Skinfaxi - 01.02.2004, Blaðsíða 23
UtufCiiujaCandsmótið
Bjartsýnn á skemmtilega helgi
- setjir PáXÍ Kotbeinsson formaður ungtitujalandsmótsnefndar
um versCunarmannalieCgina semframundan er á Króknutn
Dagana 30. júlí til 1. ágúst, eða
um verslunarmannahelgina, fer
unglingalandsmót UMFÍ fram á
Sauðárkróki. Að venju verður
mótshaldið hið glæsilegasta og
svo skemmtilega vill til að bæði
landsmót UMFÍ og unglinga-
landsmótið fara bæði fram á
Sauðárkróki í sumar. Það er þvi
óhætt að segja að ungmenna-
félagsandinn muni svífa yfir
vötnum á Króknum í sumar.
Páll Kolbeinsson er formaður
unglingalandsmótsnefndar
UMFÍ og hefur því í mörg horn
að líta þessa dagana við
skipulagningu landsmótsins.
Skapti Örn Ólafsson ræddi við
Pál á dögunum um landsmótið.
Búist við hátt í tíuþúsund
gestum
Páll Kolbeinsson er giftur
Þórunni Pétursdóttir og eiga
þau saman þrjár stúlkur.
Hann starfar sem framkvæm-
dastjóri Elements h.f., sem er
hugbúnaðar - og tækni-
fyrirtæki með höfuðstöðvar á
Sauðárkróki. „Við fluttum á
Sauðárkrók vegna þátttöku
minnar í íþróttastarfi en ég var
keppnismaður í körfuknattleik til
margra ára. Lék ég með KR í
vesturbænum fyrir utan síðustu
árin á ferlinum sem en þá var
ég liðsmaður UMFT á Sauð-
árkróki," segir Páll.
Páll er formaður unglinga-
landsmótsnefndar UMFÍ sem
fer með skipulagningu Ung-
lingalandsmótsins á Sauðár-
króki nú í sumar. „Mér fannst
það ágætt tækifæri að fá að
taka þátt í skipulagningu ung-
lingalandsmóts þegar til mín
var leitað. Nefndin hittist á
tveggja vikna fresti og skipu-
leggur vinnu þeirra aðila sem
sjá um framkvæmd mótsins.
Skrifstofa mótsnefndar er
staðsett á Sauðárkróki og þar
sem starfar úrvals fólk. Þessir
sömu aðilar hafa eytt miklum
tíma í skipulagningu landsmóts
UMFÍ sem haldið er þremur
vikum áður og nýtist sú reynsla
við undirbúning unglingalands-
móts,“ segir hann.
Hver eru helstu verkefni hvað
varðar skipulagningu fyrir
unglingalandsmótið? „Það er
fyrst og fremst að fá fólk til að
starfa við keppnishaldið og sjá
til þess að afþreying verði
hæfileg en þar sem mótið er
haldið um verslunarmannahel-
gina er það markmiðið að ná
allri fjölskyldunni á mótssvæð-
ið. Það er því í mörg horn að
líta,“ segir Páll sem segist búast
við hátt í tíuþúsund gestum á
unglingalandsmótið. „Annars er
keppt í sjö greinum á lands-
mótinu, knattspyrnu, körfu-
knattleik, glímu, hestaíþróttum,
frjáls íþróttum, sundi og golfi.
Keppendur gætu orðið um tvö
þúsund talsins og gestir í heild
sinni um átta til tíu þúsund,"
segir hann.
Undirbúningur gengur vel
Nú hefur ætíð verið metnað-
arfull dagskrá á unglinga-
landsmótum, verður nokkuð
annað uppi á teningunum í
ár? „Nei. Búið er semja við fjöl-
marga aðila sem munu bjóða
gestum okkar uppá á skemm-
tilega dagskrá. Nýstárlegar
íþróttagreinar verða kynntar,
tónlistarfólk í fremstu röð verða
á sviði og heimamenn munu sjá
til þess að öllum líði vel.“
Undanfarin tvö ár hafa ung-
lingalandsmótin farið fram
um verslunarmannahelgina
og segir Páll landsmótin ekki
vera í samkeppni við aðrar
útihátíðir. „Við viljum taka það
fram að við erum ekki í sam-
keppni við útihátíðir. Hér um að
ræða íþróttakeppni fyrir ung-
linga og skemmtun sem að
sjálfsögðu er
vímuefnalaus
enda markhóp-
urinn unglingar
á aldrinum ellefu
til átján ára. Við
vonumst að fjöl-
skyldan komi öll
og verður séð til
þess að allir
skemmti sér vel
enda er mjög
metnaðarfull
dagskrá á boð-
stólum," segir
hann.
Aðspurður
segir Páll und-
irbúningur fyrir landsmótið
gangi vel. „Búið er að kynna
mótið fyrir fjölmiðlum og voru
undirtektir góðar. Það er í mörg
horn að líta en reynslan og
þekking er til staðar hjá UMFÍ
sem gerir verkefnið viðráðan-
legt,“ segir hann.
Góðar aðstæður á Króknum
Hvernig eru aðstæður á
Sauðárkróki fyrir viðburð af
þeirri stærðargráðu sem ung-
lingalandsmót er? „Aðstæður
er mjög góðar, nýr leikvangur
sem mun hýsa stærstu grein-
arnar, knattspyrnu og frjálsa
íþróttir. íþrótthúsið er nýlegt og
aðstaða til hestaíþrótta er fram-
úrskarandi. Sjálfur er ég áhuga-
maður um golf og verð að segja
að golfvöllurinn okkar er með
betri níu holum völlum á land-
inu.“
Þetta er í fyrsta skiptið sem
unglingalandsmót fer fram á
Sauðárkróki, en einu sinni
áður hefur landsmót UMFÍ
verið haldið þar. „Landsmót
var haldið hér á Sauðárkróki
árið 1971 og var það í fyrsta
skipti sem ég heimsótti Krókinn.
Ég á góðar minningar frá því
móti og er sannfærður að bæði
mótin verði eftirminnileg fyrir
þátttakendur og gesti,“ segir
Páll. í sumar verða hins vegar
bæði landsmót UMFÍ haldin á
Sauðárkróki og segir Páll mikla
hagræðingu felast í því fyrir
UMFÍ. „Það er engin spurning
að það er hagræðing að halda
mótin á sama stað í ár. Aðstað-
an er til staðar og höfum við ná
hagstæðum samningum hvað
varðar framkvæmd."
Hefur þú tekið þátt í starfi
UMFÍ fyrir utan aðkomu þína
að unglingalandsmótinu?
„Nei, en ég hef starfað að
félagsmálum í gegnum tíðina
og var virkur í starfi körfuknatt-
leiksdeildar UMFT. Þetta er í
fyrsta skipti sem ég starfa með
leiðtogum UMFÍ og hlakka ég
mikið til næstu mánaða," segir
Páll sem á árum áður gerði
garðinn frægan með KR og
Tindastóli í körfubolta. En er
hann ekkert að dripla körfubolta
í dag? „Golfið er í uppáhaldi í
dag en ég spila öðru hverju
með félögum mínum í Mold-
uxum sem er þekktur körfu-
boltahópur hér á Sauðárkróki,“
segir hann bjartsýnn á gott
sumar og skemmtilega versl-
unarmannahelgi á Króknum.