Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1942, Blaðsíða 32
Svona er Ameríka.
Fyrir nokkrum mánuðum komu tilmæli frá flota-
stjórninni til Henry Ford um að nokkrir sjóliðar fengju
verklega tilsögn í vélfræði í verksmiðjum hans. „Hve
margir?“ spurði Ford. Flotastjórnin sagðist vera þakk-
lát ef hann gæti tekið 100. Hve margir eiga að fara á
námskeiðið í allt?“ — Helzt 2000 á þriggja mánaða
fresti. „Sendið þá alla til mín“, sagði Ford. Nú er-u
litlar hvítar húfur sjóliðanna dreifðar um allar verk-
smiðjurnar við River Rouge. Þeir vinna í verksmiðj-
unum 32 klukkustundir í viku undir tilsögn kennara
frá Ford-skólanum. Bóklega kennslu fá þeir 8 stundir
á viku.
Sjóliðarnir eru til húsa við ána. Mýrarfláka var
breytt í sjóliða-herbúðir, með skrifstofubyggingu,
svefnskálum, matskála, leikfimis- og leikhúsi með sæt-
um fyrir 1100 manns, allt á 40 dögum. Kostnaðurinn
var 1.000.000 dollarar. Rétt eftir að búið var að af-
henda flotastjórninni stöðina, var Ford tilkynnt að
Downes aðmíráll væri væntanlegur daginn eftir til
þess að skoða staðinn. Ford brá mjög við þessa frétt.
„Það er allt á rúi og stúi þarna“, hrópaði Ford. „Það
er ekki hægt að sýna nokkrum manni staðinn eins og
hann er útlítandi. Hreinsið þið strax til“.
Heill her af verkamönnum Fords var í skyndi settur
í að laga til kring um húsin. Meðan þeir voru að vinn-
unni skall á myrkur. Ljós voru leidd um allt. Þegar að-
mírállinn kom næsta morgun, stóðu byggingarnar í
skugga hárra trjáa, runnar voru beggja vegna við dyra-
þrepin, og þar sem daginn áður var moldarfen, var nú
breiður, eggsléttur grasflötur.
„Readers Digest“. Jan. 1942.
★
Víkingur tók upp þá nýbreytni fyrir skömmu, að
birta þýddar greinar um vélfræðileg efni, og mun gera
það framvegis eftir því sem föng eru á.
Er þetta sumpart gert eftir óskum vélstjóranna.
Sakna þeir Vélstjóraritsins, er flutti allmikið af slik-
um greinum, en það var að mestu lagt niður, er Vik-
ingur hóf göngu sína.
Greinar þessai' hafa vakið athygli og verið vel tekið.
Væri æskilegt að sem flestir hefðu blaðið í huga og
sendu því þýddar eða frumsamdar greinar um nýung-
ar í þessu efni. Viljum vér i því sambandi minna á, að
lesenda-hópur Víkings er orðinn stór og fer vaxandi.
Oss er hins vegar ljóst, að það er hið mesta vanda-
verk að rita um vélfræðileg efni á ísl. svo vel fari á.
VÍKINGUR
Það er hörgull á viðeigandi oi'ðum og nýyrði, sem
mynduð hafa verið eru ýmsum enn ekki kunn og fæst-
um töm orðin. En allt í þessu efni er í rauninni byrj-
endastarf hér, og stendur til bóta. Það eru fáir smiðir
í fyrsta sinn.
★
Það kostar um 800 dollara að sýna gesti Douglas
Santa Monica flugvélaverksmiðjuna — ef gesturinn
er kvenmaður, — eftir því, sem einn af framkvæmda-
stjórum verksmiðjunnar heldur fram. Starfsmenn-
irnir þurfa nefnilega engu síður að skoða gestinn en
gesturinn verksmiðjuna. Samskonai' fyrirtæki neitaði
einu sinni kvikmyndaleikkonunni Susan Hayward um
að skoða verksmiðju sína á þeim grundvelli, að tapxð
sem gón verkamannanna á gestinn ylli, munrii nema
20.000 dollurum.
★
Voðurspár.
(Úr rími Þórðar biskups Þorlákssonar, prentuðu á
Hólum 1671).
Gott veður fyrst og síðast í Janario halda sumir
góðs vetrar teikn.
Þurr skyldi Þorri,
Þeysöm Góa,
votur Einmánuður, —
þá mun vel vora.
Sjái ekki sól þriðjudag í föstuinngangi, mun oft
heiði'íkja um föstuna.
Eftir því, sem viðrar á öskudaginn, mun oft viðra
18 daga aðra á föstunni. Þeir dagar heita öskudags-
bræðui'.
Grimmui' skyldi Góudagurinn fyrsti, annar og hinn
þriðji, — þá mun Góa góð verða.
Ef hún Góa öll er góð, —
að því gæti meingi, —
þá mun hún Harpa, hennar jóð,
herða’ á snjóa strengi.
Heiðríkt veður með frosti á Martio halda sumir góðs
árs teikn.
'k
Vill Sjómannablaðið Víkingur gera svo vel að upp-
lýsa, hver hefir gert vísur „Kveðnar um borð í togara“,
undir stöfunum J. B. Vísur þessar birtust í síðasta tölu-
blaði Víkings og eru óvenju létt kveðnar. Þar er sýni-
lega að verki góður hagyrðingur.
Kaupandi.
Jónas Björnsson skipstjóri ættaður úr Vopnafiröi.
32