Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1942, Blaðsíða 7

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1942, Blaðsíða 7
Blaðíð hefir snúið sér til Guðmundar Oddssonar skipstjóra og beðið hann að segja lesendum þess eitthvað, eftir því sem hægt er, um siglingar skip- anna og það sem þeim við kemur. Og fer hér á eftir viðtal við hann, Aukið öryggi sjómanna oklcar og skipasfóls er aukið öryggi ^jóðarhúsins Það eru nú eflaust margir mér færari til að skýra frá siglingunum og því sem segja má frá þeim. Þær ferðir, sem jeg hefi farið, höf- um við einskis orðið varir og ekkert heft för okkar nema Ægir gamli, þegar illa liggur á honum. En við höfum heyrt til margra skipa sem beðið hafa um aðstoð í neyð, ýmist vegna óveðurs eða styrjaldaraðgerða. — Eru menn nú órólegir meðan á sigling- unum stendur? — Því get ég ekki svarað. Því verður hver að svara fyrir sig, en ég hefi ekki orðið þess var. Menn hafa sínar hugsanir útaf fyrir sig, en eflaust eru þar ýms umbrot oft og tíðum. Hugurinn hverfur heim ti! konu og barna og svo um það, hvort takast megi að komast heill í höfn til að taka á móti áhættuþóknuninni fyrir ferðina. Það hefir mikið verið rætt og ritað -um það hvernig bezt mætti búa út skipiri í þessar ferð- ir. Útbúnaður björgunarbáta og fleka hefir verið endurbættur frá því sem var; einnig var í i-eglugerð þeirri, er gefin var út síðastliðið vor, þessu viðvikjandi ákvæði um það, að stjórnpallar skipann; akyldu vera brynvarðir með því, er bezt hentaði. Þetta var gert á mörgum af togurunum, en kom þó ekki að notum nema hjá sárfáum vegna yfirviktar, er kom á skipin við þessa aðgerð. Nú hefir verið hljótt í herbúðunum undan- farna mánuði, og íslenzki fiskiflotinn hefir ekki beðið nein afhroð vegna ófriðarins síðan b.s. ,,Sviði“ fórst. — Það eru farin að gróa stærstu sárin og sljógvast í meðvitund manna hin yfirvofandi hætta, sem ætíð er samfara þessum siglingum fyrir umhugsun um vænt- anlega „hræðslupeninga“. Því miður er langt frá því, að hægt sé að búast við að íslenzku sjómennirnir eigi ekki ennþá eftir að verða skotvopnum að bráð. — Sjóhernaður kafbátanna er rekinn svo misk- unnarlaust, að ef þeir komast í skotfæri, dyn- ur skothríðin þar til yfir líkur. 5 mörgum til- fellum koma hvorki flekar né björgunarbátar að gagni. Hvar er þá öryggið, sem íslenzku sjómennirnir hafa? Þessu mætti í mörgum til- fellum afstýra, ef skipin hefðu þau tæki til öryggis sem vera ber, en það eru vopn. *— Togararnir þurfa að fá létta fallbyssu og loft- varnabyssu og smærri skipin loftvarnabyssu og aðrar smærri byssur. í ófriðarbyrjun var ég andvígur því, að skipin yrði vopnuð. Ég var heillaður af hlut- leysishugsjóninni er svo margir héldu með. En þegar það var sýnt að sjómennirnir voru myrtir á svo svívh'ðilegan hátt að engri björg- un var við komið, og hlutleysið fótumtroðið, sannfærðist ég um að hlutleysið var hvergi til nema á pappírnum. Okkar atvinnuháttum er þannig varið að lífsnauðsyn er að halda uppi siglingum. Að vísu er hægt að ætla að það mætti sækja til okkar fiskinn, svo sjómennirnir með því móti gætu losnað við að leggja sig í þá hættu, sem nú er samfara þeim, en tilraunir í þá átt hafa ekki bent til að það geti gengið nema á þeim tímum sem minst fiskast. Nú eru máske sumir sem spyrja. Hvað þýðir að láta þau vopn um borð í togarana sem enginn kann að fara með. Því er tií að svai’a, að enginn verður smiður í fyrsta sinn, en með því móti að æfa vissa mcnn á hverju skipi til að fara með þessi tæki, má ætla að þeir geti það eins og aðrir. Hugir þeirra sjómanna sem ég hefi átt tal við um þessa hluti, hafa eindregið hnigið í þá átt að fá vopn, sem að gagni koma til að verja sig með. Og víst er það, að það er ömurleg tilliugsun að láta drepa sig fyrirvaralaust, án þess að hafa neina möguleika til þess að sporna á móti því. Ég hefi marg oft heyrt því haldið fram, að vel vopnuð skip á stærð við togarana okkar (Framh. á bls. 26) 7 VIKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.