Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1949, Side 42
Togarinn Jörundur.
£kip Mlat
Ýmsir lesendur Víkings hafa látið þá ósk í Ijósi, að blaðið birti fram-
vegis og að staðaldri greinilegar frásagnir af nýjungum á sviði skipasmíða
og véltækni. Blaðið hefur akveðið að verða við þessu, eftir því sem rúm
þess leyfir. Hefur það að vísu flutt ýmislegt áður um þetta efni, en nú
verður það tekið upp sem fastur þáttur í hverju liefti.
Jörundur
Dieseltogarinn Jörundur, sem í byggingu er
í Skipasmíðastöð Brook Marine, Ltd. í Lowe-
staft, er athyglisverður fyrir margra hluta
sakir.
Aluminiumblanda (Noral 515 og Noral 655)
er notuð í klæðningu og skiljur í fiskilestum,
sem einnig eru kældar.
í skipinu er lýsisbræðsla, sem á að geta af-
kastað ca. 20 smál. af lýsi í túr. Einnig er í
skipinu stærsta togvinda, sem enn hefur verið
sett í skip. Jörundur er stærsta skip, sem byggt
hefur verið í Lowestoft. Eigandi er Guðmundur
Jörundsson.
Aðalmál skipsins eru:
þeir töldu sér skylt, húsbænda sinna vegna,
að reyna að koma í veg fyrir að stöðvarnar
yrðu gerðar gagnsminni en efni standa til,
eins og í þessu síðasta tilfelli.
Togaraloftskeylamaður.
Mesta lengd 167 fet, kjöllengd 150 fet, breidd
28 fet, stærð 470 tons (gross reg.). Stærð lestar
12000 rúmfet, vélaafl 950 b.h.p., ganghraði 12
sjómílur.
Mirrlees dieselvél 950 b.h.p. er í skipinu, dríf-
ur hún skrúfuna gegnum 2—11 niðurfærslu-
,,gear“. Meðal snúningshraði skrúfu í fullri
keyrslu er 147 snúningar á mínútu
Hjálparmótorar eru þrír:
225 b.h.p. mótor, tengdur við Vickers V. S.
G. vökvadælu fyrir togvinduna. Þessi mótor
drífur einnig 50 kw. 110 volta rafal. 88 b.h.p.
mótor, sem drífur 50 kw. rafal. 44 b.h.p. hjálp-
armótor, tengdur við loftþjöppu, dælu og 5 kw.
rafal.
Togvindan er af Robertson Artic gerð, með
tveimur vindukeflum, sem hvort tekur 1200
faðma af 3“ vír. I lýsisbræðslunni er skilvinda
og rafmagnsdæla, til losunar á á lýsi í höfn.
Vélar hafa verið settar í skipið til framleiðslu
á fiskimjöli. Afköst þeirra eru um 10 smál. af
mjöli á 24 klukkutímum.
1B2
V I K I N G L) R