Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1949, Page 13

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1949, Page 13
sjávarafurða í landinu sjálfu. Jafnhliða slíkum aformum verður að vinna ötullega að því, að sjávarútveginum verði gert mögulegt að safna sjóðum og tryggja fjárhagslega afkomu sína. Það þykir máske sumum öfgakennt, að varpa íram slíkum kröfum nú, en enda þótt fulltæm- andi rök fyrir sanngildi þeirra verði ekki færð fram í einni blaðagrein, vil ég þó benda á nokk- ur atriði að þessu sinni. íslendingar eiga nú sem stendur 33 nýja tog- ara, og ákveðið hefur verið að byggja 10 í við- kót á næstu tveimur árum, þ. e. a. s. eftir þess- uiri áformum ætti togarafloti okkar Islendinga að vera 43 skip árið 1952—53, en það er 4 skipum færra heldur en 1925, þegar hér voru gerðir út 47 togarar. Það sér því hver heilvita j^aður, að á þessum aldarfjórðungi verður bein- línis fækkun á þessum stórvirkustu atvinnu- ia^kjum sjávarútvegsins, ef ekki á að setja ^arkið hærra heldur en nú er gert um aukn- lngu togaraflotans. Einhver vildi máske benda a i þessu sambandi, að afköst nýju skipanna séu ^ í K i n g u R margföld á við þau gömlu, en það fær ekki stað- izt í samanburði við þá fólksfjölgun, ,sem verð- ur á sama tíma. Eldri togarana er heldur ekki hægt að telja með í þessu sambandi, þar sem áformað er að selja þá við fyrsta tækifæri, og sem vissulega verður að gerast mjög fljótlega. Með aukningu fiskveiðiflotans, aukinni vinnslu sjávarafurða í landinu, vaxandi fólks- fjölgun, og þar af leiðandi aukinni flutninga- þörf, er brýn nauðsyn á því að fjölga að mikl- um mun flutninga- og farþegaskipum landsins, því þrátt fyrir þau nýju skip, sem við höfum eignazt, verðum við ennþá að notast við leigu- skip í stórum stíl, svo að varlega er áætlað, að við þyrftum að auka farskipaflota okkar um 8—10 skip á næstu 3 til 4 árum. Jafnhliða aukningu fiskveiðiflotans þarf að auka enn að mun fiskiðnaðinn í landinu, þar sem gera verður ráð fyrir að á næstu árum þurfi að vinna hráefnið meira hér innanlands en gert hefur verið fram að þessu, enda gerir það afurðirnar margfalt verðmeiri. 153

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.