka til að tékka á. Ef ég fengi að
ráða myndi ég fyrst og fremst feisa það að áfengi sé hér á
svæðinu og byrja á að prómótera það sem slíkt og þá fyrst gæti
fólk farið að drekka eins og manneskjur. Ég er sko ekkert að
segja einhverjum vínökrum stríð á hendur eða einhverjum
kókaínplöntum. Þetta er til staðar hérna á jörðinni og við verðum
að taka því sem hluta af okkar vistkerfi og ég get ekkert farið að
sporna við því. Það er hins vegar hægt að sporna við því
hvernig fólk notar þetta. Eg heyrði til dæmis mjög fína uppá-
stungu um daginn, það er einhver, einhver - nú man ég það ekki
en það er einhvers sfaðar í Suður-Ameríku sem þeir vilja láta
lögleiða eiturlyfjastarfsemina. A meðan hún er ekki lögleg er það
eina sem gerist að einhver einstaklingur græðir á sölunni og öll
glæpastarfsemi verður mun meiri. Eg er dálítið sammála þessu en
þetta er það byltingarkennd hugmynd að það er ákveðið fólk úti í
bæ sem fríkar út yfir svona hugmyndum og er þá kannski að fríka
út yfir einu lausninni. Ef ég á að segja alveg eins og er held ég
að það skipfi engu máli hversu mikið við tyggjum einhverjar
forvarnir og forvarnir ofan í liðið því þær duga ákaflega skammt
á meðan þefta er allt svona ógeðslega spennandi."
En af hverju heldur þú ab unglingar allt niður í tólf
ára séu ab byrja ab nota vímuefni?
„Það er fyrst og fremst ógeðslega spennandi að vera unglingur og
það er miklu meira spennandi að vera unglingur í dag en t.d.
fyrir fjórtán árum. I dag er miklu meira gert fyrir unglingana og
þeir eru miklu meira markaðssettir. Þá á ég við að nú eru
sjónvarpsþættir búnir sérstaklega til fyrir þennan hóp, það eru
heilu útvarpsstöðvarnar sem stíla inná krakkana, hljómsveitir eru
fluttar inn fyrir þá og allt þetta kallar á það að unglingurinn er
orðinn rosalega mikilvægur hlekkur í allri markaðssetningu. I
markaðssetningunni heillast unglingurinn fyrst og fremst af því sem
er hipp og það sem er ekki hipp kemur ekki til greina. Þegar
hippnesið kemur upp í sambandi við E-ið og allt það, kallar
það á ofsalega kraftmikla þróun sem erfitt er að sporna við.
Maður getur ekki stoppað unglinginn frá því að kaupa til
dæmis pox vegna þess að það er hipp og að sama skapi
getur maður ekki stoppað unglinginn frá því að kaupa sér
E-töflu - ef hann vill nálgast þetta stöff þá gerir hann
það. Málið er þvl kannski að reyna að gera E-ið eins
un-hipp og hægt er. Við skulum líka aðeins feisa það
að það er líka til tískudóp, diskótímabilið fór í
gegnum rosalegt kókæði og E-töflurnar eru bara
ákveðinn hlekkur í tískunni. Við verðum bara
aðeins að faðma að okkur tískuna, þú veist -
hei - halló - og fatta það að tískan er alltaf að
stríða okkur og við verðum bara að
fyrirgefa tískunni þegar hún hefur gabbað
okkur út í allskonar hluti. Kíktu bara í
eitthvað Samúelblað frá árinu 1984
og þú munt arga af hlátri og ég er
að vonast til að fólk eigi eftir að
arqa jafn mi kið af 1 996 oq E-inu
árið 2022."
Verbur þú mikib var vib
fíkniefni?
„Nei! Það er það sem
ég er til dæmis svo
hissa á að ég hef
bara aldrei
rekist á
neinn
sem
flokkast
undir ... hvað get ég sagt ... á mínum tónlistarferðalögum, innan
gæsalappa, um allt land þá hef ég ekki rekist á neinn sem er
bersýnilega á E-i. Eg hef kannski oftar rekist á einhverja sem eru
38 / SkinfaxI
UMFÍ