Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1951, Blaðsíða 34

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1951, Blaðsíða 34
Goðanes" Bjöi'gun togarans „ Útdráttur úr dagbók varðskipsins „Ægis“ Mánudaginn 23. janúar 1950. Varðskipið Ægir var statt við Vestmannaeyjar. Kl. 04,00 var haldið vestur um fyrir Reykjanes. Veður: VSV 8 stórsjór. Kl. 12,00 var varðskipið satt 10 sjómílur SA af Reykjanesi. Veður þá: V 7 mikill sjór. Heyrðist þá, að togarinn Goðanes var að tilkynna, að hann væri með bilað stýri, ca. 10 mílur SA af Stokkseyri, og þyrfti hjálp. Mjög illt var að komast í samband við hann, vegna lofttruflana, er munu hafa stafað af élja- veðri. Fyrst var athugað, hvort nokkur skip væru nálægt Goðanesi, er gætu veitt því hjálp, en það reyndist ekki neitt. Var þá Goðanesi boðin hjálp, og kl. 12,47 var haldið með fullri ferð austur um í áttina að Goðanesi. Siglt var sem leið liggur austur með landi. Þriðjudaginn hinn 24. Kl. 08,30 var komið að Goðanesi, er var á reki 14,5 sjóm. í réttv. 105° frá Stokkseyri. Var þá strax settur í tog- arann vír, Ad/Í’ sver, og honum lásað í stjórn- borðskeðju togarans og gefið út 60 metrar af keðjunni og 240 metrar af vírnum, og haldið af stað kl. 09,10 með togarann í eftirdragi, var þá gott veður. Þess skal getið, að þótt stýri togarans væri brotið, var það hart í stjórnborða og varð ekki hreyft þaðan. Þess vegna vildi togarinn rása mikið til stjórnborðshliðar, og var þar af leið- andi erfiður í drætti. Kl. 10,00 fór að vinda aftur af vestri, og á hádegi kominn V 7, sjór tilsvarandi. Stefnan var sett 12 mílur undan Ingólfshöfða. Kl. 16,40 var bætt við vírinn ca. 100 metrum og gefið út 30 metra af keðju togarans í við- bót. Um kl. 20,00 gekk vindur til SSV með éljaveðri. Ekki var hægt að hafa úti vegmæli, línan fór á vírinn, vegna þess hvað togarinn rásaði mikið. Kl. 20,35 var. farið framhjá Ingólfshöfða í 10,7 sjómílna fjarlægð. Var þá vindur SSV 6, sjór tilsvarandi og éljaveður. Miðvikudaginn hinn 25. Kl. 00,17 varð að stöðva vegna smábilunar á Ægi. Vildu þá skip- in dragast saman, vegna þunga vírsins er lagð- ist í botn, voru þá bæði skipin í nokkurri hættu. Kl. 00,40 var búið að leysa úr sambandi, einn bullustrokkinn, er bilunin var í, var þá hægt að halda áfram með minnkaðri ferð. Kl. 01,16 var viðgerð lokið. Var þá stoppað aftur meðan strokkurinn var settur í samband. Kl. 01,28 var viðgerð lokið og haldið áfram. Frá Ingólfshöfða var stefnan sett 20 mílur undan Mýrnatanga, sama undan Dyrhólaey, síð- an 15 mílur undan Geirfuglaskeri út af Vest- mannaeyjum. Vindur fór vaxandi af SSV, einn- ig sjór. Kl. 16,00 var vindur orðinn 10 vindstig, og hélst það, sem eftir var dagsins. Kl. 20,00 gekk vindur í S með sama ofsa. Fimmtudaginn hinn 26. Sama veður S 10. Kl. 05,00 gekk vindur í SA með sama veður- ofsa og dimmviðri og stórsjó. Var þá ratsjá skipsins biluð, en bergmálstækið lóðaði sama og ekkert vegna sjógangs. Vegmælir var ekki í gangi, þar eð línan fór strax í dráttarvírinn, en Goðanes hafði vegmæli úti. Um kl. 09,00 var farið framhjá Réykjanesi, til lands sást þó ekki vegna roksins. Kl. 10,00 var komið fárviðri. Kl. 11,00 slitnaði dráttar- vírinn. Voru skipin þá út af Hafnarleir. Voru þá strax vírslitrin dregin inn, nýr vír, 200 faðma langur og 5" sver, tekinn upp úr geymslurúmi, síðan lagt að Goðinesi aftur, línu skotið yfir, og síðan fest í Goðanes eins og áður. Kl. 12,30 var þessu öllu lokið og haldið af stað. Kl. 15,00 var farið framhjá Garðskaga, var vindur þá S 11. Kl. 19,05 var varpað akkeri á Reykjavíkur- ytrihöfn, var þá vindur S 7. Tveir dráttarbátar drógu Goðanes inn að bryggju, og þar með var björguninni lokið. Eiríkur Kristóf ersson. Brezka stjórnin hefur ákveðið að kaupa allan kjöt- útflutning Ástralíu næstu fimmtán ár, en kaupverðið á að ákveðast með vissu millibili. 34 VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.