Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.12.2001, Blaðsíða 21

Skinfaxi - 01.12.2001, Blaðsíða 21
ekki fallið með okkur það sem af er. Það virðast allir geta unnið alla í deildinni og vonandi fellur eitthvað okkar meginn eftir áramót. Það er vonandi að við náum að rétta okkar hlut." Búinn að stjórna mér allt mitt líf En er ekki dálítið sérstakt að fá kar- linn til að stjórna sér Ragnar? „Nei, alls ekki. Hann er búinn að stjórna mér allt mitt líf þannig að þetta er ekkert nýtt fyrir mig. " En þið eruð með ungt lið sem á framtíðina fyrir sér? „Já, það er engin spurning. Við erum með mjög ungt lið og byggjum á heimamönn- um. Það eru ekki nema tveir að- komumenn með okkur. Ég gæti trúað að meðalaldurinn sé 18 ár þannig við við eigum eftir að þroskast mikið. Það er því björt framtíð hérna á Selfossi," segir Ragnar. Hvað með gengi ykkar í 11. flokki í vetur? „Okkur hefur gengið ágæt- lega þar. Það eru búin tvö mót og við höfum lent í öðru sæti í þeim báðum. Það er ásættanlegt en við leikum í A- riðli. Það skiptir síðan öllu máli að vinna síðasta mótið en þá keppa þau fjögur lið sem verða í A-riðli til úrslita um íslandsmeistaratitilinn. Því skiptir öllu máli núna að halda sér í A-riðli og passa sig að detta ekki niður í b-riðil," segir ívar. Er karfan vinsæl á Selfossi? „Nei, ekki nógu vinsæl. Flestir krakkarnir fara í handboltann eða fótboltann." Segir Ivar Þrátt fyrir að þið hafið verið að ná góðum árangri í yngri flokkunum? „Já, það er svo margir sem detta út úr körfunni þegar þeir eldast. I okkar flokki erum við t.d. ekki nema sjö í kjarnanum og svo eru aðrir sem koma og fara. Þegar við vorum yngri þá voru mikilu fleiri að æfa með okkar." Segir Ragnar Hafið þið leikið með yngri lands- liðum Islands? „Já, við fórum til Svíþjóðar í fyrra með drengjalands- liðinu og kepptum í undankeppni fyrir Evrópumótið. Það gekk ekkert sérstaklega vel og við töpuðum öll- um leikjunum nokkuð stórt nema á móti Svíum." Segir Ragnar. ívar þú ert tæpir 190 cm á hæð og ekki nema 16 ára. Hvað ertu eiginlega að setja ofan í þig? „Ekkert sérstakt. Maður blandar saman sjoppu- fæðinu og matnum hjá mömmu. Maður er í þessu rusl fæði í skólanum en fær síðan almenni- legan mat þegar maður kemur heim." En þurfa ekki svona ungir og upprennandi stjömur eins og þið að hugsa vel um mataræðið ef þeir ætla sér að ná langt? „Jú, ég held að það sé nauðsynlegt að við förum að breyta mataræð- inu eitthvað," segir Ivar. Eigið þið ykkur einhverja uppáhaldsleikmenn í körfunni hérna heima og úti? „Já, Jón Arnór Stefánsson í KR er í miklu uppáhaldi hjá mér og Scottie Pippen, Portland er frábær leikmaður. Það er bara verst hvað hann er í lélegu liði," segir Ragnar og ívar lætur í ljós sína skoðun: „Jón Arnór er góður en ég líka hrifinn af Loga Gunnarssyni hjá Njarðvík og svo er Iverson hjá Philadelphia góður." og auðvitað stefnum við á landsliðið. Svo væri spennandi að komast í atvinnumenn- skuna. Við eru reyndar á leiðinni til Band- aríkjanna í skóla næsta haust. Við förum í gegnum skiptinemasamtök sem koma okkur inn í skóla þar sem körfuboltinn er vinsæll," segir ívar. Þannig að það er karfan sem dregur ykkur út en ekki skólinn? „Já, við höfum mikinn áhuga á að leikia erlendis. Okkur langar til að sjá hvernig þetta er þarna úti og reyna að meta hvar við stöndum. Það hefur sýnt sig að þeir sem hafa farið erlendis hafa bætt sig í körfunni og við vonumst eftir að gera það sama. Það er staðið miklu betur að körfunni þarna úti og möguleikarnir því meiri. Við erum einnig að horfa í það að geta fengið styrk til frekari náms í háskóla því þjálfararnir í skólunum reyna stöðugt að koma sínum leikmönnum að í háskólunum," segir ívar. Hvaða kosti þarf körfuboltamaður að hafa til að vera í fremstu röð? „Það er margt t.d. þarf hann að vera sterkur, fljótur, hafa góða tækni og skilning á leiknum," segir Ragnar Þið búið náttúrulega við alla þessa kosti? „Ég segi það ekki en við erum að vinna í þeim og reyna að bæta þá," segir Ragar. Stefnan sett á landsliðið Hver er draumurinn hjá svona ungum strákum? „Það er fyrst og fremst að leika í úrvalsdeildinni Þannig að þið stefnið á atvinnumenn- skuna? „Já, það er engin spurning. Við stefnum á að að reyna að komast að í Evrópu til að byrja með að minnsta kosti. Reyndar þurfum við fyrst og fremst að hugsa um að mennta okkur því það er ekki gefið að maður komist í atvinnumennsku- na. Við erum því ekki tilbúnir til að fórna skólanum fyrir körfuna," segir Ragnar. Og að lokum. Hvor er betri í körfubolta? „Það er engin spurning," svara þeir í kór og láta þar við sitja.

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.