Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1942, Blaðsíða 28

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1942, Blaðsíða 28
Talstöðvar og veðurfregnir Það eru nú liðin nokkur ár síðan fyrst var sett talstöð í fiskibát hér á landi. Mönnum varð fljótt ljóst, að hér var um eitt hið bezta öryggistæki að ræða sem enn var völ á og sem afleiðing af því, hefir notkun talstöðvanna aukizt mikið og eftirspurnin jafnan verið meiri en framleiðslan. Það er mál manna að skynsamleg notkun talstöðvanna hafi stórum aukið þann skerf, sem sjómennirnir leggja í þjóðarbúið og á það sérstaklega við um síldveiðarnar. Þá er og ekki minna um það vert, að bátar skuli ávallt hvenær sem eitthvað verður að geta gert vart við sig og beðið um aðstoð, sem og hitt að eiga þess kost að geta gefið hvor öðrum upp- lýsingar um allar snöggar veðurbf.’eytingar og á það ekki hvað sízt við nú, þegar engra veðurfregna er kostur. Skömmu eftir hernám landsins gaf póst- og símamálastjóri út tilkyningu þess efnis, að stranglega væri bannað að gefa nokkrar upp- lýsingar um veður. Og til þess að minna enn betur á þetta bann var límdur miði á talstöðvarnar sem á stóð: „Munið! Stranglega er bannað að gefa nokkrar upplýsingar um veður“. Þetta mun styðjast við lög, sem út hafa verið gefin um viðskipti talstöðva. Þess munu vera allmörg dæmi að þessi fyrirmæli hafi verið brotin af sjómönnum og hefir viðkomandi tafarlaust verið látinn sæta sektum. Eitthvað mun hafa verið um tilfelli bar sem orðum var hagað þannig, að ekki var beinlínis um unnlýsingar um veðurfar að ræða, en farið nálægt efninu. þó ekki svo, að fært þætti að sækia mann til sekta. Nú fvnr skömmu kemur tilkvnning þess efnis að nú sé bannað að tala um aðstöðu við veiðarnar og vfirleitt allt það, sem óbeinlínis feli í sér uor>lv«inp-ar um veður. ítrekuð brot varða missi talstöðvar. Það hefir hér verið drepið á þessar ráð- stafanir vegna bess, að gild rök hníga að bví að hér sé um algerlega óþarfar og óréttmætar hömlur að ræða, engum til gagns en íslenzk- um sjómönnum til stórtións og erfiðleika. Og í öðru lagi verður að víta það, að í þessum efnum skuli lögin ekki ná iafnt yfir alla þegna bióðfélagsins. — Talstöðvar þær, sem Landssíminn hefir selt fiskibátum á leigu hafa sem kunnugt er, ekki meiri stvrkleika en svo, að til þeirra heyrist í 50—80 mílna VÍKINGUR fjarlægð og ekki svo langt almcnnt. Það hlýt- ur að vera öllum vel ljóst, að ef andstæðing- ur hernámsþjóðanna er innan þess svæðis, er talstöð með áðurnefndum styrkleika dregur, þá er honum nokkuð kunnugt hvernig veðrið er alveg eins þó ekki sé á það minnst í tal- stöðinni og hlýtur því að gilda hann einu hvort á það er minnst eða ekki. Þessi staðreynd virðist og vera viðurkennd af þeim sömu mönnum, sem bannfæra veður- upplýsingar og skal nefnt dæmi þessu til sönnunar: Talstöðin hér á ísafirði hefir oft á sólar- hring (mér er sagt sex sinnum), viðskipti við talstöðina á Horni og tekur þá veðurathug- anir þaðan. Þessar veðurathuganir eru sendar með alþjóða dulmálslykli, sem notaður hefir verið um tugi ára. Allir, sem þennan lykil hafa geta því notfært sér fregnirnar, en það eru að minnsta kosti allir, sem fást við veðurat- huganir og veðurspár hverrar þjóðar sem eru. Það hefir ekki þótt ástæða til þess að skipta um dulmál. En vegna hvers? Vegna þess, að vitað er, að stöðin á Horni heyrist ekki nema mjög takmarkaða vegalengd. Það mun vera svipuð stöð og bátarnir hafa, en þó öllu sterk- ari. Það er á það minnst hér að framan, að tvennskonar réttur gilti um framkvæmd þess- ara laga. Sjómönnum eru sjálfsagt minnis- stæð hin mörgu tilfelli þar sem þeir er troð- ið hafa upp í útvarpinu, hafa gerst brotlegir við þessi veðurfregnabannlög, án þess svo vit- að sá að þeir hafi verið látnir sæta ábyrgð. Stuttu eftir nýár í fyrra, 1941, var marg- endurtekin tilkvnning í útvarpinu þess efnis aðáður ákveðin álfabrenna, sem halda átti á íþróttavellinum í Reykjavík, væri frestað vegna veðurs. Á s.l. vetri, þegar norðan of- viðrið gekk yfir SV-land, var birt tilkvnning í útvarpinu þess efnis, að Alþýðublaðið yrði ekki selt á götunum vegna veðurs. Einn fyrir- lesari útvarpsins sagði í haust í þættinum um ,,Daginn og veginn“, á þá leið, að útlit væri nú fyrir að veðurguðirnir yrðu okkur hlið- hollir næsta dag o. fl. o. fl. dæmi mætti nefna. Þessi eru ekki þau einu, en hinsvegar nógu mörg til þess að vekja á sér athygli og skyldi maður ætla að sök útvarpsins væri margföld á við sök hinna, þar sem styrkleiki þess er margþúsundfaldur á við styrkleika talstöðv- anna. 28

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.