Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.08.2007, Side 20

Skinfaxi - 01.08.2007, Side 20
aB.LANDSMÓT UMFÍ Landsmót 2009 á Akureyri - samningar undirritaðir Samningar íhöfn: Arni Arnsteinsson, formaður UMSE, Katrín G. Pálsdóttir, varaformaður UFA, Sigrún Björk Jakobsdóttir, bæjarstjóri á Akureyri, og Björn B. Jónsson, formaður UMFl. Hinn 9. október sl. var undirritaður samningur vegna Landsmóts UMFf sem haldið verður á Akureyri 2009. Skrifað var undir samninginn í bæjarstjórnarsalnum á Akureyri. Annars vegar er um að ræða samninga UMFf við mótshaldarana tvo, Ungmennasamband Eyjafjarðar, UMSE, og Ungmennafélag Akureyrar, UFA, og hins vegar samninga mótshaldaranna og Akureyrarbæjar. Fyrsta Landsmót UMFÍ var haldið á Akureyri árið 1909 og því verða 100 ár liðin frá fyrsta mót- inu, þegar Landsmótið, hið 26. í röðinni, verður haldið á Akureyri 2009. Að undirskriftinni lokinni sagði Björn B. Jónsson, formaður UMFf, það stóran áfanga í sögu UMFÍ þegar mótið verður haldið á Akur- eyri.„Ég er mjög ánægður með þær aðstæður sem í boði verða á Landsmótinu 2009. Fyrir eru aðstæður fyrsta flokks og eins þau mannvirki sem ákveðið er að ráðist verði í að byggja," sagði Björn B. Jónsson. Ráðist verður í byggingu frjálsíþróttavallar sem ákveðinn hefur verið staður á Þórssvæðinu. Á fundinum kom fram að eftirvænting fyrir mót- inu er mikil og mótshaldarar sem heimamenn eru staðráðnir í því að halda veglegt og glæsi- legt Landsmót. Sigrún Björk Jakobsdóttir, bæjar- stjóri á Akureyri, tók einnig til máls á fundinum og sagði verkefnið mjög spennandi og skemmtilegt. Landsmótið 2009 verður það fjórða sem fer fram á Akureyri. Það fyrsta var haldið 1909, síðan fylgdu í kjölfarið mótin 1955 og 1981. ÖSSUR 20 SKINFAXI - tímarit Ungmennafélags íslands

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.