Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1949, Síða 76
Frá Angmagssalik á Austur-Grænlandi.
höfn, sem opin er öllum þjóðum. Syðsta höfn-
in, sem „Útvegur h.f.“ fékk leyfi til að nota,
heitir Ravn-Storö. Mun hún í framtíðinni verða
einkar hentug að vorinu og framan af sumri,
meðan fiskur er mestur þar suðurfrá.
— Hvenær er beztur veiðitími á Grænlands-
miðum?
— Að sjálfsögðu er bezt að veiða þar að
sumrinu, meðan bjartur er dagur og íslaust við
ströndina. Talið er, að heppilegt sé að hefja þar
veiðar í lok maímánaðar eða byrjun júní. Veið-
ar eru þar síðan stundaðar fram undir septem-
berlok.
— Álítið þið Súðina hentugt móðurskip í
svona leiðangur?
— Hún er það að mörgu leyti. Kemur þar
einkum til, að hún hefur kælirúm til geymslu
á beitusíld og matvælum, rúmgóðar íbúðir fyrir
skipshöfn og verkafólk og nægilegt rúm fyrir
lifrarbræðslu. Um borð í henni er einnig allgóð
aðstaða til fiskaðgerðar. Helzti ókostur Súðar-
innár er sá, að hún er kolaskip, sem þarf mikið
eldsneyti, og er að því leyti nokkuð dýr í rekstri.
Hefur því verið ákveðið, að láta hana sem mest
liggja á höfnum inni, enda mun það gerlegt,
því skammt er að leita aflans.
— Hvað verður flotinn stór að þessu sinni.
— Það verða sennilega 5—8 bátar, 30 til 100
smálestir að stærð, ennfremur nokkrir trillubát-
ar. Bátar þessir eru víðs vegar að af landinu.
Höfum við lagt á það nokkra áherzlu, að fá
báta úr öllum landsfjórðungum, því gott ætti
að vera fyrir sjómenn víðs vegar um land, að
fá reynslu af veiðum þessum. Getur það komið
sér vel, ef framhald verður á Grænlandsveiðum,
eins og við gerum fastlega ráð fyrir.
— Hvernig verður fyrirkomulag leiðangurs-
ins í megindráttum ?
— í Súðinni verða byrgðir handa leiðangrin-
um, þar á meðal mánaðarforði af beitu, íslenzkri
síld. Síðar, eftir að síldveiði er hafin fyrir
Norðurlandi, er ætlunin að senda til Grænlands
skip með frysta síld og aðrar nauðsynjar, kol
salt og matvæli. Svo er til ætlazt, að hinir stóru
bátar verði í útilegu, beiti, geri að fiskinum
og salti sjálfir, en losi í Súðina,'er þeir hafa
fyllt sig. Verði afli mikill, mun fiskur einnig
geymdur í landi. Trillubátarnir munu róa frá
Súðinni, þar verður beitt, gert að fiskinum og
hann saltaður. Skipin munu fyrst og fremst
veiða með línu, og allur fiskur verður að þessu
sinni saltaður. I leiðangrinum taka sennilega
þátt yfir 100 manns. Leiðangursstjóri verður
Steindór Hjaltalín. Loks er í athugun, einkum
ef erfitt reynist að láta trillurnar róa úr höfn,
þar sem Súðin verður látin liggja, að senda til
216
V I K I N □ U R