Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.12.2001, Blaðsíða 7

Skinfaxi - 01.12.2001, Blaðsíða 7
Patrekur Jóhannesson atvinnumaður í handknattleik Ungmennafélaginn og handknattleiks- maðurinn Patrekur Jóhannesson hefur farið mikinn í liði Essen þar sem af er vetri. Patti gerðist atvinnumaður með félaginu árið 1996 og hefur leikið þar síðan. Hann er meðal markahæstu manna deildarinnar og hlotnaðist sá heiður fyrir tímabilið að vera gerður að fyrirliða lið- sins. Honum líður vel í Essen en þar býr hann í góðu yfirlæti ásamt konu sinni Rakel Onnu Guðnadóttur listnema, syni þeirra Jóhannesi Damían og fóstursyni sínum Braga Baldurssyni. Valdimar Kristófersson sló á þráðinn til Patta og ræddi við hann um atvinnumennskuna og hugsanlega möguleika landsliðsins á Evrópumótinu í Svíþjóð sem hefst 25. janúar á næsta ári, en Island leikur í riðli með Spáni, Sviss og Slóveníu. Það er mikill heiður fyrir mig að vera fyrirliði hjá svona stóru félagi Nú er tímabilið næstum hálfnað í þýsku deildinni og þið eruð í topp- baráttunni. Er þetta eitthvað sem þú áttir von á fyrir tímabil? „Okkur var spáð um miðja deild, en ég átti von á því að við myndum verða í efri hlut- anum þannig að þessi árangur okkar er ekki að koma mér neitt sérstaklega rnikið á óvart.” Hvað með framhaldið eftir jól. Eigið þið möguleika á að fara alla leið? „Við erum með mjög gott lið og það er alltaf möruleiki á að fara alla leið, en okkar markmið er að ná sæti sem gefur rétt á að spila í Evrópukeppn- inni á næsta ári. Við erum ennþá inni í bikarnum svo það er kannski besta leiðin fyrir okkur til að komast í Ev- rópukeppni. Að ná að vinna deildar- keppnina er frekar erfitt því það eru lið, sem eru betri en við í dag, en það er aldrei að vita nema að okkur takist að fara alla leið." Hefur þú áður staðið í þessari bar- áttu áður ineð liðinu? „Nei, þessi staða er alveg ný fyrir mér. Það er ólíkt skemmtilegra að vera að berjast um toppsætin en að sigla lygnan sjó í deildinni sem hefur verið hlutskipti okkar undanfarin ár." Hvaða lið munu koma til með að etja kappi við ykkur um titilinn? „Bestu liðin í dag eru Lemgo og Kiel svo koma lið eins og Magdeburg, Nordhorn , Flensburg , Wallau og Tusem.” Þú ert búinn að leika í 6 ár með Essen. Þér líkar greinilega vel við lífið þar á bæ? „Þetta er mitt 6. tíma- bil hjá Tusem, mér líkar vel í dag en svo hefur reyndar ekki alltaf verið. Fyrstu árin gekk mér vel, næstu tvö gengu ekki eins vel en síðustu tvö árin hefur mér gengið mjög vel." Þú varst gerður að fyrirliða liðsins fyrir tímabil. Það er mikill heiður en kom þér þetta á óvart? „Það er mikill heiður fyrir mig að vera fyrirliði hjá svona stóru félagi eins og Tusem er. Þessi útnefning kom mér ekki á óvart því ég hef verið einna lengst hjá liðinu." Lítur þú hlutverk fyrirliðans öðrum augum eftir að þú varst gerður að fyrirliða? „Nei ég held ekki. Fyrirliðanum fylgir ábyrgð sem ég hafði gert mér grein fyrir áður en ég tók við bandinu." Finnur þú fyrir þeirri ábyrgð á herðum þér? „Já, ábyrgðin er vissulega meiri og fjölmiðlar leita oftar en ekki svara hjá fyrirliðum svo athyglin er meiri, en mér finnst ég vera vel til- búinn í þetta hlutverk." Að ná að vinna deildar- keppnina er frekar erfitt því það eru lið sem eru betri en við í dag Hvernig er að búa og ala upp barn í Þýskalandi? „Það er mjög gott að búa í Essen. Ég kann vel við borgina og hef kynnst góðu fólki. Að ala upp barn hér er eflaust ekkert frá- brugðnara því að ala upp barn á íslandi og ég hef góðan tíma til að sinna uppeldinu." Þú átt tæp 2 ár eftir af samn- ingnum. Hvað með framhald- ið? „Ég hef hugsað um það að

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.