Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.05.1996, Blaðsíða 12

Skinfaxi - 01.05.1996, Blaðsíða 12
I Margir sem þunglyndir Sjúkrahúsi Reykjavíkur er starfrækt ■I áfailahjólp en þegar orðið áfallahjálp ber á l.'íjmi góma dettur kannski flestum í hug snjóflóð MlH e&a annaö þess háttar. Það eru kannski færri sem átti sig á því að i áfallahjálpinni er líka verib að glíma við afleiðingar fíkniefna eins og á svo mörgum öðrum stöðum i þjóðfélaginu, en hverjir leita til áfallahjálpar? Blaðamaður Skinfaxa fór og hitti Rögnu Gústafsdóttur hjá áfallahjálpinni og fékk meðal annars svar við þeirri spurningu. „ÞaS hefur or&iS mikil aukning á því hversu margir leita til okkar og allir sem lent hafa í miklu áfalli og ef við tengjum það við fíkniefni þá eru mjög margir sem leggjast í þunglyndi eftir fíkniefnanotkun og hafa þá nærri því or&ið sjálfum sér eða öðrum að voða. Þetta fólk getum við flokkað undir þessa áfallahjálp og það er alveg geysilegur fjöldi sem kemur hingað inn til okkar." Hvað gerið þið fyrir þetta fólk sem leitar til ykkar? „Við erum með hóp sem starfar við áfallahjálpina og það eru hjúkrunarfræðingar, geðdeild, prestar og fleiri aðilar sem koma >að hinum ýmsu málum. Þetta byggist auðvitað allt á þvi hvert málið er og hvaða hjálp einstaklingurinn þarf á að halda. Þessi hjálp þarf ekki alltaf að fara fram hérna heldur förum við vinnustaði, í skóla eða eitthvert annað út i þjóðfélagið. ijög mikið hringt og beðið um áfallahjálp en sumt fólk og heldur að hér sé um að ræða hjálp við öllu. fólki auðvitað alltaf og þá erum við með er best að leita fyrir þá sem við getum krakkar leiti til ykkar? ekki margir hingað í áfallahjálpina en það koma hins vegar margir hingað á spítalann um hverja helgi. Þá eru það krakkar sem hafa verið eitthvað að fikta með eiturlyf og oft á tíðum eru lyfin svo mikið blönduð einhverjum óþverra að krakkarnir verða veikir og eru oft á tíðum mjög hræddir um að þeir séu jafnvel að deyja. Þegar þessir krakkar koma inn reynum við að gera þeim grein fyrir því að þeir verði nú að hugsa sitt mál og svo bendum við þeim á leiðir út úr vandanum." Hvað eru þetta gamlir krakkar? „Við fáum krakka alveg niður í 1 3 ára sem eru annaðhvort undir áhrifum einhverra fíkniefna eða eru ofurölvi niður í bæ þegar þeir eru teknir af lögreglunni. Lögreglan þorir ekki að láta þá i steininn þar sem þetta eru yfirleitt skilríkjalausir krakkar og koma þá í staðinn með þá til okkar þar sem þeir eru undir eftirliti þar til rennur af þeim." Hvenær er einstaklingur það langt leiddur að hann þurfi að leita sér hjálpar? „Því er erfitt að svara en ég held að einstaklingur sem er farinn að missa stjórn á skapinu og neyslunni og í rauninni þeir sem eru farnir að neyta fíkniefna ættu að leifa sér hjálpar." UMFÍ

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.