Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1942, Side 22
ÝMISLEOT
Skipatjón íranska fiskiskipaflotans.
Þorskveiðiflotinn frá „St. Malo“ hefir ekki
farið á veiðar, til hinna stóru fiskigrunna, á
þessari vertíð, segir blaðið „Vie Industrielle“.
Þetta er afleiðing árangurs tveggja undan-
farinna vertíða.
Vorið 1940 vita menn að 22 botnvörpung-
ar, og seglskip sigldu frá „St. Malo“ undir
herskipavernd. Aðeins eitt skip kom aftur til
„St. Malo“. Nokkur struku, nokkur til Bay-
onne, nokkur til Marseilles, og nokkur til La
Rochelle, og nokkur voru hertekin, 4 skip
sukku, það voru „Anne de Bretagne“ sem
sökk í Atlantshafinu 8. nóvcmber. „Notre
Dame“ sökk við St. Johns í New Foundland
3. nóvember. „Cote d’Emeraude“ sökk við
Marokkóströnd 21. janúar, og „Charles Ed-
mond“ var sökt með tundurskeyti út af
Bordeaux 13. nóvember. Flestir af áhöfnun-
um fórust.
Árið 1941 voru 7 skip sem skrásett voru frá
„St. Malo“ og mönnuð sjómönnum frá þeirri
borg iltbúin og send á veiðar frá Bay-
onne, Bordeaux, og La Rochelle. Það voru
aðeins þessi skip sem fóru á veiðar, en öll
fiskiskip sem lágu í höfnum Ermarsunds hafði
verið lagt upp. Af þessum 7 seglskipum voru
5 hertekin af Bretum og 2 sukku. „Notre
Dame de Chatelet“ var sökt með tundurskeyti
undan Frakklandsströnd, og „Martin Pee-
heur“ brann.
Lauslega þýtt úr „The Fishing News“ frá
17. janúar 1942. K. Þ.
Aðallega mótorknúðir bátar stunda hinar
miklu fiskveiðar við Canada.
Margir Canadiskir fiskimenn hafa verið
við veiðar síðan haustið 1939. Mikið hefir
aflast, þó svo hefði sýnst, að aílinn hefði orð-
ið minni af völdum styrjaldarinnar. En fisk-
framleiðsla samveldislandsins hefir starfað
eftir stórum mælikvarða. Tvær eða þrjár töl-
ur frá árinu 1940, munu sanna þessa stað-
reynd. Síðasta ár var notað við framleiðsl-
una, við veiðar, og löndun eins og hér fer á
eftir.
Nálægt 1100 skip, meir en 34.000 bátar, og
til flutninga og dráttar og þess háttar um 600
skip og dráttarbátar. Notuð vox*u 200.000 til
VÍKINGUR
300.000 net, að frátöldum botnvörpunetum og
vírum. Notaðar voi’u kringum 1.850.000
rækjuvörpur, og kringum 6.900 vörpur af öðr-
um tegundum. Allt meðtalið munu veiðarfæri
þessara skipa og báta, nema að verðmæti meir
en 5.000.000 sterlingspunda. Annar útbúnað-
ur sem notaður er við veiðarnar þar á meðal
plön og fleira er áreiðanlega margi’a miljón
Dollara meira virði. Það er talio áreiðanlegt,
að alls hafi verið notað til þessarar framleiðslu
árið 1940 um 10.000.000 sterlingspunda virði
í veiðarfærum og öði'um útbúnaði við veið-
arnar, rúmt reiknað.
Eins og í öðrum framleiðslugreinum hefir
vélaaflið verið tekið meir og meir í þjónustu
fiskveiðanna. Með ári hverju hafa vélar verið
settar í fleiri og fleiri skip, og vélar eru komn-
ar í mestan hluta bátaflotans sem veiðar
stunda og sem notaðir ei’u til flutninga. 120
seglskipum hefir verið breytt í vélskip, og í
14,000 báta hafa vindur og önnur véli'æn
áhöld verið sett. Þar að auki hafa nokkur
þúsund báta og canoes (barkarbáta) fengið
vélar. Lítill hluti flotans er með gufuvélum.
Mestur hlutinn notar benzínvélar, en rúm 500
skip og bátar eru með díeselvélum. Tölur yf-
ir brennsluþörf veiðiflotans, eru ekki fyrir
hendi, en bensíneyðzlan er afarmikil, og hrá-
olíu og kolaeyðslan er einnig allmikil.
Af veiðarfærum komast hæzt að tölu af
einstökum veiðarfærum, vörpur notaðar við
rækjuveiðar frá fylkjunum á Atlantshafs-
ströndinni. Notaðar ei'u 1,840,777 stykki af
þeim. Rækjuvörpur kosta lítið meir en dollar
stykkið. En sum önnur veiðarfæri eða partar
þeirra og útbúnaður sem notað er við aðrar
veiðar framleiðslunnar kosta miklu meira, en
rækjuvarpan. Til að rnynda eru laxveiðinetin
sem notuð eru af laxveiðimönnum við British
Columbia að verðmæti kringum 250 sterlings-
pund. Alls eru notaðar við veiðar á sjó 13.000
segl og róðrabátar, og 18,900 bátar með ben-
zín eða dieselvélum. Veiðimenn á vötnum
Kanada nota nálægt 1300 báta með benzín
eða dieselvélum við veiðarnar og 3,794 báta
og barkarbáta (canoes). Þessi vatnaveiðifloti
ásamt bátum og barkarbátum, nema að verð-
mæti samtals kringum 200,000 sterlingspund.
Lauslega þýtt úr The Fishing News, frá 17. jan. 19420
K. Þ.
22