Skinfaxi - 01.08.2007, Side 27
Fréítír úr IweyjuujUAwd
Linda Hansson frá Svíþjóð
kynntist bústörfum á íslandi:
Stefni að því að
koma fljótt aftur
UMFÍ hefur lengi tekið þátt í svokölluðum ungmennaskiptum við frændur
okkar og systursamtök á Norðurlöndunum. I því felst að skipst er á heim-
sóknum og dvöl ungs fólks í löndunum. Samskipti okkar hafa aðallega
verið við Svíþjóð en einnig við Noreg. Síðastliðið sumar kom hingað til
lands stúlka að nafni Linda Hansson, frá samtökunum 4H í Svíþjóð, en það
eru i raun systursamtök okkar innan NSU.
Linda, sem er 22 ára háskólanemi frá Kalmar, hefur lengi átt þann
draum aðfara til Islands og dvelja þar um tíma. I sumarfékk hún draum sinn
uppfylltan og fyrir milligöngu UMFl dvaldi hún á tveimur stöðum þær 8 vik-
ur sem hún dvaldi hér á landi. Fyrstfór Linda til Hildibrands í Bjarnarhöfn á
Snæfellsnesi og kynntist þar störfum og lífi fólksins þar. Anna leggur stund
á nám í sögu við háskólann í Kalmar. Linda er í stjórn 4H-samtakanna í
Svíþjóð sem vinna með ungu fólki í ýmsum verkefnum. Samtökin eru starf-
rækt í 82 löndum en þau voru stofnuð í Bandaríkjunum 1902.
„Ég átti frábæran tíma í Bjarnarhöfn og þar var mjög skemmtilegt og
fræðandi að fylgjast með Hildibrandi í bústörfunum. Ég fór með honum
m.a. til Drangsness sem var mjög framandi fyrir mig," sagði Linda í spjalli
við Skinfaxa.
Eftir dvölina í Bjarnarhöfn lá leiðin að Ytri-Ásum í Skaftártungu í
Vestur-Skaftafellssýslu og þar átti Linda yndislegar fjórar vikur eins og hún
kemst sjálf að orði.„Þar lærði ég töluvert í íslensku og sá hvernig lífið fer
Linda Hansson frá Svíþjóð var mjög ánægð með veru sína á Islandi.
fram á íslenskum sveitabæ. Þar var mjög gaman í alla staði og ég fór m.a. í
Landmannalaugar sem er frábær staður í mínum huga," sagði Linda.
Hún segist ákveðin í að koma til íslands og stefnir jafnvel á það eftir tvö ár.
„Það væri mjög skemmtilegt að koma með Smyrli, leigja sér bíl, keyra um
og skoða landið," sagði Linda Hansson létt í bragði.
Aðalfundur
íslenskra getrauna:
Það eru ýmis
sóknarfæri í
stöðunni
Aðalfundur (slenskra getrauna var
haldinn í íþróttamiðstöðinni í Laug-
ardal hinn 24. september. Stefán
Konráðsson, framkvæmdastjóri
Getspár/Getrauna, hóf fundinn og
fór yfir ársskýrslu. Björn B. Jónsson,
formaður UMF(, og Ólafur Rafnsson,
forseti (þrótta- og ólympíusambands
(slands, fluttu báðir stuttar tölur á
fundinum. (máli þeirra beggja kom
fram að þrátt fyrir ytri aðstæður og
vaxandi samkeppni á markaðnum
ætti fyrirtækið að sækja fram því
að framtíðin væri björt ef rétt yrði
á spilum haldið. Ljóst væri að ólög-
legir leikir á Netinu veittu harða keppni og gegn því yrði að sporna. Pétur
Hrafn Sigurðsson, sölustjóri, fór yfir sölumál almennt hjá (slenskum get-
raunum og sagði frá nýjungum sem stæðu fyrirdyrum.
„Við sem erum aldnir upp í íþrótta-
og ungmennafélagshreyfingunni
vitum hvað er að keppa og ætlum
að berjast fyrir tilveru þessa fyrir-
tækis. Við vitum að við erum með
góðan málstað og setja þarf pen-
ing í íþrótta- og ungmennafélögin.
Þessir aðilar þurfa á okkur að halda
og við á þeim. Það eru ýmis sókn-
arfæri í stöðunni og við getum
ekki annað en horft björtum aug-
um til framtíðar. Þessi heimur hef-
ur tekið miklum breytingum á síð-
ustu árum og rekstrarumhverfið
er erfitt hvað það varðar að Netið
er án banda og erfitt að eiga við
ólöglega starfsemi. Við vonumst til
þess að eftirlitsaðilar og opinberar
stofnanir stöðvi þessa aðila sem
vinna ólöglega og óheiðarlega
á þessum markaði," sagði Stefán
Konráðsson, framkvæmdastjóri
Getspár/Getrauna, í viðtali við
Skinfaxa eftir aðalfund fyrirtækis-
ins. Stefán sagðist leggja mikla
áherslu á að hafa félögin með til að
efla fyrirtækið sem best.„UMFl og Getraunir hafa átt mjög gott samstarf
á undanförnum árum og við þurfum á ungmennafélögunum að halda,"
sagði Stefán.
Stefán Konráðsson, framkvæmdastjóri Getspár/Getrauna.
SKINFAXI - tímarit Ungmennafélags íslands 27