Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1949, Side 78
Grœnlendingar veiða allmikinn hákarl.
ar norðar dregur er algerlega íslaust öll sumur,
eða frá því í aprílmánuði og langt fram á haust.
Nyrztu fiskimið, sem Færeyingar og aðrar
þjóðir hafa hagnýtt á þessum slóðum, eru norð-
ur undir 68 gráðu. Þangað eru frá Tovqusak
um 180 sjómílur, eða 18 kls. ferð á skipi, sem
gengur 10 mílur, og því auðvelt fyrir útilegu-
báta að stunda veiðar á öllu því svæði, ef hent-
ugt þykir.
— Hve löng er siglingin frá íslandi til þeirra
hafna á Grænlandi, sem leiðangurinn hefur til
afnota ?
— Frá Reykjavík til Færeyingahafnar er
fimm sólarhringa sigling á tíu mílna skipi. í
Færeyingahöfn er sjúkrahús og loftskeytastöð,
ennfremur samkomuhús, s'em færeyskir fiski-
menn hafa reist. Þorp er þar ekkert, aðeins
þessar byggingar, sem ætlaðar eru sjómönnum.
— Er mikið um fiskimenn á þessum slóðum?
— Færeyingar hafa um langt skeið stundað
þarna fiskiveiðar með ágætum árangri. Síðari
árin hafa veri^ þar á vertíðinni 2—3 þúsund
færeyskir fiskimenn. Norðmenn hafa einnig
verið þar með allstóran flota undanfarin sum-
ur, og í vor sendu þeir á Grænlandsmið fleiri
fiskiskip en nokkru sinni áður. Þá hafa Danir
gert þar út allmarga mótorbáta nú um hríð.
Portúgalar og Frakkar hafa ennfremur sent
þangað fiskiskip. Aflinn er fyrst og fremst
þorskur, einnig veiðist mikið af lúðu. Aðalveið-
arfærið er lína, en Færeyingar fiska einnig mik-
ið á handfæri. Þorskanet hafa og verið notuð
með góðum árangri.
— Og hvað viltu svo segja um framtíðar-
fyrirætlanir ykkar, sem að útgerð þessari stand-
ið?
— Að sjálfsögðu er of snemmt að segja mik-
ið um þær. Við væntum þess, að nú í sumar
fáist mikilvæg reynsla, sem hagriýta megi síð-
ar. Takist þessi fyrsta tilraun vel, verður vafa-
laust haldið áfram á sömu braut, og þá gefst
betra ráðrúm til alls undirbúnings. Yrði þá
nauðsynlegt fyrir okkur Islendinga, að fá full-
komin afnot af tveim til þrem góðum höfnum
á hentugum stöðum, þar sem við gætum á næstu
árum komið upp þeim mannvirkjum, sem nauð-
synleg eru til að hagnýta aflann á hinn full-
komnasta hátt. Þyrfti að reisa þar hraðfrysti-
hús, fiskimjölsverksmiðju og annað, er til þarf
við nýtízku fiskveiðar.
í
*
Isfirzki leiðangurinn.
ísfirzki Grænlandsleiðangurinn, sem er í
þann veginn að leggja af stað þegar þetta er
ritað (23. júní), er fjögur allstór vélskip, eign
Björgvins Bjarnasonar útgerðarmanns. Skipin
eru þessi: Grótta, Richard, Huginn I. og Huginn
II. Skip þessi munu leggja afla sinn upp í
skozkt móðurskip, sem hefur bækistöð í Fær-
21B
V I K I N G U R