Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1942, Blaðsíða 20

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1942, Blaðsíða 20
Það er óþarft að taka það fram, þó gert sé hér, að erindi þetta kom beinlínis fram vegna þeirrar hættu, sem enn stafaði af um- töluðu skipsflaki, sem með ári hverju gerðist nú æ hættulegra við að fjarlægjast yfirborð sjávar. Strax daginn eftir, þann 14. maí skrifaði ég vitamálastjóra, Emil Jónssyni, og' sendi hon- u.m erindi skipstjórans. Niðurlag þessa seinna bréfs míns til vita- málastjóra var sem hér segir: „Skipsflak þetta, sem búið er að vera þarna örskammt frá aðalinnsiglingaleið Djúpbáts- ins síðan árið 1928, og sem er mjög hættu- legt sjófarendum er leið þessa fara, einkum síðan það sökk meira í sjó, fór hreppsnefndin fram á í bréfi til vitamálastjóra, dags. 12. júlí 1935, að gert væri hættulaust sjófarend- um, en áheyrn hefir það enn enga fengið. Því fremur er þess þörf að leiðarljós þau og ,,bauja‘‘ fáist, sem fram á er farið í erindi skipstjórans, er oft þarf að fara þessa leið í náttmyrkri og vondum veðrum, að hausti og vetri til. Væntir nefndin þess að vel verði snú- ist við þessu erindi og að ljósmerkjum þessum verði komið upp og ,,bauja“ sett niður fyrir næstkomandi haust. Meðmæli sýslunefndar N.-JÍsafjarðarsýs 1 u fylgir hér með“. Ekkert svar; og enn hefir ekkert verið gert til þess að draga úr hættu þeirri er af hinu margumtalaða skipsflaki stafar. En allt bíður síns tíma, og ef til vill gæti það orðið til þess að opna augu vitamálastjóra fyrir hættunni, sem varað hefir verið við, ef ég segi honum frá því, sem gerðist þarna við skipsflakið sunnudaginn þann 31. ágúst síð- astliðinn. Ég ætla að gera þetta. Finnst mér ég vera skyldur til þess að sýna enn gleggra fram á voðann, og að það voru vissulega engir keip- ar frá hreppsnefnd Ögurhrepps og skipstjóra Djúpbátsins, þegar leitað var ásjár vitamála- stjóra í þessum efnum. Það var um kvöldið, klukkan að verða 10 greindan dag, að inn um opinn svefnherberg- isglugga minn bárust til mín neyðaróp fjölda manns um hjálp. Svo að segja í sömu and- ránni var hrópað fyrir utan gluggann hjá mér: „Pabbi, komdu strax og bjargaðu fólki, sem er víst að drukkna hjá togaraflakinu; flýttu þér!“ Voru þetta dætur mínar sem kölluðu, en þær voru að ganga til bæjar frá mjöltum, er þær heyrðu neyðarópin. Ég skal nú ekkert lýsa því hér, hvað mér VÍKINGUR og öllum, sem heyrðu, brá við þessa óvenju- legu röskun á kvöldkyrrðinni, því logn og góðviðri var, en nokkuð farið að skyggja. Ég spratt upp úr bóli mínu við að heyra neyðarópin, leit út í gluggann, og varð mér strax ljóst, að bátur, sem á ferð hafði verið um sundið, hafði rekist á skipsflakið, sem um hefir verið rætt. Hékk báturinn þarna upp á rönd, að því er sýndist og var ekki í fljótu bragði annað sýnna en að stórslys ætti sér þarna stað á næstu mínútum. Ég var svo að segja eftír andartak kominn undir árar á smáskekktu og reri nú lífróður, ásamt einni dóttur minni 15 ára, til liðs við hið nauðstadda fólk. Er ég hafði um það bil hálfnað róðurinn til bátsins, leit ég til hans og sá þá mér til mik- illar gleði og undrunar, að báturinn hafði losnað af flakinu og að vél hans, sem stöðvuð hafði verið við áreksturinn, var nú aftur í gangi og báturinn hélt hægt leiðar sinnar. Hélt ég síðan til lands, án þess að hafa tal af skipverjum, sem aldrei sáu neitt til minna ferða vegna þess hve skuggsýnt var orðið. Nokkrum dögum síðar en þetta var, frétti ég að báturinn, sem á flakið rakst, hefði verið véibáturinn „Haukur“ frá Bolungavík, ca. 5 smálestir að stærð. Var báturinn á leið til Bolungavíkur með fólk, sem farið hafði í berjaferð í Skötufjörð að morgni sama dags. Með bátnum voru 22 menn, karlar og kon- ur, þar af 7 unglingar á aldrinum 9 til 17 ára. Ég hefi átt tal við einn sérstaklega gætinn og glöggann mann, sem var með bátnum í þessari ferð. Ég spurði hann, hvort eigi hefði munað litlu að báturinn kantraði eða sykki við árekstur- inn? Svar hans var þetta: „Um það getur verið mismunandi álit manna, en ég vil halda að einstök heppni hafi verið að báturinn brotnaði ekki eða kantr- aði“. Leki kom upp á bátnum við áreksturinn, en þó eigi meiri en svo, að dælan hafði vel við. Báturinn komst hjálparlaust til Bolunga- víkur um kvöldið, en allir, sem á bátnum voru, voru víst sammála um að litlu hefði munað að illa færi. Sjálfum finnst mér hafa gengið krafta- verki næst, að ekki skyldu drukkna þarna all- ir, sem á bátnum voru. þegar athugað er, hversu skipsflaki þessu er háttað, sem bátur- inn rakst á. Sézt bezt um hálffallinn sjó hvernig flak 20

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.