Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1949, Qupperneq 45
Togari í smiðum í Lowestoft. Lestarrúm verða klædd.
aluminium.
og matsvein, og 5 herbergi fyrir háseta og
drengi. Einnig er þar borðstofa undirmanna og
kæligeymsla fyrir matvæli.
Tvö stór hylki (Deep tanks) eru í skipinu
astluð til flutnings á sérstökum olíum, annað
framan við forlest, sem tekur nálega 72,5 tons,
og hitt, sem tekur nálega 128 tons, er miðskips,
milli lesta. Þessi hylki verða einnig notuð undir
sjóballest. Atlas frystivélar eru í skipinu og
halda þær h-23° celsius hita í lestunum. „Don-
kin“ rafmagns-vökva stýrisvél.
Aðalmál:
Mesta lengd 58,1 m., kjöllengd 55,0 m., breidd
9,0 m., dýpt 3,8 m., djúprista (sumar fríborð)
3,77 m., Rými fullhlaðið 685 tons, meðal gang-
hraði 12,5 sjómílur.
Á skjólþilfari eru 10 litlar lúkur og 4 raf-
magnskranar, sem hver um sig hefur 1 tons
lyftiorku. Auk kælilestanna, sem eru 32,251
rúmfet samanlagðar að stærð, er lítil lest fyrir
framan forlest ætluð til flutnings á ókældum
vörum.
Aðalvél skipsins er Nohab diesel, byggð af
Nydqvist og Hólm, tvígengis, snavend, sex
strokka. Strokkvídd er 345 mm. og slaglengd
er 580 mm. Er vélin gengur með 260 s.p.m. gef-
ur hún 900 vinnuhestöfl.
Rafmagn fyrir losunarkrana, frystivélar, dæl-
ur og ljós, fæst frá þremur 60 kw. röflum.
Þijtt.
Vmíslegt
Islenzkt varöskip er nú í smíðum í Aalborg
skipasmíðastöðinni í Danmörku, fyrir Skipaút-
gerð ríkisins, Reykjavík. Skipið verður 185 feta
langt og í því verða tveir 8 strokka Crossley
Dieselmótorar, samtals 3,200—3,500 hestöfl.
Hraði er áætlaður 17 sjómílur.
•
Japanir byggja skip.
Samningur hefur verið gerður milli Mitsubs-
bishi Jukogyo, K. K. í Tokio, og ríkisstjórnar
Fillippseyja, um byggingu þriggja 10.000 smál.
farþega- og vöruflutningaskipa, sem eiga að
ganga 17 sjómílur.
•
Diesel-togarar.
Nú er verið að breyta togaranum „Fairfree“
úr gufu- í dieseltogara, með innsetningu tveggja
Mirrlees dieselmótóra, sem hvor er 486 h.ö.
með 300 snúningum á mínútu. Togari þessi er
upphaflega byggður sem tilraunaskip. Hann
tekur vörpuna inn yfir skutinn.
•
Skipasmíðastöð Richard Dunston & Co. er að
byggja tvo 125 feta langa togara fyrir St.
Andrews Steam Fishing Co., í Hull.
Aðalvél í hvoru skipi er 7 strokka Mirrlees
mótor 567 h.a. með 200 s.p.m. 225 h.a. mótor
með 500 s.p.m. er í hvoru skipi, til að drífa
þrýsti-vökvadælu fyrir togvinduna.
Vélstjórar rafmagnsvéla.
í Noregi — Osló og víðar — hafa verið haldin
sérstök námskeið fyrir vélstjóra við rafmagns-
vélar, til að mæta aukinni eftirspurn raffræði-
lega lærðra manna á kaupskipin. Talið er að árið
1952 muni norski kaupskipaflotinn telja 626
mótorskip, sem flest muni hafa raffræðing um
borð, og muni þurfa um 800 menn til að full-
nægja eftirspurninni.
Áætlað er, að hægt verði að útskrifa 125 rétt-
indamenn á ári, sem allir hafi að baki 5 ára
vinnu í rafmagnsiðnaði, auk 12 mánaða til sjós
og 10 mánaða fagskólanáms.
v I K I N □ U R
1B5