Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1949, Side 2
Gils Guðmundsson
VÍKINGURINN 10 ÁRA
Sjómannablaöií) Víkingur er tíu ára um þessar mundir. Fyrsta blaöið kom út i
júnímánuði 1939. Þeim, sem a'ð blaðinu standa, þótti við eiga að minnast þessa af-
mælis með nokkrum hætti. Þótti þá einna ráðlegast, að gefa út stórt blað, með
fjölbreyttu efni, og verja nokkru rúmi þess til að líta yfir farinn veg, en gefa þó
einnig gaum framtíðinni og verkefnum þeim, sem framundan eru. Hér á eftir verður
nú í stuttu máli rakin saga Víkingsins þann áratug, sem hann hefur lifað.
Stofnun blaðsins.
Farmanna- og fiskimannasamband íslands
var stofnað árið 1937, og var fyrsta þing þess
haldið dagana .2.—8. júní þá um sumarið. Þeg-
ar á því þingi komu fram raddir um stofnun
sjómannablaðs. Þorgrímur Sveinsson skipstj.
flutti mál þetta inn á þingið. Segir svo í þing-
tíðindum:
„Fór hann nokkrum orðum um hina miklu
nauðsyn þess, að sjómannastéttin ætti sitt eig-
ið málgagn, þar sem hún gæti skrifað um sín
áhugamál, án þess að vera háð duttlungum
pólitískra flokka“. Eftir að umræðum lauk,
var máli þessu vísað til fjárhagsnefndai'
þingsins. Nefndin athugaði málið, og skýrði
Guðmundur H. Oddsson stýrimaður frá niður-
stöðum hennar. Nefndin hafði orðið „sammála
um nauðsyn þess, að sjómannastéttin ætti sitt
eigið málgagn, en þar eð það myndi hafa
nokkurn kostnað í för með sér, en aftur á
móti væri fjárhagur sambandsins ekki kom-
inn á fastan grundvöll, sæi nefndin sér ekki
fært að koma með ákveðna tillögu í málinu,!
en nefndin vildi leggja til, að stjórninni yrði
falið að athuga þetta og koma því í fram-
kvæind, ef þess yrði kostur“.
Konráð Gíslason áttavitasmiður bar fram
eftirfarandi tillögu:
„Þingið samþykkir, að þriggja manna milli-
þinganefnd verði kosin til að athuga mögu-
leika á útgáfu málgagns fyrir sjómenn, og
komi það í ljós, að athugun lokinni, að það sé
kleift, verði stjcrninni falið að hrinda því í
framkvæmd, svo fljótt sem auðið er“.
Tillaga þessi var samþykkt, og kaus þingið
þessa menn í nefndina: Hallgrím Jónsson, vél-*
stjóra, Guðmund H. Oddsson, stýrimann, og1
Ólaf þórðarson, skipstjóra.
Á öðru þingi F. F. S. í., er haldið var í
byrjun júnímánaðar 1938, gaf Ólafur þórðar-
son skýrslu, fyrir nefndarinnar hönd, um und-
irbúningsstörf hennar. Af fjárhagsástæðum
hafði nefndin talið heppilegra, að leita sam-
vinnu við Fiskifélag Islands, um útgáfu tíma-
ritsins „Ægis“ í nokkuð breyttri mynd, þah
eð sambandið myndi eiga örðugt með að
leggja í þann kostnað, sem af útgáfu sérstaks
blaðs myndi leiða. Fiskifélagið hafði ekki vilj-
að taka þátt í þeirri samvinnu, og virtust
nefndinni því ekki önnur úrræði fyrir hendi,
en útgáfa nýs blaðs, sem kostuð yrði af sam-
bandinu. Benti nefndin á eftirfarandi leiðir í
útgáfumáli þessu:
„I. Útgáfa vikurits, ein örk í senn, í tíma-
ritssniði, með kápu og sérstökum blöðum fyrir
auglýsingar. Útgáfa slíks blaðs myndi árlega,
kosta um 25 þúsund kr., miðað við 2000 ein-
tök og góðan pappír. Er þá reiknað með 5000
kr. í ritstjóralaun.
II. Útgáfa vikurits í dagblaðssniði, á ódýr-
um pappír. Yrði það að mestu helgað dídgur-
málum og fréttum, og því ákveðnara áróðurs-
rit. Auglýsingar myndu að sjálfsögðu létta
þar stórkostlega útgáfukostnaðinn, er nema
myndi um 15 þús. kr. á ári, miðað við sama
upplag og sömu ritstjóralaun.
III. Þá væri og sú leið, að helminga fyrr-
nefndar tillögur, og senda út blað hálfsmán-
aðarlega. Kostnaðurinn myndi þó ekki með
því verða helmingi minni“.
Lagði nefndin að lokum eindregið til, að
undirbúningi málsins yrði haldið áfram.
Þingið þakkaði nefndinni gott starf, og var
samþykkt tillaga frá Henry Hálfdanarsyni,
loftskeytamanni, þess efnis, að blaðnefndinni
yrði falið að „halda áfram að kynna sér mögu-
leika fyrir sameiginlegri blaðaútgáfu fyrir sam-
bandsfélögin og vinni nefndin í samráði við
stjórn félagsins.
Að fengnum nauðsynlegum upplýsingum,
V í K I N □ U R
142