Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1949, Síða 6

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1949, Síða 6
manna, hins vegar skemmtiefni í alþýðlegum stíl. það er því jafnan í mörg horn að líta, þegar ganga skal frá hverju blaði, og ekki viði að búazt, að allir kæri sig um allt, sem þar er birt. í raun og veru hlýtur takmarkið að vera, það, að hafa fjölbreytnina sem mesta, svo aði Guðmundur Jensson, gjaldkeri og afgreiðslumaður frá 1945. allir sjómenn finni í blaðinu eitthvað við sitt hæfi. Að því hefur einnig verið stefnt, þótt árangurinn sé að sjálfsögðu nokkuð misjafn. Víkingur mun hér eftir sem hingað til gera, sér far um að ræða málefni íslenzkrar sjó- mannastéttar öfgalaust, en með fullri hrein- skilni og djörfung. Verkefnin eru nálega ótelj- andi. Þráttfyrir það, sem áunnizt hefur á und- anförnum árum, einkum að því er varðar auk- inn og bættan skipastól landsmanna, blasa hvarvetna við óleyst viðfangsefni. Hér skulu aðeins nefnd fáein af mörgum : Landhelgis- málið, áframhaldandi efling togara- og kaup- skipaflotans, stórfelld aukning fiskiðju í land-( inu, umbætur í vita- og hafnamálum, rekstur síldarverksmiðjanna, auk margs annars, sem; of langt yrði upp að telja. Síðast en ekki sízt þarf að vinna að því öllum árum, að ungir úrvalsmenn kjósi sjómennskuna að ævistarfi sínu. Slíkt er brýn nauðsyn þjóðinni allri. Til þess að svo geti orðið, þurfa sjómönnum að vera búin betri kjör en hægt er að fá við margfalt léttari og áhættuminni störf í landi. Sjómannablaðið Víkingur er jafnan fús til að birta rökstuddar greinar sjómanna um öll þau málefni, er stéttina varða, svo og almenn- ar hugleiðingar þeirra um landsins gagn og'I nauðsynjar. Að svo mæltu þakkar ritstjóri Víkings fyrir' blaðsins hönd öllum þeim, sem lagt hafa því lið á einn eða annan hátt undanfarin tíu ár. Þess er að vænta, að blaðið megi í framtíð- inni njóta sívaxandi stuðnings og velvilja sjó- mannastéttarinnar. Af sjómannastéttinni er blaðið stofnað og með henni og fyrir hana vill það vinna. íTjmœlki Kennarinn: — Hvað er átt við með því, þegar svo er að orði kveðið, að Karl 12. hafi verið einvaldur? Nemandinn: — Hann lét hvorki þing né stjórn segja sér fyrir verkum og var auk þess ókvæntur. ★ Jón: — Ég veðjaði við mann að ég skyldi ekki bragða mat í 14 daga og ekki sofa í 14 nætur. Björn: — Hvernig fór? Jón: — Ég vann — því ég át á nóttunni og svaf á daginn. ★ Filppus prófessor var oft utan við sig. Ðag nokk- urn mætir hann einum nemanda sínum á götu og taka þeir tal saman. Og hvernig líður konunni yðar? spyr prófessor- inn. — Ég ei* ókvæntur, herra prófessor, svaraði stúd- entinn. Nú jæja, afsakið! En segið mér: Hafið þér verið lengi ókvæntur? ★ •—- Mangi, segðu honum Palla, ef þú hittir hann, að flýta sér heim að borða. — Það skal ég gera. En hvað á ég að segja honum, ef ég hitti hann ekki? ★ — Mér er sagt, að gjaldkerinn sé strokinn. Ætli nokkuð hafi horfið með honum? — Já, kona bankastjórans. — En ekkert verðmætt? ★ Einhverju sinni stofnuöu Spánverjar dýravernd- unarfélag. Féiagið þurfti á rekstrarfé að halda, og komu fram ýmsar tillögur um það, hvernig fjárins skyldi aflað. Sú lillagan, sem langflestir aðhylltust, var á þá leið, að slofnað yrði lil stórkostlegs nauta- ats í gróðaskyni fyrir félagið! ★ Stína litla er átta ára gömul. Mamma hennar er að því kominn að ala barn og amma Stínu ætlar að segja henni frá því. Gamla konan kemur nú með langan og ýtarlegan formála, en eftir miklar vanga- veltur vikur hún loksins að efninu. Þá hrópar Stína: Ja, amma mín! Hefirðu ekki tekið eftir þessu fyrr! 146 VÍ KIN G U R
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.