Skinfaxi - 01.08.2007, Síða 22
10. UK^UM^aÍAAiAMfLÓt UMFÍ
Mótið tókst í alla staði mjög vel
10. Unglingalandsmót UMFl var haldið dagana
3.- 5. ágúst á Höfn í Hornafirði. Daginn áður, 2.
ágúst, var UMFl stofnað fyrir 100 árum. Fram-
kvæmdaaðilar mótsins voru greinilega búnir að
leggja mikla vinnu í allan undirbúning en miklar
endurbætur fóru fram á íþróttavellinum fyrir
mótið. Gerviefni var lagt á hlaupabrautir þannig
að í dag eru aðstæður eystra fyrsta flokks fyrir
frjálsar iþróttir.
(unglingalandsmótsnefndinni voru eftir-
taldir einstaklingar: Ragnhildur Einarsdóttir, for-
maður og formaður USÚ, Hjalti Þór Vignisson,
Hulda Laxdal Hauksdóttir, Inga Kristín Svein-
björnsdóttir, Jóhanna Kristjánsdóttir, Kjartan
Hreinsson og Matthildur Ásmundsdóttir. Full-
trúar UMFl voru Björn B. Jónsson, Sæmundur
Runólfsson og Jóhann Tryggvason. Sem fyrr
varómar Bragi Stefánsson, landsfulltrúi UMF(,
framkvæmdastjóri mótsins en verkefnisstjóri var
ráðinn Valdemar Einarsson.
Setningarathöfnin var glæsileg og eitt þús-
und keppendur gengu fylktu liði inn á völlinn.
Lítils háttar rigning var meðan hún fór fram en
annars var veðrið gott alla keppnisdagana.Talið
er að um sjö þúsund manns hafi sótt mótið.
Kyndilberi var HilmarÓlafsson. Björn B. Jónsson,
formaður UMFf, setti mótið með formlegum
hætti. Auk hans fluttu ávörp Árni Mathiesen,
fjármálaráðherra, Hjalti Vignisson, bæjarstjóri á
Hornafirði, og Ragnhildur Einarsdóttir, formaður
USÚ. Össur Skarphéðinsson, iðnaðarráðherra,
og Björgvin Sigurðsson, viðskiptaráðherra, voru
einnig viðstaddir setningarathöfnina. Eftir setn-
ingarathöfnina afhjúpuðu þeir Björn B. Jónsson
og Hjalti Þór Vignisson nýjan vatnspóst rétt utan
við völlinn. Hann var gjöf UMFl til Hornfirðinga í
tilefni af 100 ára afmælinu. Mjög góður árangur
náðist í mörgum keppnisgreinum á mótinu en
fyrir mestu var að keppendur skemmtu sér hið
besta og gleðin skein úr hverju andliti.
Mótinu var slitið á sunnudagskvöldinu í
blíðskaparveðri og var mikill fjöldi manns við-
staddur. Glæsileg flugeldasýning rak endahnút-
inn á frábært og vel skipulagt Unglingalandsmót.
Þessi mót hafa svo sannarlega sannað gildi sitt og
erástæða til að hlakka til næsta móts að ári.
22 SKINFAXI - tímarit Ungmennafélags íslands