Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1942, Blaðsíða 24

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1942, Blaðsíða 24
Bókin Kafbátsforingi og kennimaíur, sem út kom skömmu fyrir áramót, lýsir á margan hátt mjög greinilega starfi kafbáta á strííSstímum. Og þó kafbátar séu meíS verstu óvinum sjófarenda, er hyggilegt aS vita eitthvað um óvin sinn. Sjómannablað- iíS ,,Víkingur“ hefir gótSfúslega fengiíS leyfi útgefandans til þess aíS birta kafla úr bókinni. Kafbátsforingi og kennimaður Nafn Martins Niemöllers, hins mikla þýzka kirkjuhöfðingja, er þekkt um allan heim. En fæst- ir vita um hina viðburðaríku ævi hans. í bók sinni, ,.Kafbátsforing-i og kennimaður“, lýs- ir hann á lifandi og' skemmtilegan hátt ævintýrum sínum í heimsstyrjöldinni. Hann var ungur sjóliðsforingi í ofansjávarflotanum, þagar hún brauzt út, en var skipaður í kaf- bátaþjónustu og varð sjálfur kafbátsforingi á ungum aldri. Niemöller varð brátt kunnur fyrir dugnað sinn og' skyldurækni. Og þótt menn hati stríð, er ómögulegt annað en dázt að kjarki og þrcki þessara manna. Eftir stríðið hóf Niemöller guðfrreðinám, og ákvað að verða prestur. Hann var mjög þjóðernissinnaður og gekk meira að seg'ja í nazistaflokk Hitlers, en sagði skilið við þann flokk 1933, þegar Hitler ætlaði að ncyða mótmælenda- kirkjuna undir flokksaga nazista. I. Kafli. Kvaddur til kafbátaþjónustu. Jafnvel þótt það gæti verið nokkur tilbreyt- ing í því .að fara í herferð til stranda Bret- lands, eða vera að flotaæfingum við Helgo- land, að gera árás á ítígaflóa, og taka þátt : margvíslegum heræfingum, allt frá skotæf- ingum á Schillighöfn, upp í íþróttamót með tilheyrandi verðlaunum, þá var samt ekkert framar til, sem gat deyft hin sívaxandi leið- indi, er þessu voru samfara. Það virtist ekk- ert meðal vera til við þeim á hinu gamla, góða ,,Thuringen“, á öðru ári styrjaldarinnar, því það var ekki ein einasta sál, sem trúði því í alvöru, að ofansjávarflotinn gæti haft nokkur veruleg áhrif. Og samt skrifaði einn af góð- vinum mínum, sem lent hafði í þessu sama í Konstantínópel, þessi cinkennandi orð: taktu því með jafnaðargeði, gerðu skyldu þína, og láttu þér ekki leiðast! En jafnaöargeðið entist þó ekki betur en svo, að sumir piltarnir gátu ekki fundið upp á öðru betra en að gifta sig, og að lokum virtist hver og einn skoða lagsmann sinn sem svarinn cvin. Menn urðu þegjandalegir í við- bót eða þá, að þeir fóru í hár snman út af smámunum. Jafnframt gerðu mcnn allt, sem þeir gátu til þess að fá annan starfa, svo unnt væri að umflýja þessa deyfð. Okkur ungu sjóliðsforingjana dreymdi um flugvélar og kafbáta, orustuskip cg loftför og þótti það nokkuð hart, að eyða refinni í það, að standa vakt með sverð við hlið á þilfari á VÍKINGUR 23,000 tonna skips, sem lá við akkeri, mcðan vinir okkar og félagar tóku þátt í því stríði, sem allt hið unga Þýzkaland lagði lífið í söl- urnar fyrir. í októbcr 1915 rættust vonir mínar, er sendimaður kapteinsins kom til mín og sagði: „Kapteinninn vill tala við yður“. Stundar- fjcrðungi seinna var þjáningum mínum á ,,fá- vitahælinu“ brátt lokið. Ég var skipaður í þjónustu við kafbátana frá 1. desember. — Loksins var fyrsta sporið stigið! Og samt minnist ég með nokkrum sökn- uði seinustu nóvemberdagana 1915, þegar ,,Thúringen“ lagði að kolabryggjunni í Wil- helmshaven, og ég kvaddi mitt gamla skip. Ég átti nú að skilja við það, og um leið kvaddi ég mín beztu æskuár og beztu æskuvinina. Alvara lífsins og napur veruleiki lífsins biðu mín. Meðal sjóliða þykir landleiðin frá Wil- helmshaven til Kiel miklu skemmtilegri held- ur en frá Kiel til Wilhelmshaven, því að allir vilja heldur fara til Kiel. En þessi hlunnindi komu mér að litlum notum, því að ég fór út í óvissuna. Kafbátadeild? — Það gat verið allt mögulegt, í bezta tilfelli fengi ég menntun aðstoðarforingja, sem undirbúning undir kaf- bátsstörfin, en í versta tilfelli herbúðaþjón- ustu hjá kafbátanýliðunum í Kiel-Wik. Það, sem ég fékk, var mitt á milli: ég var sendur sem stýrimaður á ,,Vulkan“, sem var birgða- skip fyrir kafbátana. Til allrar hamingju var ég ekki lengi í því 24

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.