Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.02.2004, Qupperneq 4

Skinfaxi - 01.02.2004, Qupperneq 4
LlmfVverfisniát Þurfum að verða umhverfisvæn í hugsun og hegðun Bjöm B. Jónsson formaður UMFÍ skrifar um umhverfismáí Ræktun lands og lýðs Ungmennafélagshreyfingin hefur alla tíð unnið ötullega að umhverfismálum. Hæst hefur borið hverskonar landrækt og hreinsun lands. Ungmennafé- lagar hafa haft forgöngu um ýmiss verkefni, sem aðrir hafa síðan tekið upp á sína arma. Svo þarf að vera áfram. Einkunnarorð UMFÍ, „ræktun lands og lýðs“ eru jafn mikið í gildi í dag og þau voru á upp- hafsdögum hreyfingarinnar en við túlkum þau kannski að einhverju leyti á annan hátt en þá. Ræktun lands - aldrei höf- um við íslendingar lagt meiri áherslu á ræktun landsins en í dag. Bændur um allt land, skógræktarfélög sem almenn félög, stofnanir eins og Land- - upp til fjalla eða niðri við sjó - þar sem við getum upplifað umhverfið ótruflað af byggð mannsins. Við eigum að kunna að leggjast niður og hlusta á jörðina, hlusta á náttúruna, öldugjálfur eða árnið, suð í flugu eða fuglasöng. Það er mjög mikilvægt að læra að þykja vænt um landið okkar og náttúru þess því þá tökum við tillit til þess, verjum það og virðum á sama hátt og annað sem okkur þykir vænt um. Við þurfum að skila landinu jafn góðu eða betra til næstu kyn- slóða. Það gerum við best með því að kenna börnunum okkar að bera virðingu fyrir landinu, með ákveðinni upplifun úti í náttúrunni. Með því fáum við sjálf aukna tilfinningu og ábyrgð fyrir móður jörð og föðurlandinu okkar. Við cigum að kunna að (eggjast niður og hCusta áyörðina, fiíusta á náttúruna, öUCugjáCfur eða ámið, suð ífíugu eða fugCasöng. græðslan og Skógræktin, ein- staklingar við heimahús og við sumarbústaði, sveitarfélög í almenningsgörðum og svo mætti lengi telja, eru að stunda ræktun, landinu okkar til bóta. Hlutverk vormanna íslands er lokið að mestu, en hjá okkur taka við önnur verkefni ekki minna brýn. Megum ekki sofna á verðinum Þótt landsmenn hafi tekið við sér í uppgræðslu lands og ræktun skóga þá megum við ekki sofna á verðinum. Við þurfum að verða umhverfisvæn í hugsun og hegðun til þess að kunna að meta náttúruna og njóta hennar. Hér þurfa ung- mennafélagar að koma að í náinni framtíð. Skipuleggja þarf gönguferðir um óbyggð svæði Göngum um ísland er mjög skemmtilegt átak sem ung- mennafélagshreyfingin hefur sett af stað. Verkefnið er allt í senn umhverfisverkefni, heilsu- bótarverkefni og ekki hvað síst gott í baráttunni við vímuefna- vandann, ef tækifærið er nýtt sem slíkt. í þessu verkefni getur fjölskyldan í sameiningu fræðst um náttúruna og kynnst henni betur, það er góð leið til að allir verði virkir í umhverfismálun- um, jafnt ungir sem aldnir. Það er því miður þannig í dag að alltof margir horfa á umhverfis- málin sem flókið fyrirbæri. Þessu þarf að breyta til fram- tíðar. Með því að kynnast nátt- úrunni vel þá áttum við okkur á því að það eru ekki flókið mál að umgangast umhverfi okkar þannig að það verði líka í sátt við okkur. Skipulögð fræðsla UMFÍ Skipulögð fræðsla er ein þeirra leiða sem UMFÍ á að fara til þess að ná árangri í framtíðinni í umhverfismálum. Það er í senn einfaldasta og ódýrasta leiðin til að laða sem flesta að því sem við viljum gera og einn- ig til að ná ásættanlegum ár- angri. Mikið af fagmenntuðu fólki í umhverfisgeiranum hefur komið úr námi síðustu árin og það fólk eigum við að virkja. Það má líka segja að tími sé kominn til að við tökum okkur á í innra starfi hreyfingarinnar hvað varðar umhverfismál. Allir ungmennafélagar ættu að vera með það á hreinu og meðvitaðir um að þeirra þátttaka, hvort sem er í íþróttum eða í öðru starfi innan félagsins, gangi ekki á skjön við almennar reglur í umgengi við náttúru landsins. Oft heyrist „félagið mitt getur ekkert gert í umhverfismálum". Það er ekki síst viðkvæðið ef viðkomandi félag er staðsett á höfuðborgasvæðinu og það er notað sem afsökun fyrir því að ekki sé unnið að umhverfismál- um í viðkomandi félagi. En er það rétt að halda þessu fram? Það held ég ekki. Er það t.d. nokkuð flókið mál að koma upp flokkun á sorpi á þessum stöð- um. Eða má ekki huga að því að nota náttúruvæn efni og endurvinnanleg? Þarna er ein leið fyrir alla sem stunda íþróttir og nota mikið af hreinlætisvörum, að huga að náttúruvernd og sjálfsagt fyrir okkur að hafa það í huga. Sápuefni hverskonar, mætti

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.