Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1949, Qupperneq 70
S jötugur:
JÓN E. BERGSVEINSSON
Jón E. Bergsveinsson erindreki Slysavarna-
félags íslands, átti 70 ára afmæli 27. júní s.l.
1 tilefni þess var honum haldið samsæti í Tjarn-
arkaffi sama dag, þar sem Jóni voru fluttar
margar þakkarræður fyrir vel unnin störf í
þágu lands og þjóðar, og þá sérstaklega fyrir
störf hans við Slysavarnafélag íslands, en þar
hefur Jón unnið alla tíð frá því félagið var
stofnað. Ég tel vel til fallið að Sjómannablaðið
Víkingur geymi á blöðum sínum þætti af ævi-
starfi Jóns, og hans helztu áhugamálum, en hér
verður aðeins lítillega minnzt á það helzta.
Jón E. Bergsveinsson er fæddur að Hvallátr-
um í Barðastrandasýslu 27. júní 1879. Ungur
að árum byrjaði hann sjóferðir á opnum skipum
og vandist því snemma á sjó að teflt væri á tvær
hættur á hinum litlu, opnu fleytum. Áður en Jón
hafði náð tvítugsaldri, var hann búinn að taka
að sér formannsstarf, þótti hann sækja sjóinn
fast, og oft var lítið borð fyrir báru, því Jón
var mjög aflasæll, en allt tókst þetta slysalaust.
Um þetta leyti fjölgaði mjög þilskipum á Vest-
urlandi, yfirgaf hann nú áraskipin og fór til
sjós. Þótti hann þar, eins og á áraskipunum,
góður liðsmaður.
Jón fór svo í Stýrimannaskólann og lauk
prófi þaðan 1902. Úr því var hann ýmist stýri-
maður eða skipstjóri. En Jón vildi kynnast
fullkomnari veiðiskap, en hér var þá, að dorga
með einum öngli. Jón brá sér því til útlanda
og sigldi á erlendum fiskiskipum, bæði togur-
um og síldveiðiskipum, aðallega frá Hollandi.
Hann lagði sig mjög eftir því, hvernig unnið
væri að söltun síldar. Eftir að Jón hafði aflað
sér nægilegrar kunnáttu í þessu, kom hann
heim, og byrjaði strax að leiðbeina öðrum í því,
sem hann hafði aflað sér þekkingar á; var það
mörgum haldgóður skóli.
Þegar síldarmat var lögboðið hér á landi, var
Jón skipaður yfirsíldarmatsmaður fyrir Eyja-
fjörð og hafði hann það starf á hendi í mörg
ár, samhliða því setti hann upp vinnustofu til
viðgerðar á síldarnótum, einnig hafði hann um
21 □
tíma smávegis verzlun á Akureyri, en þar var
Jón búsettur þá.
Árið 1922 var Jón kjörinn forseti Fiskifélags
Islands og gegndi hann því starfi í tvö ár, en
hélt síðan áfram starfi þar, sem var í því fólgið
að safna skýrslum um slysfarir á sjó hér við
land. Að lokinni þessari skýslugerð, fór hann
til Englands og Noregs til að kynna sér slysa-
varnir.
Eftir heimkomuna úr þessu ferðalagi vann
Jón að því við stjórn Fiskifélagsins og stjórn
Skipstjórafélagsins „Aldan“, að þessi félög
gengjust fyrir félagsstofnun, sem hefði það eitt
á stefnuskrá sinni, að gera allt sem unnt væri
til þess að fækka hinum tíðu sjóslysum.
Hann fékk í lið með sér hinn alkunna og
ötula landlækni Guðmund Björnsson, sem ásamt
framantöldum aðilum stofnuðu Slysavarnafé-
lag íslands á öndverðu ári 1928.
Síðan hefur Jón verið starfsmaður hjá Slysa-
varnafélaginu og erindreki þess. Það starf hans
er öllum núlifandi fslendingum svo vel kunnugt,
að óþarft er að skýra þá sögu hér, enda ekki
rúm fyrir það í stuttri blaðagrein.
Heillaóskirnar og þakkarávörpin, sem Jón
fékk á afmælisdaginn, eru beztu sönnunar-
V í K I N G U R