Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.05.1996, Blaðsíða 46

Skinfaxi - 01.05.1996, Blaðsíða 46
E-töflur til eflingar bindindis og heilsu E-taflan í viðtali Hvað heitir þú? Félagar mínir kalla mig ýmsum nöfnum en mér líkar best viö a& vera kölluð alsæla eða r r Love því þaö ! er svo jókvætt. Hvað ertu gömui? Ég er ansi gömul en hitt er annaö mól aS fyrstu ár ævinnar fór líti& fyrir mér en nú er ég ekkert smá vinsæl. Áttu þá mikið af vinum? Ég á vini í milljónatali en þa& versta er a& flestir þeirra fá fljótt leiS á mér og fara jafnvel a& hata mig. Af hverju fara þeir að hata þig? Þa& er a&allega vegna þess að ég vil alltaf vera úti að skemmta mér og þeir þola ekki álagið. Hvar þykir þér skemmtilegast að gera? Ég þarf alltaf að vera á ferðinni, helst dansandi eða hlaupandi. Ég þoli mjög illa að sitja heima e&a vera kyrr og helst vildi ég aldrei þurfa a& sofa. Uppáhaldsdrykkur? Vatnið er nauð- synlegt fyrir mig ef ég á að halda lífi. Hvert finnst þér þá skemmtilegast að fara og skemmta þér? Ég get ekki sagt það því þá fyllist staðurinn af lögreglu- mönnum. Áttu í einhverjum útistöðum við lögguna? Já, ég hef nú víst valdið einhverjum dauðsföllum hér og þar í heiminum og fólk virðist eitthvað pirrað yfir því eins og það sé eitthvert voða mál. Voru þetta þá vinir þínir sem þú drapst? Já, sumt fólk virðist bara ekki þola mig. Ætlarðu að vera lengi á Islandi? Það eru alltaf einhverjir karlar sem fara út í heim og borga stórpening svo ég komi til Islands og á meðan þeir borga verð ég hér. 46 / SkinfaxI UMFI

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.