Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1949, Side 9

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1949, Side 9
12. Nefndastörf og afskipti af byggingu og fyrirkomulagi í hinum nýju togurum, sem til landsins hafa komið á síðustu árum. Margþætt og langvarandi viðskipti við ríkisstjórnir og Alþingi um þessi og hliðstæð mál. 13. Langvarandi barátta fyrir stækkun land- helginnar, friðun fjarða og flóa og helgun land- grunnsins, sem séreignar íslendinga. Þeir, sem máske ekki hafa skilið þörfina og rétt vorn til þessara breytinga áður, mundu nú skilja það, ef þeir ferðuðust meðfram ströndum landsins í björtu veðri, og sæju alla þá mergð erlendra skipa, sem eru nú að gjöreyða fiskimiðunum okkar. Ef eigi verður bráður bugur undinn að þessari sjálfsögðu réttarbót, verða fiskimenn vorir, fyrr en varir, að fara að leita á erlend fiskimið. En þá er eigi víst hvernig fer, en eng- inn má við margmenni, og ágangur hinna er- lendu skipa færist sífellt í aukana, sem eðlilegt er, því hver hugsar um sig. Það er eigi nóg að hafa góð skip og duglega fiskimenn, við verð- um líka að hafa svigrúm og frið til þess að fiskimennirnir geti beitt sér með sem beztum árangri. Fyrir því er og ávallt tímabært að bæta og auka landhelgisgæzluna, með góðum skipum, sem að gagni koma. Það dugar ekki að horfa í útgjöld við það. Þetta er lífsspursmál, og hefur ávallt verið baráttu- og áhugamál F.F.S.I., hvað sem hver segir. En um aðferðir við gæzluna verða sennilega enn skiptar skoð- anir, því miður. H. Fjöldamörg önnur verkefni hefur sam- bandið haft með höndum á þessu tímabili, sem mörg hafa verið túlkuð í blaðinu og notið stuðn- mgs af tilveru þess. 15. Að lokum má benda á, að fyrir atbeina sambandsins hefur, með viturlegri og réttlátri túlkun málefnisins af hendi lögfræðings sam- bandsins, unnizt mikið hagsmunamál fyrir alla sjómenn. Vannst málið bæði í undir- og hæsta- vétti. Er svo ákveðið í dómi um málið, að þeir, ei’ áhættuþóknunar nutu 1947, fái að nokkru endurgreidda álagða skatta, bæði hjá ríki og bæjum, að því að vitað er nú. Er um að ræða mikla fjárupphæð, er saman kemur, og kemur öllum sjómönnum til góða, sem áður getur, án tillits til þess hvort þeir eru innan vébanda vorra eða annara; er ekki nema gott til þess að vita, að svo er. Margt fleira mætti nefna, en hér skal láta staðar numið að sinni. Víkingurinn er nú 10 ára, en samtökin bráð- urn 13 ára. Margt skemmtilegt hefur blaðið thitt á þessu tímabili, og margt, sem hefði mátt °& getað verið betra. En víst er um það, að v í K I N G u R blaðið nýtur vinsælda víðsvegar um landið og er samtökunum ómissandi. Það er því að vonum, að maður vilji þakka blaðinu og þeim, sem mest hafa lagt að sér við það, bæði ritstjórum, skrifstofustjóra sambands- ins og afgreiðslumönnum þess víðsvegar um landið. Ég hefði tilhneigingu til þess að minnast á suma grjótpálana okkar, fyrir þeirra stéttvísi og vináttu, fyrir atorku þeirra að koma blað- inu á framfæri og fyrir að annast innheimtu andvirðisins, en á skilvísinni byggist mest. Allir þessir menn eiga óskipta aðdáun allra þeirra, sem eigi vilja blaðið okkar feigt, og þakklæti okkar, sem næst því stöndum. Við látum nægja að þessu sinni, að þakka þeim sameiginlega, en margir eru þeir, sem ættu skilið, að þeirra væri minnzt. Sterk samtök, gott og fullkomið sjómanna- blað, gefur stéttinni styrk og áræði til frekari baráttu fyrir aukinni menningu og fyrir rétti þeirra, er starfa að hinum erfiðustu viðfangs- efnum. Sjómannastéttin er að vakna til með- vitundar um mátt sinn og réttinn til þess að taka fullan þátt í baráttumálum dagsins, í fullri vissu um það, að um þá muni, hvar sem þeir taka til hendinni. Héðan í frá lætur hún ekki stinga sér svefnþorn í þessum efnum, en mest munar um ef allir taka á í einu. Verum því sam- taka og notum blaðið, vinsældir þess og sam- takamáttinn, svo að alls staðar sé sókn en ekki kyrrstaða. Til þess að ná þessum árangri, þurfa samtökin sífellt að vera á verði og vakandi fyrir hverjum þeim umbótum, er mættu vei'ða stétt vorri og þjóðinni til gagns. Bitrasta vopnið í þessum leik er blaðið, ef rétt er á því haldið. Við þessi tímamót þökkum við Víkingi vökult starf, og látum í ljós þær óskir, að hann verði sigursæll og starf hans heillaríkt fyrir ættj örð- ina á ókomnum árum. — Hvers vegna giftist hún Sesselja ekki? — Hún bíður eftir þeim útvalda. — Hver er það? — Sá, sem fyrstur biður hennar. ★ — Okkur langar til að líta á svefnstofuhúsgögn. — Sjálfsagt, en eiga það að vera þægileg húsgögn eða nýtízkuhúsgögn? ★ — Ég þekki mann, sem var svo nærsýnn, að hann varð að sofa með gleraugu til þess að geta þekkt menn- ina, sem hann dreymdi. 149

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.