Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.12.2001, Blaðsíða 4

Skinfaxi - 01.12.2001, Blaðsíða 4
42. sambandsþing UMFÍ Eftirfarandi tillögur voru samþykktar á 42. sambandsþingi UMFÍ: 42. sambandsþing UMFÍ haldið 20.-21. október 2001 í Stykkishólmi samþykkir að: fela stjórn UMFÍ að hefja viðræður við ISI um heildarendurskoðun á skipu- lagi og hlutverki íþrótta- og ungmenna- hreyfinganna, UMFI og ISI, með það að markmiði að hámarka með öllum tiltæk- um ráðum skilvirkni og hagkvæmni í rekstri þessa málaflokks, en þó þannig að ekki sé gengið á gæði starfsins. Stjórn UMFI skal í þessu skyni skipa formlega nefnd forystumanna úr grasrót hreyf- ingarinnar sem standi að þessum viðræðum og skili tillögum til næsta sambandsþings UMFI. Sambandsþingið fagnar þeim áhuga sem IBR og IBH hafa sýnt með umsóknum sínum um aðild að samtökunum. Skal nefndin í störfum sínum meðal artnars hafa í huga um- sóknir ÍBR og ÍBH en afgreiðslu þessara umsókna er frestað þar til tillögur nefndarinnar liggja fyrir. Stjórn UMFI er heimilt, sbr. 5. grein laga UMFÍ og sé það í samræmi við niðurstöðu nefndar- innar, að samþykkja inngöngu IBR og ÍBH í UMFÍ með fyrirvara um staðfest- ingu sambandsþings. Samþykkt var að opna Unglinga- landsmót UMFI öllum börnum og unglingum á aldrinum 11-16 ára. Næsta Unglingalandsmót fer fram í Stykkis- hólmi dagana 2.-4. ágúst 2002. Einnig var samþykkt að færa fram- kvæmd átaksverkefna í auknum mæli út á land. Samþykkt var að fela stjórn UMFI að leggja af stað í forvarnarherferð sem beinist gegn notkun „munntóbaks". Göngudagur f j ölskyldunnar Göngudagur fjölskyldunnar fór fram helgina 6. og 7. október s.l. Alls fóru fram um það bil 50 göngur víðsvegar um landið og tók mikill fjöldi manns þátt í þessum göngum. Göngurnar voru miserfiðar, allt frá léttum innanbæjargöngum upp í erfiðar fjall- göngur. Fjölmargar göngur fóru fram undir fararstjórn kunnugra einstak- linga. Þessir leiðsögumenn fræddu þátttakendur um sögu, náttúrufar og menningu hvers staðar. Þar sem leiðsögumenn voru ekki með í för er samt ekki hægt að segja annað en að þátttakendur hafi fengið holla hreyfingu í faðmi náttúrunnar. Göngudagurinn var að þessu sinni samstarfsverkefni Ungmenna- félags Islands, Landssamtaka áhugafólks um flogaveiki (LAUF) og Landsvirkjunar. Þrjár göngur fóru einmitt fram á virkjanasvæðum Lands- virkjunar. Forseti íslands, herra Ólafur Ragnar Grímsson, setti verkefnið formlega í Þrastarskógi sunnudaginn 7. október og gekk með þátttakendum um skóginn. Skógurinn er náttúruperla sem allir ungmennafélagar, sem og aðrir landsmenn, ættu að kynna sér næst þegar þeir eiga leið hjá. Happdrætti fór fram í tengslum við Göngudaginn. Fimm heppnir þátttak- endur hlutu 20.000 króna inneign í útivistarversluninni Everest í Skeif- unni. Vinningarnir voru afhentir í nóv- ember í Everest. Eftirtaldir hlutu vinninga: Gunnar Þorleifsson, Þórshöfn Hlín Sigmarsdóttir, Borgarnesi Þóra Þorgrímsdóttir, Selfossi Hrefna Sigurgeirsdóttir, Reykjarhlíð Rögnvaldur Bergþórsson, Reykjavík. Göngudagur fjölskyldunnar er skemmtileg hefð sem mikilvægt er að ungmennafélögin standi vörð um. Fyrsti Göngudagur fjölskyldunnar var haldinn hátíðlegur í júní 1980. Ungmennafélag Islands stóð fyrir honum. Þátttakan var strax góð og efldist verkefnið því mjög næstu árin. A níunda áratugnum voru haldnir margir Göngudagar og má áætla að hálf þjóðin hafi tekið þátt í þeim. Síðustu ár hafa ekki verið haldnir göngudagar á landsvísu en mörg félög hafa viðhaldið hefðinni upp á eigin 'spýtur. Sambandsþingið væntir þess einnig að ríkis- stjórn íslands stórauki fjárframlög til íþrótta- og ungmennafélagshreyfingarinnar. Þetta er aðeins brot af þeim tillögum sem samþykktar voru á þinginu. Á þinginu færði nýkjörinn formaður Þóri Jónssyni, fyrrverandi formanni UMFÍ, mynd að gjöf sem þakklætisvott fyrir mikið og fórnfúst starf í þágu hreyfingarinnar. Þakklætiskveðj a til UMFÍ Þessi grein birtist í Velvakanda, fréttablaði Umf. Vöku fyrir skömmu. í októbermánuði var haldið alveg hreint geysifjörugt dansnámskeið hér í sveit. Á námskeiðið voru mætt 7 ung danspör og lærðu þau gömlu dansana undir handleiðslu Sigríðar Sæland frá Selfossi. Dansnámskeiðið tókst í alla staði vel og voru allir sem tóku þátt í því ánægðir með að hafa lært grunnsporin í öllum helstu dönsunum. Kom þetta sér mjög vel þegar grípa þurfti í dansskóna á hinu magnaða Kornskurðarballi. Þátttökugjaldið á námskeið- ið var með hinu lægsta móti og svo styrkti Ungmennafélagið félaga um 1000 kr. Hér með vil ég koma þakklætiskveðju til Ungmennafélagsins og sýnir félagið hér enn og aftur að það er tilbúið að styðja við bakið á allri starfsemi innan þess. Án efa verður haldið annað eins námskeið innan fárra ára en þangað til.. Ungmennafélagskveðja Hulda Kristjánsdóttir, formaður skemmtinefndar Ný stjórn UMFI 42. sambandsþing UMFÍ sem haldið var í Stykkishólmi dagana 20. - 21. október var nýr formaður, Björn B. Jónsson kosinn og ný stjórn UMFÍ kosin til næstu tveggja ára. Athygli vekur hversu jöfn kynjaskiptingin er í stjórninni, en fimm eru af hvoru kyni í stjórn UMFÍ fyrir utan formann. Neðangreindir skipa nýkjörna stjórn: Björn B. Jónsson HSK, formaður, Helga Guð- jónsdóttir HSK, varaformaður, Sigurbjörn Gunnarsson Keflavík, gjaldkeri, Ásdís Helga Bjarnadóttir UMSB, ritari, Anna R. Möller UMSK, Hildur Aðalsteinsdóttir UMSE, Sigurður Viggósson HHF. Varastjórn: Kjartan Páil Ein- arsson HSH, Kristín Gísladóttir HSK Svanur M. Gestsson UMSK og Birgir Gunnlaugsson Umf. Fjölnir

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.