Skinfaxi - 01.08.2007, Page 11
25. LomAmuM UMPÍ
25.LANDSMÓT
UMFÍ
UMSK sigraði í heildarstigakeppninni
25. Landsmóti UMF( var slitið á Kópavogsvelli 8.
júlí en það var Ungmennafélag Kjalarnesþings,
UMSK, sem fór með sigur af hólmi í heildarstiga-
keppni mótsins. UMSK hlaut alls 2.143 stig en
HSK, sem kom í næsta sæti, hlaut 1.740,7 stig.
íþróttabandalag Reykjavíkur varð síðan í þriðja
sæti með 1.539,7 stig. Þetta er annað mótið í röð
sem lið UMSK sigrar á og í fimmta sinn í nærri
aldar sögu mótanna. Um sex þúsund manns
tóku þátt í keppnisgreinum og hafa aldrei verið
fleiri. Mótið þótti takast vel í heild sinni og veðr-
ið lék við keppendur og gesti alla mótsdagana.
Næsta Landsmót verður haldið á Akureyri
2009 en þá verða 100 ár liðin frá því að fyrsta
Landsmótið var haldið.
Mynd: Valdimar Leó Friðriksson, formaður
UMSK, hamparbikarnum imótslok.
HSK hlaut flest
stig í starfs-
íþróttum
HSK-menn hlutu flest stig í starfsíþróttum á
Landsmótinu. HSK hlaut alls 137,5 stig en í öðru
sæti var sameiginlegt lið UMSE og UFA með 78,7
stig. Keppt var í átta mismunandi starfsíþrótta-
greinum víðs vegar um Kópavog. Á myndinni
hér til hliðar má sjá frá keppni í borðskreytingu
sem fram fór í Smáralindinni.
SKINFAXI - tímarit Ungmennafélags íslands