Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1949, Blaðsíða 22
slíkt próf ei’ ekki sett sem skilyrði fyrir t. d.
skipstjóra- eða fyrsta stýrimannsstöðu á varð-
skipin. •
Inntökupróf eru engin við skólann, en bekkja-
próf eru, í íslenzku og stærðfræði milli fyrsta
og annars bekkjar farmanna- og fiskimanna-
deilda, og í siglingafræði, íslenzku, stærðfræði,
siglingareglum, skipagerð, ensku og dönsku,
milli annars og þriðja bekkjar farmannadeild-
ar. Burtfararpróf fyrir fiskimenn og farmenn
cru svo haldin í apríl-maí ár hvert.
Inntökuskilyrði í skólann eru þau, að um-
sækjandi leggi fram vottorð um % hluta þess
siglingatíma, sem krafizt er í lögum um atvinnu
við siglingar, til.þess að geta fengið það stýri-
mannaskírteini, sem burtfararprófið veitir.
Siglingatíminn, sem krafizt er fyrir stýrimanns-
réttindi cr: fyrir fiskimenn 36 mánuðir, af þcim
tíma mega 18 mánuðir vera á skipum 12—30
rúmh, cn 18 mán. eiga að vera á skipum yfir
30 rúml. og af þeim tíma 6 mán. á skipum yfir
60 rúml. Fyrir fannenn er siglingatími 48 mán.
á verzlunar- cða varðskipi yfir 100 rúmlestir
og af þcim tíma þarf 12 mán. sem fullgildur
háseti, bátsmaður cða timburmaður í utanlands-
siglingum, og auk þess 24 mán. á fiskiskipi yfir
30 rúm. Auk siglingatímans verður umsækjandi
að leggja fram heilbrigðisvottorð, vottorð frá
augnlækni um sjón og heyrn, siðferðisvottorð
og vottorð um að hann kunni sund. Námsgrein-
ar þær, scm kenndar eru við skólann, eru
þcssar:
Siglingafræði, stærðfræði, siglingareglur,
merkjagjafir með Ijósmorse og merkjaflöggum,
mælingar með sextanti, sjómennska, bókleg og
verlíleg, sjóréttur, íslenzka, enska, danska,
hcilsufræði, landa- og veðurfræði, vélfræði, eðl-
isfræði, bókhald og viðskipafræði. Þá æfa nem-
endur sund eina klst. í viku og sækja að auki
sundnámskeið, þar sem þeir læra m. a. björg-
unarsund. Líkamsæfingar iðka þeir tvisvai’ í
viku. Nú orðið taka nemendur próf í báðum
þessum greinum. Björgunaræfingar með flug-
línutækjum eru haldnar mánaðarlega meðan
skólinn starfar, og sér Slysavarnafélag Islands
um þær.
Fastir kennarar við skólann eru nú fjórir,
auk skólastjórans, 3 siglingafræðikennarar og 1
tungumálakennari. Auk þeirra starfa svo
stundakennarar eftir því, sem með þarf.
S.l. skólaár kenndu 16 menn við skólann, og
eru þó ekki þar með taldir þeir, sem kenndu
þær greinar, er nemendur sóttu utan skólans,
þ. e. sund, leikfimi og björgunaræfingar.
Stýrimannaskólinn hefur nú yfir að ráða 9
skólastofum á þriðju hæð hússins, 8 eru not-
aðar fyrir kennslustofur, en ein fyrir kennara-
stofu og áhaldaherbergi. Skólanum voru annars
ætluð áhalda- og athuganaherbergi í turni húss-
ins, en enn sem komið er hefur ekki verið hægt
að taka þau í notkun, þar eð frágangi þeirra
er ekki lokið. Er það mjög bagalegt fyrir kennsl-
una, því að skólastofurnar eru, yfirleitt ekki
heppilegar fyrir athuganir og mælingar í þeim.
Á efstu hæð hússins eru heimavistarherbergi,
og geta nemendur fengið herbergi leigð með
góðum kjörum.
Af herbergjunum hefur Vélskólinn sinn á-
kveðna fjölda, miðað við nemendatölu. Heima-
vistin hefur áreiðanlega orðið til þess, að marg-
ir hai'a getað stundað nám við skólann, sem
hefðu annars þurft frá að hverfa, vegna hús-
næðisörðugleika. Fjöldi nemenda eru utanbæj-
armenn, og allir vita, hvcrnig húsnæðismálum
Reykjavíkur hefur verið varið undanfarin ár,
og hverjum afarkostum flestir hafa orðið að
sæta, sem hafa verið svo ógæfusamir að þurfa
að leita sér húsnæðis hér í höfuðborginni.
Kennsluáhöld hefur skólinn cignazt nokkur
á seinni árum, þótt færri séu en þyrfti að vera,
þar sem geysimiklar breytingar hafa orðið í
siglingatækni frá því sem var, fyrir síðustu
heimsstyrjöld. Kaupmáttur skólans er ekki mik-
ill, og gjaldeyrisvandræði, eins og allir vita. Ár-
lega er þó veitt nokkur upphæð til þcssara
þárfa, en hún hrekkur aðeins fyrir ódýrum
tækjum.
Hin nýju siglingatæki, scm rutt hafa sér til
rúms á seinni árum, kosta það mikið, að ekki
Irafa verið tök á fyrir skólann að eignazt þau.
Landssíminn hefur þó sýnt skólanum þá vin-
sernd, að lána honum citt þcssara tækja, Loran-
tæki, og var það sctt upp í cinni kennslustof-
unni nú í vor. Þá færðu umboðsmenn félagsins
Log Company Ltd., London, þeir RicJiard Thco-
dórs og Aðalsteinn Pálsson, skólanum nýjan veg-
mæli að gjöf, og hraðamæli samskonar og er 1
flestum nýsköpunartogurunum o. fl. ísl. skipum*
Siglingatæki það, sem skólann vantar tilfinn-
anlcgast, til þess að kennslan geti kornið að serh
æskilegustum notum, er Gyrokompás. í hinum
nýbyggðu verzlunarskipum okkar og í su,m-
um þeim eldri eru nú Gyrokompásar. Tæki þessi
eru afar viðkvæm og þurfa sérstakrar gæzlu
og meðferðar, ef þau eiga að koma að fullum
notum og endast eitthvað, og má ekki láta aðra
gæta þeirra en þá, ,sem hafa áður leitað sér
fræðslu um meðferð þeirra og gæzlu. Slíka
fræðslu er enn sem komið er ekki hægt að veita
hér á landi, vegna þess að kennslutækin vantai’.
Þeir, sem um þessi tæki eiga að annast, verða
því að sækja námskeið utanlands, og standa þa11
víkinguR
162