Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1949, Qupperneq 12

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1949, Qupperneq 12
Halldór Jónsson FLEIRI SKIP, FLEIRI SJÓMENN Óhætt er að fullyrða það nú, að það var mikið happaspor stigið hjá Farmanna- og fiski- mannasambandi fslands, þegar sú ákvörðun var tekin, að gefa út rit, sem túlkaði einkum áhuga- mál sjómannastéttarinnar. Það er ekki aðeins, að þetta málgagn, Sjómannablaðið Víkingur, sem nú er 10 ára, hafi haft hagsmuna- og menn- ingarlegt gildi fyrir sjómannastéttina sjálfa, heldur má fullyrða með rökum, að það hefur haft heillarík áhrif fyrir þjóðfélagið í heild, og á ég þar sérstaklega við, auk margs annars, þann þátt, sem þetta blað hefur átt í því, að túlka málefni sjávarútvegsins, og þá baráttu, sem það alla tíð hefur haldið uppi fyrir endur- nýjun og aukningu fiski- og farflota lands- manna. Engum var það kunnara en sjómönnum og þeim, sem við útgerð fengust fyrir síðustu styrjöld, hve hörmuleg niðurníðsla varð á skipa- flota landsmanna og hve illa var á allan veg að útgerðinni búið. Skilningur ráðamanna þjóð- félagsins á hag útvegsins og gengi var, vægast sagt, mjög takmarkaður, og viljinn ennþá veik- ari en getan til úrbóta. Þeir tímar eru ekki löngu liðnir, er mönnum var neitað um innflutning á nýjum botnvörpu- skipum og þeir jafnvel sektaðir fyrir innflutn- ing skipa, meðan gömlu skipin voru að úreldast og týna tölunni. Og sjómenn og útvegsmenn ættu að vera þess langminnugir, að hag þeirra er svo bezt borgið, að þeir leggi krafta sína fram sameiginlega sjávarútvegi og siglingum til hags- bóta. Á þessu 10 ára afmæli Sjómannablaðsins Víkingur er ekki ástæða til þess að ræða að ráði um liðinn tíma, heldur gera ,sér nokkra grein fyrir þeim verkefnum, sem framundan eru, og vil ég að þessu sinni ræða hér stutt- lega um eitt hið helzta þeirra, sem formað er í fyrirsögn þessarar greinar, að við eignumst fleiri skip og fleiri sjómenn. Á 8. sambandsþingi F.F.S.Í., 30. september til 10 október 1944, var samþykkt mjög ein- dregin áskorun á Alþingi, að lögfesta bindingu þáverandi gjaldeyrisinneigna landsmanna er- lendis, svo að ákveðnum hluta þeirra yrði ein- göngu varið til aukningar og endurnýjunar fiski- og farskipaflota landsins og til kaupa á vélum og öðru, er með þyrfti til aukinnar hag- nýtingar sjávarafurða, verksmiðjubygginga í þágu sjávarútvegsins, hafnargerða og annars, er sjávarútveginum mætti að gagni koma. Jafnhliða því að senda öllum þingflokkun- um þessa áskorun, skrifaði F. F. S. í. öllum stærstu félagasamböndum annara stétta, og fékk þau til þess að styðja þessa kröfu. Um þetta leyti var pólitískt öngþveiti svo mikið í landinu, vegna ósamkomulags þing- flokkanna, að ómögulegt virtist að mynda þin&' stjórn í landinu, en 21. október 1944 tókst Ólafi Thors, form. Sjálfstæðisflokksins, að mynda þriggja flokka stjórn, er hafði á stefnuskrá sinni stórfellda nýsköpun atvinnutækja lands- manna og viðreisn atvinnuveganna. Og má hik- laust segja, að aldrei hafi nokkur stjórn af- rekað jafn mikið á svo skömmum tíma í atvinnu- sögu þjóðarinnar sem þessi. í tillögu F.F.S.Í. voru það taldar „lágmarks- kröfur til aukningar og endurnýjunar verzlun- arskipaflotans, að keypt verði til landsins eigi færri en 15 til 20 flutninga- og farþegaskip. Til aukningar fiskveiðiflotans, að keypt verði eigi færri en 75 nýtízku botnvörpuskip, og eigi færri en 200 vélskip“. Greinargerð fyrir þess- um kröfum F.F.S.Í. má lesa í Sjómannablaðinu Víkingur, desemberhefti 1944. Nú getur íslenzka þjóðin, þrátt fyrir ýmsa örðugleika, fagnað því, að slík stefna var tekin upp úr styrjaldarfárinu. íslenzku sjómennirnir starfa nú á nýjustu og beztu fiskiskipum, sem til eru, og aflaafköst þeirra eru allt að helm- ingi meiri en áður var, og farmennirnir okkar sigla á nýjum og stórum farþega- og flutninga- skipum. En þó er langt í frá að nóg sé að gert um endurnýjun og aukningu fiskiskipa- og far- flota landsins. Það er alveg sérstök ástæða að minnast þess einmitt nú, að Sjómannablaðið Víkingur verður að hefja enn á ný mjög sterka og eindregna baráttu fyrir a. m. k. tvöföldun togaraflotans á næstu 2—3 árum, hlutfallslegri aukningu far- skipaflotans og stórkostlegri aukningu á vinnslu 152 VÍ KIN G U R
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.