Skinfaxi - 01.02.2004, Qupperneq 21
Aíþingismenn um UMFÍ
Og enn meira af þingmönnum og UMFÍ
UMFÍ þarf að blása oftar í lúðra
og láta vita af sér
Össur Skarphéðinsson Samfyífúngunni
1. Meðan ég var sveitastrákur á Mýrunum var ég í
Ungmennafélaginu í Borgarnesi sem ég man ekki lengur
hvað heitir nákvæmlega. Sömuleiðis er ég stofnfélagi í
Hróknum sem nú er orðin deild í Ungmennafélaginu
Fjölni.
2. Ég var hávær aðdáandi frænda minna og frænkna í
Rauðanesi sem kepptu í frjálsum og studdi þau með
ráðum og hvatningarópum. Annað var það framlag ekki.
Hvað skákina varðar kem ég að fjáröflun og stefnumótun
fyrir starfið, tek þátt í undirbúningi skákmóta og þess háttar.
3. Ég skokka og fer reglulega í líkamsrækt. Geng líka töluvert.
4. Starf UMFÍ er að mínu viti of hljóðlátt. UMFÍ þarf að blása oftar í lúðra og
láta vita af sér. Ég styð annars samtökin af afli og tel að þau vinni mikið
þjóðþrifaverk.
Stundar hlaup, fjallgöngur og fótbolta
Stcingrírtiur J. Sigfríssou Vinstri tjncnum
1. Já, ég er eða var að minnsta kosti félagi í ungmenna-
félaginu Aftureldingu í Þistilfirði allt frá unga aldri og langt
fram á fullorðins ár, þ.e.a.s. ef ég er ekki félagi þar enn
þann dag í dag.
2. Ég iðkaði íþróttir á vegum félagsins, sat í stjórn og var
formaður þess um skeið og síðan fulltrúi þess í stjórn
Ungmennasambands o. fl.
3. Ég stunda hlaup eða skokk, fjallgöngur, blak og stöku
sinnum fótbolta.
4. Ég tel starf ungmenna- og íþróttahreyfingarinnar gríðarlega mikilvægt og
geri þar ekki upp á milli. Ungmennafélagshreyfingin er hvorutveggja mann-
ræktarhreyfing og íþróttahreyfing og því ákaflega æskilegt að hún fái haldið
velli og blómstrað. Utanfrá séð gengur það bara nokkuð vel og munar þar án
efa ekki síst um þann mikilvæga tekjustofn sem tókst að tryggja UMFÍ
hlutdeild i þar sem hefur verið Lottóið.
Aldrei veriö virkur
ungmennafélagi
- segir Þuríður Bacfunan Vinstri grccnum
1. Því miður verð ég að við-
urkenna að hafa aldrei verið
virkur þátttakandi í ung-
mennafélagi, en aðrir fjöl-
skyldumeðlimir voru það
sannarlega á sínum tíma og
ég lét það nægja af fjölskyld-
unnar hálfu.
3. Ég er í leikfimi og stunda
tækifæri gefst til.
Ætlar að keppa á
landsmótinu í sumar
- segir Sigurjón Þórðarson FrjáfsCyndum
1. Ég er í Tin-
dastóli í sundi
og mun keppa
á næsta lands-
móti í 800 m
skriðsundi á
Sauðárkróki.
Var í Neista
Hofsósi í
fótbolta
2. Ég var í
stjórn Þryms og
varaformaður
UMSS um
skeið og hef starfað sem sjálfboðaliði á
fjölmörgum íþróttamótum m.a. sem sunddómari
3. Ég syndi 2 km svona þrisvar til 4 sinnum í viku
og svo einstaka sinnum í þingboltanum.
4. Mér finnst það til fyrirmyndar.
sund eins oft og
Hefur mikilvægu hlutverki að gegna
- sccjir Ásgeir Friðgeirsson SantfyCkingunni
1. Já. Eg er félagi í Breiðabliki
og hef verið í á fjórða áratug.
2. Ég æfði knattspyrnu,
handknattleik og glímu með
Breiðabliki á mínum yngri
árum en hætti því á unglings-
árum. Ég hef ávallt fylgst með
meistarflokki félagsins í knatt-
spyrnu karla og kvenna og
mætt á ófáa leiki. Þá var ég
formaður aðalstjórnar Breiða-
bliks í fimm ár eða til ársins
2001 og hef sinnt ýmsum
skyldum fyrir félagið síðan þá.
3. Ég er í knattspyrnu 1 - 3
sinnum í viku og ég syndi að
jafnaði tvisvar í viku. Þá fer ég
í skvass endrum og sinnum
og spenni stundum á mig
línuskauta.
4. Margt í starfi UMFÍ er til
mikillar fyrirmyndar, - einkum
eru það þó landsmótin. En
eins og með önnur landssam-
bönd þá er það aðildarfélögin
sem mestu skipta og þau
halda upp því starfi sem
mestu skiptir. Ungmennafé-
lögin á íslandi skipa stóran
sess í menningarsögu þjóðar-
innar og hafa enn mikilvægu
hlutverki að gegna. Sjálfur
hefði ég áhuga á einfaldari
skipan íþróttamála og tel
mikilvægt að sameina krafta
þeirra landssambanda sem
vinna að íþróttamálum. Þessi
orð mín má engan vegin skilja
sem svo að það starf sem nú
er unnið innan UMFÍ verði
ekki áfram unnið. Síður er
svo. Það merka starf má
aldrei leggja niður. Spurningin
er fyrst og síðast um skipulag.