Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1949, Síða 81

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1949, Síða 81
Síðan um áramót hafa Víkingnum borizt nokkrar bækur, sem nú verður stuttlega getið. Ferðaminningar Sveinbjarnar Egilson eru að koma út í nýrri útgáfu á vegum ísafoldarprentsmiðju. Þessi bráðskemmtilega bók Sveinbjarnar heitins náði strax miklum og verðskulduðum vinsældum, enda hefur gamla Útgáfan verið ófáanleg lengi. Nýja útgáfan; sem er vel úr garði gerð frá prentsmiðjunnar hendi, hefur að geyma Ferðaminningarnar allar, Sjóferðasögur Svein- bjarnar og auk þess fjórar frásagnir aðrar, sem ekki hafa komið út áður í bókarformi. Þessi nýja útgáfa verður í tveim bindum. Hið fyrra, sem út er komið, er 451 bls. að stærð. Síðara bindið, sem mun verða svip- að, er væntanlegt í haust. Eftir öllum sólarmerkjum að dæma, mun eigi líða á löngu þar til þessi nýja út- gáfa verður með öllu uppseld. Sýnir það glögglega, að Sveinbjörn nýtur enn sem fyrr mikilla vinsælda. Bókaútgáfan Helgafell hefur nú hafizt handa um útgáfu prentaðra litmynda af listaverkum nokkurra hinna helztu íslenzku málara. Er fyrsta bókin þegar komin, með myndum eftir Asgrím Jónsson. Auk lit- myndanna hefur bókin að geyma allmargar teikningar og myndir prentaðar í svörtu og hvítu. Hefur verið vel til útgáfunnar vandað, enda má segja, að árang- urinn hafi verið mjög góður. Flestar eru myndirnar Prentaðar í Kaupmannahöfn, en þó hefur prentsmiðjan Hólar prentað nokkrar þeirra, og leyst það vel af hendi. Myndamótin eru öll gerð hér heima, í „Litrófi“ og »Prentmyndum“. Formálar fylgja myndabók þessari, bæði á íslenzku, eftir Gunnlaug Ó. Scheving, og á ensku, eftir Bjarna Guðmundsson. Innan skamms eru væntan- legar frá Helgafelli tvær aðrar málverkabækur, með listaverkum Kjarvals og Jóns Stefánssonar. Er hér um merkilegt menningarstarf að ræða, sem væntanlega verður til að auka kynni alþjóðar af íslenzkri myndlist. Og svo giftumst við heitir ný skáldsaga, sem Vík- ingnum hefur borizt. Útgefandi er Norðri, en höfundur ungur rithöfundur, Björn Ó. Pálsson. Hann er lesend- um Víkings ekki með öllu ókunnur, því blaðið hefur birt eftir hann þrjár liprar smásögur í gamansömum og léttum tón. Þessi skáldsaga Björns er athyglisverð um margt. Meginkostur hennar er sá, að hún er óvenju- lega skemmtileg aflestrar. Höfundinum er lagið að sjá hlutina frá hinni broslegu hlið. Frásagnartækni hans er þegar orðin furðu mikil, hann á mjög létt með að gera persónurnar ljóslifandi, mörg samtölin eru góð. Auðséð er, að höfundur þessarar sögu hugsar mikið um stíl, og gerir sér far um að ná á honum nýstár- legum tökum. Sumstaðar skortir hann allmjög á um smekkvísi, en allt bendir til þess, að hann muni áður en langt líður sigrast á helztu örðugleikum í sambandi við stílinn. Niðurlag sögunnar er lakast, enda virðist það „hespað af“ í flýti. — Saga þessi verður áreiðan- lega töluvert lesin, enda sá léttleiki í frásögninni, sem hér er helzt til sjaldgæfur. Verður fróðlegt að fylgjast með þessum höfundi í framtíðinni, því hann virðist mörgum kostum búinn, sem sagnaskáld mega prýða. Með auknum þroska og í glímu við stærri viðfangs- efni mun hann væntanlega sýna enn betur, hvers hann er megnugur. Sjómannaútgáfan hefur nýlega sent frá sér tvær bækur. Nefnist önnur þeirra „/ sævarklóm“ og er eftir hina kunnu skáldsagnahöfunda Nordhoff og Hall. Segir þar frá siglingu skipverja af Bounty, er fóru þúsundir mílna á opnum báti yfir úfið haf. Sagan byggist á sönnum viðburðum, og lýsir einhverju mesta siglinga- afreki, sem sögur fara af. Hin bókin er skáldsagan „Blámaður um borð“, eftir sjómannasagnahöfundinn mikla, Joseph Conrad. Er saga þessi mjög rómuð fyrir sérstæðar og góðar persónulýsingar. Böðvar frá Hnífs- dal hefur þýtt söguna, og er þýðingin með ágætum. Frh. af bls. 208. kvæmdastjórn fjárhagsviðreisnar- innar áætli, að Island hafi árið 1950 þörf fyrir fjárhagslega aðstoð, sem demi sex millj. og 400.000 dollara, en bessi aðstoð íslandi til handa 1949 nemi sjö millj. og 700.000 dollara. • 24./5. Veðurathuganaskip á norðan- Verðu Atlantshafi hafa bjargað sam- tals 150 mannslífum, auk hinnar ó- '•letanlegu veðurþjónustu sem þau láta skipum og flugvélum í té. • 26./5. 78 tundurdufl voru gerð ó- virk árið 1948 og voru þau öll af enskri gerð að einu undanskildu. v í K I N G U R Um kl. 4.33 varð elds vart í Netja- gerð Björns Benediktssonar. Brunnu þar öll húsakynni fyrirtækisins, all- stórt tvílyft steinhús og nýtt einlyft timburhús. í húsunum voru geymdar 40 síldarnætur, ýmiskonar netjaefni o. fl., að verðmæti 3—4 millj. króna. Engu varð bjargað. • í Franska spítalanum varð elds vart um kl. hálf sjö. Urðu miklar skemmdir á neðstu hæð hússins, og einnig nokkrar á þakhæð. Grunur manna um, að þarna hafi brennu- vargar verið á ferðinni, styðst m. a. við þá staðreynd, að slökkviliðið var hvað eftir annað gabbað á ýmsa staði í bænum meðan það átti í höggi við eldana í netjagerðinni og Franska spítalanum. 29./5. Bandalag æskulýðsfélaga Reykjavíkur efndi til glæsilegra há- tíðahalda, til fjársöfnunar fyrir væntanlega æskulýðshöll. Leiðrétting. 1 litlum hluta upplagsins urðu þau mistök, að í fyrirsögn á bls. 212 stendur Egils, en á að sjálf- sögðu að vera Eiríks. 221
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.