Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1942, Blaðsíða 26

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1942, Blaðsíða 26
SJÓMANNABLAÐIÐ VÍKINGUR Útgefandi: Farmanna- og fiskimannasamband Islands. Ábyrgðarmaður: Halldór Jónsson. Ritnefnd: Hallgrímur Jónsson, vélstjóri. ÞorvarSur Björnsson, hafnsögumaður. Henry Hálfdánsson, loftskeytamaður. Konráð Gíslason, stýrimaður. Blaðið kemur út einu sinni í mánuði, og kostar árgangurinn 15 krónur. Ritstjórn og afgreiðsla er á Bárugötu 2, Reykjavík. Utanáskrift: „Víkingur“, Pósthólf 425, Reykjavík. Sími 5653. Þegar hann kom aftur til Kiel, var eins og hula legðist yfir allan bátinn. Enginn vissi, hvert ferðinni var heitið, en okkur fannst öllum sem okkur væri veittur einhver sérstakur frarni, og hefðum ekki skipt við neinn bát í heimi, hvað sem í boði hefði verið. Okkur grunaði, að framundan væri mikil og löng herferð. U 73 tók eins mikla olíu og matvæli og hann gat borið. En Franksen gaut hornauga til „sauma- vélanna“ sinna hugsandi á svipinn — „bara að þær standi sig!“ Skóiabræður mínir á kafbátaskólanum voru fyrir löngu útlærðir. Flestir voru fyrir nokkru farnir til sjós á kafbátum og komnir á vígvöll- inn, meðan ég slæptist í Kielarhöfn eða eyddi deginum í endalausar dýfingar- og skotæfing- ar á Heikendorfflóa. En að lokum kom svo, að við þurftum ekki að fara til skipasmíðastöðv- arinnar aftur, og eitt kvöldið lögðum við að Bliichersbryggju, til þess að t;,ka seinustu birgðirnar morguninn eftir. Það var 30. marz árið 1916. Eftir að hafa farið gegnum Kielarskurðinn að nóttu til, komumst við til Cuxhaven og tókum þar 34 tundurdufl tveim dögum síðar. Eftir stutta kveðjuheimsókn á Helgolandi, slitum við öllu sambandi við heimalandið. Því næst fengum við að vita um okkar leynilegu fyrirskipanir: U 73 átti að halda til Miðjarð- arhafsins. en þar gerðu menn sér vonir um mikinn árangur af því, að leggja tundurdufl- um úti fyrir höfnum óvinanna og í hin mörgu og þröngu sund, þar sem óvinaskip fóru um. Þannig hófst okkar „kristilega herferð". Aukið öryggi sjómarma Franili. af hls. 7. séu hæfust til að granda kafbátum. Því til sönnunar má benda á það, að Englendingar tóku í stríðsbyrjun alla sína stærstu togara og bjuggu þá út með djúpsprengjum og öðr- um tækjum sem skæðust eru kafbátum, sum- part til að halda vörð á þeim slóðum sem ó- vinakafbáta var von og sumpart til að fylgja sínum eigin kafbátum. Við verðum að gera okkur það ljóst, að atvikin hafa leitt til þess að við erum o'rðnir þátttakendur í þessum hildarleik sem nú stendur yfir. Það þýðir ekki að gera sér upp ímyndað hlutleysi sem héðan af getur ekki átt sér stað í veruleikanum, en getur aftur á móti staðið í vegi fyrir sjálfsögðu öryggi skipastóls okkar. Við erum fáir og smáir og tij. samanburðar má geta þess að síðastliðið ár var mannskaði okkar hlutfallslega mejri en Stóra-Bretlands, sem nú á í ófriði og hefir menn svo milljón- um skiptir undir vopnum. Þetta útaf fyrir sig er hugðarefni þess, að við megum ekki láta neins ófreistaðs sem getur bjargað einu mannslífi. Ég hafði þá ánægju að sitja árshátíð Stýri- mannaskólans. Þar fórust hinum mæta skip- stjóra okkar Sigurði Péturssyni skipstjóra á „Gullfossi“ svo orð m. a.: „Ég vil gefa ykkur heilræði; heilræði sem mér hefir ætíð bless- ast.Þegar þið farið úr höfn, þá gerið upp við ykkur hvaða torfærur þið þurfið aö varast á leið ykkar og gerið ykkur í hugarlund hvað ber að gera ef þið lendið í þeim. Á sama hátt hvað aflaga getur farið á skipi ykkar og hvað ber að gera við því. Eí svo eitthvað af þessu kemur fyrir á ferð ykkar, skýtur alltaf upp í huga ykkar því, sem þið áður voruð búnir að ætla ykkur að bezt yrði gert og koma því aldrei til greina nein ráðþrot". Þessi orð eru sögð af reynslu og þau eiga að vera hugvekja til allra yngri sjómanna. Látum þetta heilræði einnig njóta sín nú, þótt tímarnir séu erfiðir, og reynið að sjá fram á við fyrir einum og öðrum óhöppum. Það er nú vitað að þau öryggistæki til handa sjómönnum er ég hefi minnst á hér að framan, er ekki hægt að fá keypt. En ætla má að herstjórn Bandaríkjanna láti þau af hendi með fúsum vilja. Guðm. Oddsson. VIKINGUR 26

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.